Bandaríkin senda herskip að Jemen

Vaxandi spenna er í Jemen þar sem uppreisnar­menn berjast við Sádí Arabíu, sem nýtur stuðnings Banda­ríkjanna.

Banda­ríski sjó­her­inn hef­ur sent tund­ur­spilli á hafsvæðið fyr­ir utan Jemen í kjöl­far þess að upp­reisn­ar­menn í land­inu gerðu árás á freigátu í eigu Sádi Ar­ab­íu sem var við eft­ir­lit á Rauðahafi. Tund­ur­spill­ir­inn, USS Cole, var stadd­ur á Persa­flóa.

Í frétt Reuters segir að tek­in hafi verið ákvörðun um að senda her­skipið á vett­vang þar sem talin var hætta á því að árásir muni magnast, og að það sé mat bandarískra yfirvalda að Íran sé að aðstoða uppreisnar­menn í bardögum við Sádí Arabíu.

Tveir sjóliðar fórust í árásinni, en bandarísk yfirvöld segja að Íran hafi verið að baki árásinni. Í síðustu viku lést bandarískur sérsveitar­maður í hernaðar­aðgerð í Jemen sem fór út um þúfur. Rannsókn er nú hafin á atvikinu innan hersins .

Meðal annars af þessum ástæðum hafa bandarísk yfirvöld ákveðið að beita viðskipta­þvingunum gagnvart Íran, meðal annars með því að koma í veg fyrir að 13 einstaklingar og 12 fyrirtæki geti fær til fjármuni og átt viðskipti, en bandarísk yfirvöld telja að þessir aðilar hafi tengsl við uppreisnar­menn og jafnvel hryðjuverka­samtök, að því er segir í frétt breska ríkis­útvarpsins BBC.

Flugskeyta­æfingar Írana, þar sem meðal­drægum flaugum var beitt, fóru mjög illa í bandaríska stjórnvöl en flaugar sem þessar geta borið kjarnorku­vopn. 

Stjórn­völd í Íran brugðust strax við því sem kom fram og sögðust ætla að svara fyrir sig, án þess að útlista það frekar.

Donald J. Trump sagði á Twitter síðu sinni í gær að hann ætlaði ekki að taka Íran neinum vettlinga­tökum, og sagði forvera sinn, Barack Obama, hafa verið alltof „linan“ í samskiptum sínum við Íran. 

Ekki eru nema 19 mánuðir síðan Barack Obama og stjórn hans náðu samkomu­lagi við Íran

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár