Faraldurinn ýfði upp kunnugleg sár hjá Spánverjum

Yfir­standandi faraldur hefur verið Spán­verjum sérstak­lega skæður, en þeir hafa einnig þurft að þola frelsis­takmarkanir vegna hans, sem leitt hafa til djúprar efna­hag­skreppu. Þessi vandamál eru þó ekki ný af nálinni á Spáni.

Gran Vía í Madríd á Spáni
Gran Vía í Madríd á Spáni Mynd: Pexels - Alex Azabache

Vegna kórónu­veirunnar og aðgerða gegn útbreiðslu hennar er spænska hagkerfið nú í dýpstu niður­sveiflu frá því að borgara­styrjöld geisaði þar í landi fyrir tæpri öld síðan. Samkvæmt Þórunni Helga­dóttur hagfræðingi gæti pólitísk sundrung, saga og menning Spánar auk umsvifa ferða­þjónustu útskýrt hvers vegna landið varð svona illa fyrir barðinu á veirunni og efnahags­legum afleiðingum hennar.

Menning og þéttbýli gætu hafa fjölgað smitum

Í grein Þórunnar í jólablaði Vísbendingar bendir hún á margar hugsanlegar ástæður að baki þess hversu hratt veiran tók að dreifast á Spáni síðasta vor. Til að mynda sé algengt að fólk búi þröngt í spænskum stór­borgum, þar sem fasteigna­verð er hlutfalls­lega hátt miðað við laun. Þar búi oft saman margir vinnandi einstaklingar, sem hverjir hafi sína fjöl­skyldu og vinahópa utan heimilisins.

Einnig veltir hún því upp hvort menningar­legir þættir hafi stuðlað að aukinni dreifingu, en mikill samgangur er milli fjölskyldu­meðlima þar í landi. Því til stuðnings nefnir hún nýlega samantekt frá spænska heilbrigðis­ráðuneytinu sem sýndi að rúmlega 40 prósent hópsýkinga megi rekja til vina- eða fjölskyldu­hittinga.

Hundar máttu hreyfa sig en ekki börn

Þórunn bendir þó á að spænska ríkis­stjórnin brugðist hart við þessari dreifingu smita, en samkvæmt henni risti útgöngu­bannið,sem tók gildi um miðjan mars í fyrra, þjóðina djúpt.

Einnig segir hún að spænsk börn hafi verið hneppt í algjör stofu­fangelsi á þessum tíma, þar sem engum var leyft að fara úr húsi nema til þess að sækja nauðsynja­vörur.

„Athygli vakti að hunda­eigendur fengu undanþágu frá útgöngu­banninu til þess að viðra dýrin sín,“ bætir Þórunn við. „Göngu­ferðin átti þó að vera stutt og aðeins til þess að fullnægja grundvallar­hreyfiþörf hundsins. Ekki var minnst á hreyfi­þörf barna í reglu­gerðinni. Af þeim sóttvarna­aðgerðum sem beinast að börnum eru þessar aðgerðir þær hörðustu í Evrópu en spænsk börn máttu ekki yfirgefa heimili sín í 45 daga.“

Atvinnuleysi eykst á ný

Vegna veirunnar og útgöngu­bannsins hefur lands­framleiðsla á Spáni dregist töluvert saman og atvinnu­leysi aukist á ný, en það jókst einnig töluvert í kjölfar efnahagskreppunnar fyrir rúmum áratug síðan. Þórunn vitnar í nýútgefna skýrslu frá OECD, en í henni kemur fram að það muni taka nokkur ár fyrir spænskt efnahagslíf að ná bata og að atvinnu­leysi muni haldast hátt í langan tíma.

Hægt er að gerast áskrifandi að Vísbendingu með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár