Trump vill funda með Pútín á Íslandi

Ráðgjafar Trumps eru sagðir hafa rætt staðar­valið fyrir fund milli leiðtoga þessara risa í vestri og austri við pólitíska ráðgjafa í Bretlandi.

Don­ald J. Trump, verðandi Banda­ríkja­for­seti, vill funda með Vladímir Pútín forseta Rússlands í Reykja­vík nokkr­um vik­um eft­ir að hann sest á valda­stól í Washingt­on. Þetta kemur fram í The Sunday Times í dag.

Með fundinum vill Trump horfa til áhrifanna sem leiðtoga­fundur Ronalds Reagans Banda­ríkjanna og Mik­hail Gor­bat­sjov, leiðtoga Sovét­ríkjanna, hafði en hann fór fram í Höfða árið 1986, eins og kunnugt er.

Í blaðinu segir að ráðgjafar Trumps hafi rætt um þessi mál við pólitíska ráðgjafa í Bretlandi. Þá er greint frá því að rússneskum stjórn­völdum lítist vel á Ísland sem stað fyrir fund milli Trumps og Pútíns. Trump er sagður vilja ræða um kjarnorku­vopn við Pútín og hvernig megi draga úr þeim, auk þess sem hann vill geri samskipti þjóðanna betri. 

Óhætt er að segja að öll spjót hafi staðið á bæði Trump og Pútín að undan­förnu, en rússnesk stjórn­völd hafa í skýrslum leyni­þjónustu­stofnanna Banda­ríkjanna verið sögð hafa beitt tölvu­árásum í kosninabaráttu Trumps og Hillary Clinton til að ýta undir líkur Trumps á sigri. 

Guðlaugur Þór Þórðarson utan­ríkis­ráðherra sagði við mbl.is í gærkvöldi að íslensk stjórn­völd litu málið jákvæðum augum, en að hann hafi fyrst heyrt af málinu í frétt Sunday Times. „Við höfum ekki fengið neitt staðfest eða nein erindi um þetta.“ Íslendingar hafi þó alltaf verið tilbúnir að hjálpa til þegar leiðtogar heimsins hafi viljað funda. „Íslensk­um stjórn­völd­um hef­ur ekki borist er­indi af þessu tagi. Ef ráðamenn í Washingt­on DC og Moskvu munu óska þess form­lega við ís­lensk stjórn­völd að þau skipu­leggi leiðtoga­fund í Reykja­vík mun rík­is­stjórn Íslands líta það já­kvæðum aug­um og leggja þannig sitt af mörk­um til að bæta sam­skipti Banda­ríkj­anna og Rúss­lands, minn­ug leiðtoga­fund­ar­ins í Höfða árið 1986,“ seg­ir í svar­i utan­ríkis­ráðuneytisins við fyrir­spurn mbl.is. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár