Willum var hlynntur því að leyfa veirunni að ganga án sóttvarnatakmarkanna síðasta haust

Viðhorf fyrr­verandi og núverandi heilbrigðis­ráðherra um að leyfa kórónu­veirunni að ganga án sóttvarna­takmarkana eru mjög ólík. Samkvæmt kosninga­prófi RÚV síðastliðið haust var Svandís mótfallin því en Willum var 89 prósent sammála full­yrðingunni.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra var hlynntur því síðasta haust að leyfa ætti kórónuveirunni að ganga án sóttvarnatakmarkana. Þáverandi heilbrigðismálaráðherra var alfarið á móti því á þeim tíma.
Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra var hlynntur því síð­asta haust að leyfa ætti kór­ónu­veirunni að ganga án sótt­varna­tak­mark­ana. Þáver­andi heil­brigð­is­mála­ráð­herra var alfarið á móti því á þeim tíma. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra segir stefnu­breytingu hafa orðið í barátt­unni við kórónu­veiru­faraldurinn í dag þegar afléttingar­áætlun stjónvalda var kynnt. Í stað þess að styðjast við aðferða­fræði temprunar líkt og gert hefur verið síðustu tvö ár er stefnan að opna samfélagið. „Sem er auðvitað búið að vera loka­markmiðið allan tímann,“ sagði Katrín í blaðamanna­fundi ríkis­stjórnarinnar í Safna­húsinu í dag.

Viðhorf forsætis­ráðherra frá því síðasta haust hefur greini­lega breyst en í kosninga­prófi RÚV síðasta haust tók Katrín ekki vel undir þá full­yrðingu að leyfa ætti kórónu­veirunni að ganga án sóttvarna­takmarkana. Á sama tíma hefur staða faraldursins breyst en ein af megin rökum sóttvarna­læknis við að hefja afléttingar­áætlun er að þó svo að ómíkron-afbrigði kórónu­veirunnar sé mun meira smitandi en önnur afbrigði er minna um alvarleg veikindi.

Katrín kvaðst vera 15 prósent sammála full­yrðingunni síðasta haust. Ef svör allra ráðherra eru borin saman má merkja greini­legan mun á afstöðu þáverandi og núverandi heilbrigðis­ráðherra. Svandís Svavars­dóttir, heilbrigðis­ráðherra í síðustu ríkis­stjórn, var algjör­lega ósammála full­yrðingunni um að leyfa ætti veirunni að ganga án sóttvarna­takmarkanna en Willum Þór Þórsson, núverandi heilbrigðis­ráðherra, var 89 prósent sammála full­yrðingunni.

Svör ráðherranna við full­yrðingunni „Það á að leyfa kórónu­veirunni að ganga án sóttvarna­takmarkana“, þar sem miðað er við skalann 0-100 þar sem 0 er ósammála en 100 sammála, voru eftir­farandi:

  • Willum Þór Þórsson: 89%
  • Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir: 100%
  • Katrínt Jakobs­dóttir: 15%
  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir: 63%
  • Guðlaugur Þór Þórðarson: 72%
  • Guðmundur Ingi Guðbrandsson: 0%
  • Svandís Svavars­dóttir: 0%
  • Sigurður Ingi Jóhannsson: 14%
  • Lilja Alfreðs­dóttir: 66%
  • Ásmundur Einar Daðason: 29%

Hvorki Bjarni Benediktsson né Jón Gunnarsson, þingmenn Sjálfstæðisdlokksins og ráðherrar í núverandi ríkis­stjórn, svöruðu kosninga­prófi RÚV í haust.

Af svörunum að dæma gætti meira samæmis í svörum ráðherra Vinstri grænna en hinna ríkis­stjórnar­flokkanna tveggja. Áslaug Arna, þáverandi dómsmála­ráðherra, var hlynntust full­yrðingunni um að láta veiruna ganga án sóttvarna­takmarkanna en Guðmundur Ingi og Svandís alfarið ósammála full­yrðingunni. Næst á eftir þeim kom Sigurður Ingi og þar á eftir forsætis­ráðherra.

Hvað sem því líður er staðreyndin sú að afléttingar­áætlun stjórn­valda hefst á miðnætti og ef allt gengur að óskum verða allar sóttvarna­takmarkanir afléttar 14. mars, rúmum tveimur árum eftir að faraldurinn braust fyrst út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár