Háskólanemum kennt að klámneysla og vændi dragi úr líkunum á kynferðisofbeldi

„Hann talar til að mynda um fólk með geðsjúk­dóma sem aumingja og letingja og réttlætir kynferðis­ofbeldi með því að segja að þeir sem geta ekki varið sig eigi það skilið að vera nauðgað,“ segir í kvörtunar­bréfi nemenda vegna Hannesar Hólmsteins Gissurar­sonar.

Bók Hannesar Hólmsteins Gissurar­sonar stjórnmála­fræði­prófessors, þar sem talað er um að klám­neysla og vændis­kaup dragi úr líkunum á að menn „beiti örþrifa­ráðum eins og nauðgun“, er skyldu­námsefni við stjórnmála­fræði­deild Háskóla Íslands. 

Full­yrðingar sem fram koma í bókinni hafa vakið mikla athygli á samfélags­miðlum undan­farna daga en nýlega undirrituði fjöldi fyrr­verandi og núverandi stjórnmála­fræði­nema yfir­lýsingu þar sem þess er krafist að Hannes verði formlega áminntur og kennslu­gögn hans tekin úr umferð. Er fullyrt að bók Hannesar og kennslu­hættir hans feli í sér kven­fyrirlitningu, fitu­fordóma, kynþátta­fordóma og niður­lægjandi orð um fatlaða.

Sagður réttlæta kynferðisofbeldi

DV birti formlega kvörtun frá 2015 í fyrradag þar sem fullyrt er  að Hannes tali ógætilega um geðsjúk­dóma og kynferðis­ofbeldi í kennslu­stundum. „Hann talar til að mynda um fólk með geðsjúk­dóma sem aumingja og letingja og réttlætir kynferðis­ofbeldi með því að segja að þeir sem geta ekki varið sig eigi það skilið að vera nauðgað. Einnig talar hann um að oft sé hamingja nauðgarans einfald­lega meiri en sorg þolanda,“ segir meðal annars í kvörtuninni.

„Einnig talar hann um að oft sé hamingja nauðgarans einfald­lega meiri en sorg þolanda“

Nokkrum mánuðum áður en kvörtunin barst hafði Hannes verið leystur undan stjórnunar­skyldum sínum við háskólann og starfs­tilhögun hans verið breytt gegn vilja hans. Haldnir voru átaka­fundir vegna málsins þar sem Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrr­verandi hæstaréttar­dómari, kom fram sem lögmaður Hannesar. 

Í gær brást Jón Steinar við gagnrýni á Hannes og kennslu­hætti hans í aðsendri grein í Morgun­blaðinu. „Hann er aðeins að fjalla um þjóð­félagsmál sem eðlilegt er að fjallað sé um í þessari kennslu­grein. Hann er, eins og góðum fræði­manni sæmir, að velta uppi sjónar­miðum sem augljós­lega skipta máli þegar um þau er fjallað,“ skrifaði Jón Steinar sem taldi mála­tilbúnað nemenda og kennara grafal­varlegan.

Liður í samstarfsverkefni með samtökum öfgaflokka

Bókin sem vakið hefur athygli á samfélags­miðlum heitir Saga stjórnmála­kenninga og er sú kennslubók sem notast er við í skyldu­námskeiðinu Stjórnmála­heimspeki við stjórnmála­fræði­deild Háskóla Íslands. Samning bókarinnar hlaut styrk úr Kennslumála­sjóði háskólans, en hún var endur­prentuð með leið­réttingum árið 2017 og er útgáfan liður í samstarfs­verkefninu „Evrópa, Ísland og framtíð kapítalismans“ á vegum frjáls­hyggju­hugveitu Hannesar, Rannsóknar­seturs um nýsköpun og hagvöxt, og AECR, Samtaka evrópskra íhalds­manna og umbóta­sinna. 

Sjálfstæðis­flokkurinn er einn þriggja stjórn­málaflokka á Norður­löndunum sem eiga aðild að umræddum samtökum, en hinir flokkarnir eru Færeyski fólka­flokkurinn og Flokkur Finna, þjóðernis­flokkur sem leggur mikið upp úr hefð­bundnum fjölskyldu­gildum og beitir sér gegn réttindum samkyn­hneigðra.

Aðrir flokkar þekktir fyrir þjóðernis­ofstæki, andstöðu við fóstur­eyðingar og lifnaðar­hætti hinsegin­fólks og jafnvel alræðis­tilburði eiga aðild að samtökunum, en Sjálfstæðis­menn hafa þó hafnað því að um öfga­flokka sé að ræða. 

Hannes var einn helsti hugmynda­fræðingur Sjálfstæðis­flokksins á árunum fram að hruni og vinnur nú að skýrslu um erlenda áhrifa­þætti banka­hrunsins fyrir Bjarna Benediktsson fjármála­ráðherra.

Hannesi var úthlutað verkefnið árið 2014 og stefnt var að því að hann myndi skila skýrslunni sumarið 2015 og fá 10 milljónir fyrir frá hinu opinbera. Miklar tafir hafa orðið á skilum og kynningu skýrslunnar, en nú er gert ráð fyrir að hún verði kynnt og birt í janúar 2018.

Aldrei verið sýnt fram á marktæk orsakatengsl

„Ef maður fær að skoða klámblöð eða klám­myndir eða kaupa blíðu af konu í vændis­húsi, þá ættu líkur að minnka á því, að hann beiti örþrifa­ráðum eins og nauðgun eða lostugu athæfi á almanna­færi til þess að svala kynhvöt sinni.“

Þetta er á meðal full­yrðinga sem fram koma í bókinni, en ekki er vísað í neinar heimildir eða rann­sóknir henni til stuðnings. 

Helgi Gunn­laugs­sonfélags­fræði­pró­fessor kennir afbrota­fræði við HÍ

Stundin hafði samband við Helga Gunnlaugsson, prófessor í félags­fræði sem kennir meðal annars afbrota­fræði við Háskóla Íslands. Aðspurður um orsaka­samband klám­neyslu og kynferðis­brota segir hann að efnið hafi verið rannsakað umtals­vert, ekki síst í Banda­ríkjunum þar sem málefnið hefur lengi verið eldfimt. 

„Reynslurök eru líklega besta leiðar­ljósið í þessum efnum jafnt sem öðru, frekar en það hvað okkur finnst líklegt,“ segir hann. „Sjónar­miðin sem Hannes setur fram heyrast oft. Að klám og vændi dragi úr ofbeldi gegn konum. Við heyrum málflutning af þessu tagi frá til dæmis hags­munaðilum í vændis- og klám­bransanum og stundum frá vændis­konum. Rann­sóknir sem gerðar hafa verið á tíðni ofbeldis gegn konum eins og hún birtist í lögreglu­gögnum og klám­notkun í samfélaginu hafa samt yfirleitt ekki sýnt nein marktæk tengsl þarna á milli - hvorki til hækkunar né lækkunar.“

„Við heyrum málflutning af þessu tagi frá t.d. hags­munaðilum í vændis- og klám­bransanum“

Helgi segir að stundum nefni kynferðis­brotamenn að þeir hafi séð athæfi á borð við það sem þeir gerðust sjálfir sekir um í klámi eða ofbeldis­myndefni. „En þa má alveg eins líta á afstöðu af þessu tagi sem réttlætingu frekar en skýringu á ofbeldinu. Spurningin hvort ofbeldis­fullt fjölmiðla­efni hafi bein áhrif á ofbeldi í samfélaginu er samt alltaf áleitin. Áhrifin eru almennt talin meiri gagnvart viðkvæmari hópum í samfélaginu sem standa veikt. Ungmennum sem eiga fáar viðurkenndar fyrir­myndir og brotna skóla- og fjölskyldu­sögu á bakinu. Áhrif myndefnis er felur í sér ofbeldis­fullt klámefni geti ýtt undir ofbeldi hjá hópum af þessu tagi en áhrifin séu minni á aðra hópa sem standa sterkar að vígi,“ segir hann og bendir á að fjallað sé um efnið í flestum texta­bókum í afbrota­fræði. „Ég nota til dæmis eina bandaríska eftir Larry Siegel (2017) sem kemur inn á rann­sóknir á málefninu.“

Spyr hvort karlfyrirlitning hafi tekið við af kvenfyrirlitningu

Í skyldu­námsefni Hannesar er fjallað sérstak­lega um launamun kynjanna og því velt upp hvort konur fái lægri laun en karlar vegna þess að störf þeirra feli „oftast í sér minni ábyrgð og meiri tækifæri til fjarvista í langan tíma“ auk þess sem Hannes gerir tilraun til að hrekja þá full­yrðingu kynjafræði­prófessors við háskólann að við núverandi aðstæður í samfélagi okkar og menningu njóti karlar kynferðis síns. Bendir Hannes meðal annars á að fleiri karlar láti lífið vegna manndrápa og líkams­árása heldur en konur. 

Þá vitnar Hannes í ummæli Sóleyjar Tómasdóttur, fyrr­verandi borgar­fulltrúa um að það sé „ekkert hræðilegt við það að eiga strák eins og [hún] hélt fyrst“ og spyr hvort „karl­fyrir­litning [hafi] ef til vill tekið við af kven­fyrirlitningu fyrri tíma“. 

Erfitt fyrir feita og fatlaða
að finna sér rekkjunaut

Hannes segir í bókinni að því meiri tíma sem lögreglu­þjónar verji til að eltast við klámsala eða vændis­kaupendur, því minni tíma eigi þeir afgangs til að gæta lífs, lima og eigna borg­aranna fyrir misindis­mönnum.

„Vændis­kaupendur eru margs konar. Ætti sú staðreynd, að þeir eru margir ófrýnilegir karl­skröggar, ekki að vekja samúð frekar en reiði? Hvert eiga þeir að leita, geta geta ekki útvegað sér rekkju­naut á neinn annan hátt en greiða fyrir hann, til dæmis fólk, sem á við fötlun, offitu eða aðra líkams­galla að etja?“

Þá bendir hann á að til eru skemmtistaðir þar sem myndar­legir piltar fækka fötum auk þess sem „sveinar geta vitaskuld stundað vændi ekki síður en stúlkur“. Af þessu dregur Hannes þá ályktun að það sé hæpið að „klám og vændi eigi sér skýr fórnar­lömb í öðru kyninu“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár