Fátæk en sexí

Berlín lætur íbúa sína fá það sterklega á tilfinn­inguna að þeir séu í iðrum Rómar­veldis, herðir börn með því að skilja þau út undan í afmælis­boðum og hipsterarnir eru hákapít­al­ískir. Auður Jóns­dóttir skrifar um borgina flóknu.

Greinarhöfundur telur nauðsynlegt að hafa íslenskan fréttaritara starfandi í Berlín, bæði fyrir útvarp og sjónvarp. Hann þurfi meðal annars að gera hinu táknræna evrópska samfélagi, þar sem lífsbaráttan er að ýmsu leyti miklu harðari en við eigum að venja
Grein­ar­höf­undur telur nauð­syn­legt að hafa íslenskan frétta­rit­ara starf­andi í Berlín, bæði fyrir útvarp og sjón­varp. Hann þurfi meðal ann­ars að gera hinu tákn­ræna evr­ópska sam­fé­lagi, þar sem lífs­bar­áttan er að ýmsu leyti miklu harð­ari en við eigum að venja Mynd: Pexels.com

Í fyrravor bjó ég í gamla Vestur-Berlínar­hverfinu Schöneberg og hafði gert það í næstum fjögur ár en á vorin byrja farfuglarnir að tylla sér á aðalgötu miðbæjarins: betlarar sem sumir virðast vera svokallað Rómafólk, en reyndar er ólíkt eftir hverfum í Berlín hver uppruni betlara er og hvers eðlis eymdin er. Í einu hverfinu sérðu helst heimilis­laus götubörn á tánings­aldri, í því næsta dópista á vergangi, í því þriðja tann­lausar kerlingar að skrapa saman fyrir bjór­flösku.

Á aðal­götunni í hverfinu mínu voru oft aðeins örfá skref á milli betlara en ég átti í eins konar sambandi við tvo þeirra. Annar var erki­þýskur róni með vel upp alinn hund sem átti sérstakan sníkju­dall. Hinn var unglings­drengur gerður út til að svindla með því að bjóða til sölu tímarit sem heimilis­lausir í borginni gefa út og selja til að þurfa ekki að betla – merkilegt málgagn – en þegar hann var búinn að fá klinkið fékk maður ekki blaðið heldur biðjandi augnaráð.

Ósýnilegir mansalsgreifar

Það var eitthvað við þennan dreng, kannski hversu ungur hann var og ég móðir lítils drengs, sem gerði það að verkum að ég leyfði honum að svindla á mér á hverjum degi.

Hann var grind­horaður með barnslegt bros og augu sem ljómuðu þegar hann sá mig – sem rétti honum oftast tvær evrur og flækti mig um leið í óþægilegum þönkum. Var ég að kaupa mér vændi, vellíðan við að sjá þakklætið í augum hans, hafði ekki einhver sænskur fræði­maður sýnt fram á það? Og ef hann var gerður út var ég þá að styrkja mansals­greifa í kitsuðum plast­höllum í Rúmeníu?

Ég sagði við sjálfa mig að sennilega yrði drengnum refsað ef hann kæmi ekki færandi hendi eftir daginn og að ef til vill hefði hann verið alinn upp á einu af þessum alræmdu munaðar­leysingja­hælum þar sem enginn heldur á börnunum. Einn daginn var drengurinn ekki lengur þarna en ég hugsa ennþá til hans.

Félagsleg meðvitund

Í þessu ráðsetta alþýðu­hverfi, þó vinsælu meðal góðborgara, getur verið nauðsynlegt að brynja sig á leiðinni heim til sín úr leik­skólanum. Á stuttum spotta mætirðu kannski dópuðu barni með betlandi móður sinni, útlima­lausum börnum nýkomnum úr stríði, harðsnúnu gömlu fólki sem skammar þig af því að það kann ekki annað, bókstafs­trúuðum körlum sem hóta konunni sinni með augna­ráðinu ef hún spjallar við þig og grun­samlega vönkuðum foreldrum sem leyfa börnunum sínum að leika sér úti á umferðar­götu. Og þú getur ekkert gert. Svona er bara lífið í borg af þessari stærðar­gráðu með mikla, flókna sögu og þunga­vigtar stjórnmálalíf.

Reyndu að ræða hugtök á borð við einelti eða alkóhólisma við sundur­leitan hóp foreldra í einum af öllum þessum leik­skólum sem eru reknir af foreldrum því í Berlín er botnlaus eftir­spurn eftir leik­skólum.

Í borg sem þessari er algjör­lega tilviljunum háð hver hefur heyrt hvaða hugtak. Ég hef sjaldan upplifað mig eins kjánalega og þegar ég mætti með eineltis­áætlun Reykja­víkurborgar á foreldra­fund í leikskóla þar sem flestir sötruðu bjór og horfðu á mig eins og geimveru meðan ég rembdist við að þýða félagslegt orðfærið – ofan í hóp sem tilheyrði gjör­ólíkum stéttum samfélagsins.

Þá angrar gjarnan íslenska foreldra að börn eigi oftar en ekki að velja sjálf hverjum þau bjóða í afmælið sitt. Viðkvæði einhverra þýskra kunningja minna er að það að velja og líka það að vera hafnað styrki börnin fyrir lífstíð. Ég skil ekki ennþá hvernig það getur styrkt barn að vera útskúfað þegar flest hin börnin fá skreytt boðskort í hólfið sitt, enda voru barna­afmælin eitt heitasta umræðu­efnið meðal íslenskra mæðra í Berlín.

Að herða börnin

Það er mikið lagt upp úr sjálf­stæði í borg sem þessari, kannski ekki að ástæðu­lausu. Strax í leikskóla tíðkast að fara með elstu börnin – og oft líka yngri börn ef foreldrarnir vilja – í fimm daga ferðalag til að njóta nátt­úrunnar (og líka herða þau), stundum í hundruð kílómetra fjarlægð frá foreldrunum, en ef barn drukknar í stöðu­vatni er það lítil baksíðu­frétt í gulu pressunni.

Í leik­skólunum sem sonur minn sótti lagði starfs­fólkið áherslu á að kornung börnin gætu klifrað í svimandi háum leik­tækjum og viðkvæðið að það væri betra að brjóta útlim en sjálfs­traustið. Og þá á alveg eftir að impra á samkeppnis­meðvitund foreldranna þegar börnin hefja skóla­göngu, vitandi að innan örfárra ára verður skorið úr um hvort það fetar akademíska leið í lífinu.

Í leik­skól­unum sem sonur minn sótti lagði starfs­fólkið áherslu á að korn­ung börnin gætu klifrað í svim­andi háum leik­tækjum og við­kvæðið að það væri betra að brjóta útlim en sjálfs­traustið.

Þýska stálið er engin ímyndun.

Rómarveldi nútímans

Hvort ýmsir siðir eru betri eða verri en það sem tíðkast í íslensku samfélagi er ekki mitt að dæma. Berlín er dásamleg og frjáls­lynd borg; eins heillandi og hún er hrikaleg, eins rík og hún er fátæk. Fyrr­verandi borgar­stjórinn Klaus Wowereit vissi hvað hann söng með hinum fleygu orðum: Berlin ist arm, aber sexy.

Og samt ekki beinlínis fátæk því ég hef hvergi dvalið þar sem ég hef haft eins sterklega á tilfinningunni að ég væri í iðrum Róma­veldis nútímans.

Í matvöru­mörkuðum flæðir endalaust framboð úr hillunum af glænýjum ávöxtum & grænmeti, ferskri matvöru og áfengi fyrir lægra verð en maður á að venjast. Í Þýska­landi er hefð fyrir að borða meðvitað og árstíða­bundið, á vorin er sukkað í aspas og hvítvín fyllir tilboðs­hillurnar meðan börnin leggjast á beit hjá sérstökum jarðarberja­sölum. Í haust­uppskerunni fylla fagur­litir jarð­ávextir hillurnar og gjarnan búið að stilla upp viðeigandi rauðvíns­flöskum sem kosta álíka og kakómjólk í 10/11.

Menning smávöru­kaupmanna fær líka að njóta sín; í miðbæjum hverfanna myndast þorps­legir kjarnar með fallegum sérbúðum og kaffi­húsum þar sem hanga hágæða­fjölmiðlar á sérstökum prikum sem fólk neytir með árstíða­bundnu, lífrænu haust­graskers­súpunni eða léttu freyðivíni og jarðar­berjum með kaffi­sopanum til að fagna vorinu. Líka fólk með lítið á milli handanna því það hefur lengi getað leyft sér meira í Berlín en víða annars staðar, þó að það sé breytingum háð.

Hákapitalískir hipsterar

Í Berlín er hægt að njóta sín fátækur og sexí og fyrir vikið hópast þangað ungmenni, listamenn, eilífðarhipsterar, draumóra­manneskjur og fólk í félagslegri neyð; sumt frá öðrum stöðum í Þýska­landi já eða öðrum heims­álfum en fjölmargir koma frá öðrum löndum í Evrópu í leit að betra lífi.

Úr verður erki­berlínsk gróska á mörgum sviðum en ófáir gefast upp eftir eitt eða tvö ár, þó að borgin bjóði upp á mörg tækifæri er töluvert um að fólki bjóðist að vinna spennandi verkefni út á heiðurinn frekar en laun eða að því bjóðist þræla­vinna á lúsa­launum. Og ef þú ætlar að ílengjast í borginni þarftu, líkt og Þjóð­verjar, að borga upphæð sem marga munar um í svokallaðan sjúkra­kassa eftir þann umsamda tíma sem evrópska sjúkra­trygginga­kortið býður upp á.

Berlín er hákapítalísk borg, þrátt fyrir alla hipsterana.

Hlaðborð í hóruhúsum

Fyrir örfáum árum heyrði ég áætlað að það væru fimm hundruð hóruhús í borginni og sum þeirra bjóða upp á hlaðborð, þú getur borgað þig inn fyrir nokkra þúsund­kalla, fengið frían drykk og sofið hjá eins mörgum konum og þú hefur lyst á.

Í gamla Vestur-Berlínar­hverfinu mínu voru þó nokkur hóruhús, stundum í nágrenni við leikskóla, og maður hafði á tilfinningunni að örþreyttu þjónarnir sem kjöftuðu svo glaðbeittir við mann á hræódýru veitinga­húsunum ættu eftir að sofna í fanginu á fyrstu hlaðborðs­konunni eftir ómanneskjulega langan vinnudag, sjálfir búnir að daðra úr sér sálina við kúnnann og leika ýkta staðal­mynd af ítölsku, indversku eða grísku þjóðerni sínu til að fá lífs­nauðsynlegt þjórfé.

Ísland í alþjóðlegu samhengi

Berlín er of flókin og stór­brotin til að það sé hægt að gera henni minnstu skil í pistli. Síðast þegar ég vissi var ekki frétta­skýrandi á vegum Ríkis­útvarpsins sérstak­lega starfandi í Berlín. Einhvern veginn finnst manni að það væri sniðugt að hafa frétta­skýranda á stað sem hefur jafn mikið vægi í stjórn­málum og viðskiptum og höfuðborg Þýska­lands sem er ein af burðar­borgum Evrópu og virkur þátt­takandi í hádramatískum alþjóða­sviptingum. Sem dæmi má nefna tengsl stórra hópa borgarbúa af rússneskum og tyrkneskum ættum og stjórn­málanna í Þýska­landi við bæði Rússland og Tyrkland en fyrir vikið fjalla þýskir fjöl­miðlar af djúpri innsýn um mikilvæg átakamál þar, mál sem oft teygja angana inn í pólitíkina í Berlín og skila sér ekki alltaf á sama hátt inn í fjölmiðla á ensku.

Til að geta skilið sem best stjórnmála­hræring­arnar í Evrópu og heiminum væri ráð að hafa frétta­skýranda starfandi í Berlín, bæði fyrir útvarp og sjónvarp. Ekki bara til að gera stjórn­málunum skil heldur líka táknrænu evrópsku samfélagi þar sem lífs­baráttan er að ýmsu leyti miklu harðari en við eigum að venjast, þrátt fyrir allt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár