Félag leikskólakennara segir „Tupperware píramída hvatningu“ ólíklega til árangurs

Félag leik­skóla­kennara segir að verið sé að taka inn sífellt yngri börn á leikskóla án þess að hugsa málið til enda. Sveitar­félög verði að fara að taka varnaðarorð félagsins um of hraðan vöxt leik­skóla­stigsins alvarlega.

Félag leikskólakennara segir að sveitarfélög landsins verði að fara að taka varnaðarorð um of hraðan vöxt leikskólastigsins alvarlega.
Félag leik­skóla­kenn­ara segir að sveit­ar­fé­lög lands­ins verði að fara að taka varn­að­ar­orð um of hraðan vöxt leik­skóla­stigs­ins alvar­lega. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Félag leik­skóla­kennara segir að sú tillaga „að búa til Tupperware píramída hvatningu vegna ráðninga starfs­fólks í leikskóla“ sé langt því frá líkleg til þess að ráðast á rót mönnunar­vanda í leik­skólum.

Þetta kemur fram í Facebook færslu frá félaginu, þar sem vísað er til fréttar Kjarnans frá því fyrr í dag, en þar sagði frá aðgerðum sem til stendur að ráðast í til að fjölga starfs­mönnum á leik­skólum í Reykja­víkurborg.

Borgarráð samþykkti í gær að veita alls 20 milljónum aukalega til skóla- og frístunda­sviðs til þess að bæta mönnun á leik­skólum, en ein aðgerð­anna sem skóla- og frístunda­sviðið lagði til var sú að hvetja starfs­menn leikskóla borgarinnar til að fá vini og ættingja til að ráða sig í vinnu á leikskóla, með 75 þúsund króna launaauka ef ráðningar­samband kæmist á.

Þetta hefur vakið nokkra athygli – og Félagi leik­skóla­kennara líst ekki vel á áformin.

Í færslu félagsins segir að stærsta verkefni sveitar­félaga sé að fjölga leik­skóla­kennurum og hafi lengi verið. „Leik­skólastigið hefur þróast hratt sem skólastig. Ákvarðanir samfélagsins um að taka sífellt inn yngri og yngri börn án þess að hugsa málið fyllilega til enda hefur aukið á vandann, aukið mönnunar­þörf og hægt á hlutfallslegri fjölgun leik­skóla­kennara þrátt fyrir mikla fjölgun í leik­skóla­kennara­námi undan­farin ár,“ segir í færslu félagsins.

Vöxtur leikskólastigsins of hraður

Í færslunni segir enn fremur að starfs­fólki við uppeldi og menntun í leik­skólum hafi fjölgað um 3.000 í 6.000 á árunum 1998 til 2019.

„Félag leik­skóla­kennara þreytist ekki að benda á að of hraður vöxtur leik­skóla­stigsins er helsta ástæða þess að ekki hefur tekist að fjölga leik­skóla­kennurum hlutfalls­lega á þessu tímabili. Sveitar­félögin verða að fara að taka þau varnaðarorð alvarlega,“ segir í færslu félagsins.

Reykja­víkurborg er um þessar mundir með verkefni í gangi sem kallað er Brúum bilið, en það felst fyrst og fremst í uppbyggingu nýrra leikskóla. Markmiðið er að hægt verði að bjóða öllum börnum 12 mánaða og eldri leik­skólavist í höfuð­borginni. Í tillögum frá skóla- og frístunda­sviði borgarinnar sem voru til umræðu í borgar­ráði í gær sagði að gert væri ráð fyrir mikilli fjölgun leikskóla­plássa næstu árin – og að það fæli í sér að fjölga þyrfti starfs­mönnum á leik­skólum um 250-300 næstu 3-4 árin.

Það væri því „mat mannauðs­þjónustu og leikskóla­skrifstofu skóla- og frístunda­sviðs og mannauðs- og starfs­umhverfis­sviðs borgarinnar að gera þurfi meira en í meðalári til að styðja leikskóla í ráðningar- og mannauðs­málum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár