2019 eitt besta ár frá upphafi á mörkuðum

Mikil hækkun á virði hluta­bréfa einkenndi flesta stærstu markaði heimsins á þessu ári.

Margt bendir til þess að árið 2019 verði eitt besta ár á hlutabréfa­mörkuðum frá upphafi.

Ef ávöxtun þessa viðskipta­daga ársins verður í takt við þróun undan­farinna mánaða þá verður um að ræða besta ár á hlutabréfa­mörkuðum frá því að viðspyrnan kom á flestum mörkuðum heimsins, árið 2009, eftir hremmingarnar og hrunið á árunum 2007 til byrjun árs 2009.

Í umfjöllun Bloomberg segir, að árið 2019 hafi verið gott á nær alla mæli­kvarða, og flestir eigna­flokkar verðbréfa og hrávöru, sýndu jákvæða þróun.

Stærstu fyrirtæki heimsins, sé horft til markaðs­virðis, Microsoft og Apple, hafa hækkað um meira en 60 prósent á árinu, og svipaða sögu er að segja af mörgum stærri fyrir­tækjum.

Algengt er að hlutabréfa­vísitölur í heiminum hafi hækkað um tugi prósent á árinu, en í sögulegu samhengi telst það verulega mikið.

Árið á markaðnum á Íslandi hefur einnig verið nokkuð gott, í sögulegu samhengi. Vísitala skráða markaðarins hefur hækkað um rúmlega 32 prósent á árinu, en allt annað var uppi á teningnum í fyrra þegar lítil sem engin ávöxtun var á markaði og mörg félög lækkuðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár