Vilja virkja vindinn á Mosfellsheiði

Ef áætlanir Zephyr Iceland ganga eftir munu 30 vind­myllur, um 200 MW að heildar­afli, rísa á Mosfells­heiði. Fjölmargar hugmyndir að vind­orkuverum bárust verkefnis­stjórn ramma­áætlunar en Zephyr telur óljóst að vindorka eigi þar heima.

Yfirlitsmynd yfir fyrirhugað framkvæmdasvæði. Guli kassinn og blái þríhyrningurinn afmarka svæði 1. og 2. áfanga.
Yfir­lits­mynd yfir fyr­ir­hugað fram­kvæmda­svæði. Guli kass­inn og blái þrí­hyrn­ing­ur­inn afmarka svæði 1. og 2. áfanga. Mynd: Úr tillögu að matsáætlun

Zephyr Iceland fyrir­hugar að reisa vindmyllu­garð á Mosfells­heiði innan sveitar­félaganna Grímsnes- og Grafnings­hrepps og Ölfuss. Landið er þjóðlenda í eigu ríkisins. Um 30 vind­myllur, 150-20 metrar á hæð, yrðu reistar og heildarafl garðsins, sem gerður yrði í áföngum, gæti orðið um 200 MW.

Í tillögu að mats­áætlun vegna verk­efnisins, sem lögð var nýverið fram til kynningar, segir að með vindorku­garði á Mosfells­heiði sé „m.a. verið að bregðast við aukinni raforku­þörf á Íslandi“. Hin fyrir­hugaða framkvæmd er af þeirri stærðar­gráðu að hún þarf lögum samkvæmt að fara í gegnum mat á umhverfis­áhrifum og er tillagan sem nú er í kynningu hluti af því ferli. Framkvæmda­aðili telur hins vegar óljóst hvort að verkefnið þurfi að fara í gegnum ferli ramma­áætlunar þar sem skiptar skoðanir séu um hvort að vindorka falli undir lög um verndar- og orku­nýtingar­áætlun. Engu að síður hafi Zephyr skilað hugmynd að framkvæmdinni til Orku­stofnunar og að óbreyttu fer hún til umfjöllunar hjá verkefnis­stjórn 4. áfanga ramma­áætlunar. Fjölmargar hugmyndir að vind­orkuverum um allt land hafa borist verkefnis­stjórninni.

Í tillögu Zephyr að mats­áætlun segir að Mosfells­heiði sé „talin vera tilvalinn staður fyrir vindorku­garð“. Á svæðinu séu hagstæð vind­skilyrði, tiltölu­lega einfalt sé að tengjast raforku­flutnings­kerfinu, aðgengi að svæðinu sé með besta móti og tekið fram að svæðið einkennist nú þegar af orku­mannvirkjum í formi hita­veitulagnar og háspennu­lína. Þá séu nokkrar stærstu jarðvarma­virkjanir landsins í næsta nágrenni.

Hið fyrir­hugaða framkvæmda­svæði er í 300 metra hæð yfir sjávar­máli. Vindafar hefur verið metið út frá sögulegum gögnum frá næstu veður­stöðvum Veður­stofunnar en til að staðfesta áætlaðan vind verða gerðar stað­bundnar mælingar og hafa leyfi fengist fyrir uppsetningu mastra með mæli­tækjum á svæðinu.

Land­notkun á svæðinu er skilgreind sem „óbyggt svæði“ og því er ljóst að ef setja á þar upp vindmyllu­garð þyrfti að breyta á skipulags­áætlununum beggja sveitar­félaga í þá veru að afmarka fyrir­hugað virkjunar­svæði sem „iðnaðar­svæði“.

Vind­myllurnar myndu hafa bein áhrif á svæðin sem fara undir myllurnar sjálfar, á vegi, jarð­strengi, athafna­svæði verktaka og safnstöð raforku innan svæðis. Leggja þyrfti malarveg að hverri myllu og jarð­streng eða loftlínu um tíu kílómetra leið.

Í full­byggðum garði yrðu um 30 vind­myllur, hver 150-200 metrar á hæð. Nokkur fjöll sjást frá framkvæmda­svæðinu og telur framkvæmda­aðili að þau kæmu til með að takmarka sýn inn á svæðið frá byggð. Er þar helst að nefna Hengil í suðaustri og Esju í norð­vestri. Einnig myndi Grímmansfell í Mosfellsbæ skyggja á vind­myllurnar. Engu að síður myndi hluti af vind­myllunum sjást úr fjarlægð, bæði frá höfuð­borgar­svæðinu og frá þjóð­garðinum á Þing­völlum.

Meðal þess sem framkvæmda­aðili hyggst gera er að fá fugla­fræðing til að annast athuganir á fuglalífi á svæðinu. Í tillögu að mats­áætlun stendur að svæðið sé í dag ekki flokkað sem mikilvægt fugla­svæði af Náttúru­fræði­stofnun Íslands og því sé ekki gert ráð fyrir ratsjár­mælingum til að kort­leggja fugla­lífið. Komi hins vegar í ljós að um svæðið fari margir farfuglar með hátt verndar­gildi kunni þetta að verða endur­skoðað.

Með kynningu á tillögu að mats­áætlun er verið að kalla eftir ábendingum um hvað fjalla skuli um í mati á umhverfis­áhrifum verk­efnisins. Tillagan var til almennrar kynningar í tvær vikur og rann frestur til athugasemda út um miðjan október. Þegar brugðist hefur verið við athuga­semdum sem bárust verður endanleg tillaga að mats­áætlun send Skipulags­stofnun til ákvörðunar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár