Bankinn sem tók yfir Kaupþing orðaður við fótboltahneyksli

David Rowland og sonur hans Jonathan sem yfirtóku starfsemi Kaupþings í Lúxemborg skömmu eftir hrun eru sagðir viðloðandi tilraunum Manchester City til að komast framhjá fjármála­reglum evrópska knattspyrnu­sambandsins.

David Rowland og sonur hans Jonathan sem yfirtóku starfsemi Kaupþings í Lúxemborg skömmu eftir hrun eru sagðir viðloðandi tilraunum Manchester City til að komast framhjá fjármála­reglum evrópska knattspyrnu­sambandsins. Þetta kemur fram í þýska fjöl­miðlinum Der Spiegel í öðrum hluta umfjöllunar sinnar um spillingu í fótbolta­heiminum en RÚV greinir fyrst frá íslenskra miðla.

Í frétt RÚV kemur fram að Kaupþing í Lúxemborg hafi verið dóttur­félag Kaupþings á árunum fyrir hrun og gegnt mikilvægu hlutverki í starfsemi bankans erlendis. Það sjáist meðal annars af því að bankinn kom við sögu í öllum fjórum dóms­málunum sem sérstakur saksóknari höfðaði gegn stjórn­endum Kaupþings eftir hrun.

„Þegar Kaupþing fór á hausinn í vikunni í október 2008 þegar hver íslenski bankinn féll á fætur öðrum var íslenski hlutinn endur­reistur og gengur nú undir nafninu Arion banki. Erlend starfsemi bankans skilin frá honum. Þar á meðal var Kaupþing í Lúxemborg,“ segir í fréttinni.

Feðgarnir David og Jonathan Rowland tóku yfir Kaupþing í Lúxemborg eftir hrun og breyttu nafninu í Banque Havilland. „Afraksturinn varð Banque Havilland, og upptalning á dóttur­félögum þess hljómar eins og ferða­handbók fyrir fjárfesta sem vilja komast hjá óþægilegum spurningum og skatta­skilum: Lúxemborg, Liecthenstein, Bahamaseyjur og Sviss,“ segir í grein Der Spiegel í dag. 

Í umfjölluninni kemur fram að feðgarnir hafi hjálpað stjórn­endum og eigendum Manchester City að fara á svig við reglur evrópska knattspyrnu­sambandsins (UEFA) um fjármál fótbolta­liða. Reglurnar eiga að koma í veg fyrir að lið eyði meira fé en þau afla en þær eru bæði hugsaðar til að sporna við því að lið lendi í fjárhags­vanda og koma í veg fyrir að auðmenn geti skekkt samkeppnis­stöðu liða á vellinum.

Í frétt RÚV segir að til að bregðast við þessu hafi stjórn­endur City komið sér upp áætlun sem kallaðist Langbogi. „Með henni átti að tryggja að fé bærist frá Mansour bin Zayed Al Nahyan, eiganda liðsins, til félagsins en að þær væru dulbúnar svo ekki kæmist upp um svikin. Þetta fullyrðir fjöl­miðillinn hið minnsta og byggir umfjöllun sína á tölvupóst­samskiptum. Þar segir að Rowland feðgarnir hafi verið fengnir að borðinu til að byggja upp „kastala úr lygum“. Það hafi verið gert með því að stofna félög á aflands­eyjum til að halda utan um réttindamál og greiðslur til leikmanna Manchester City.

Það á meðal annars við um fyrir­tækið Fordham Sports Management, að sögn blaðsins. Það var notað sem skjól til að leyna því að eigendur City í Abu Dhabi lögðu liðinu til mun meira fé en þeim var heimilt.Kaupþing kemur við sögu í fjármála­hneyksli sem tengist auðmönnum og eign þeirra á fótbolta­liðum í umfjöllun þýska fjöl­miðilsins Der Spiegel í dag. Fjöl­miðillinn hóf í gær umfjöllun sína í fjórum hlutum um hvernig eigendur og stjórn­endur Manchester City hafa komist hjá reglum um fjármál knattspyrnu­félaga. Þar segir að við sögu komi risa­fjárframlög til bresks stjórn­málaflokks og íslenskur banki sem fór á hausinn, en ekki kom fram í fyrstu greininni um hvaða banka væri að ræða,“ segir í fréttinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár