Sýn tapaði 1,7 milljörðum í fyrra

Rekstrar­afkoma Sýnar versnaði mikið milli ára. Niður­færsla á viðskipta­vild litaði afkomu ársins í fyrra.

Tap ársins nam 1,7 milljörðum króna miðað við hagnað upp á 443 milljónir króna árið 2018.

Hagnaður ársins að frádreginni niður­færslu á viðskipta­vild var 703 milljónir króna, að því er segir í tilkynningu félagsins til kaup­hallar.

Einskiptis­kostnaður ársins nam 358 milljónum króna.

Tap á síðustu þremur mánuðum ársins 2019 nam tveimur milljörðum króna saman­borið við 193 milljón króna hagnað á sama tímabili í fyrra.

Viðskipta­vild var færð niður um 2,4 milljarða króna sem skýrir tapið á síðustu þremur mánuðum ársins.

„Uppgjör síðasta árs liggur nú fyrir með tap uppá 1.748 milljónir króna. Það ætti ekki að vera margt þar sem kemur á óvart enda eru sjóð­streymi og EBITDA ársins í takt við horfur. Árið markast af því að verið var að framkvæma miklar breytingar á rekstrinum og færa niður viðskipta­vild. Jákvæð breyting er verulega bætt sjóð­streymi en frjálst fjárflæði eykst um yfir milljarð króna. Á síðasta ári fór fyrir­tækið fyrst í sameiginlega stefnu­mótun. Í framhaldi af því var skipuriti breytt og nýir framkvæmda­stjórar eru nú í öllum stöðum, utan tækni­sviðs. Tækni­sviði var skipt upp og sett að hluta undir rekstrar­svið, sem mun auk skilvirkni og hraða framförum í starf­rænni aðlögun. Við innleiddum nýja vöru­merkja– og samskipta­stefnu og fórum í framhaldi af því í 4DX átaks­verkefni. Ánægja viðskipta­vina jókst strax umtals­vert í kjölfarið. Nú erum við í stöðu til að sækja fram,“ segir Heiðar Guðjónsson, forstjóri, í tilkynningu.

Hann segir enn fremur að lykillinn að rekstrar­árangri sé fólginn í því að umbreyta föstum kostnaði í breyti­legan. „Þar eru ýmis verkefni í gangi. Við erum að auka útvistun verkefna auk þess sem við erum enn að hagræða með því að efla frekari samvinnu á milli deilda fyrir­tækisins. Varðandi framtíð fjar­skipta þá skiptir mestu að fjár­festingar séu mark­vissar með tilliti til öryggis og hagkvæmni. Mikil­vægur liður í því var yfir­lýsing fjarskipta­fyrir­tækjanna frá 19. desember síðast liðnum, þó enn sé of snemmt að fullyrða um árangur af því starfi,“ segir Heiðar ennfremur.

Helstu atriði úr uppgjöri félagsins, má sjá hér að neðan.

• Tap ársins nam 1.748 milljónum króna miðað við hagnað upp á 443 milljónir króna árið 2018. Hagnaður ársins að frádreginni niður­færslu á viðskipta­vild var 703 milljónir króna. Einskiptis­kostnaður ársins nemur 358 milljónum króna.

• Handbært fé frá rekstri á fjórðungnum nam 1.953 milljónum króna saman­borið við 1.358 milljónir króna á sama tímabili árið áður, sem er aukning um 44%.

• Heildar­fjár­festingar félagsins á árinu námu 4.719 milljónum króna þar af eru fjár­festingar í varanlegum rekstrar­fjármunum og óefnis­legum eignum (án sýningar­rétta) 1.833 milljónir króna og fjár­festing í sýningar­réttum 2.789 milljónir króna.

• Fjár­mögnunar­hreyfingar félagsins á árinu voru neikvæðar um 380 milljónir króna á móti jákvæðum hreyfingum upp á 434 milljónum króna á árinu 2018 sem er breyting um 814 milljónir króna.

• Eiginfjár­hlutfall Sýn hf. var 27,5% í lok árs 2019.

• Markmið stjórn­enda er að ná aukinni framlegð og betra sjóð­streymi úr rekstri félagsins á árinu 2020. Fjár­festingar ársins verða í kringum 1 milljarð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár