Alibaba varar við víðtækum áhrifum veirunnar í Kína

Stærsta sölutorg á netinu í heiminum, Alibaba, varar við því að áhrifin af Kóróna­veirunni verði víðtæk í Kína og að merki um það séu þegar farin að sjást.

Stærsta markaðs­torg fyrir verslun á netinu í Asíu, Alibaba, hefur fundið harkalega fyrir kóróna-veirunni (CVID19) og áhrifum hennar á gang efnahags­mála í Kína.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem Alibaba sendi frá sér í gær, og Bloomberg gerði að umtals­efni. Þessar upplýsingar frá Alibaba þykja sýna, að veiran hefur haft gríðarleg áhrif í Kína, jafnvel meiri en margir höfðu áttað sig, þegar kemur efnahags­legum áhrifum.

Mikill vöxtur var á síðustu þremur mánuðum ársins hjá Alibaba, eða 58 prósent frá fyrra ári, en að undan­förnu hefur verslun hrunið, og jafnvel talið, að samdráttur verði mældur í tugum prósenta á næstu mánuðum, sem er hröð og mikil breyting þvert á þá undir­liggjandi þróun sem hefur verið í Kína þegar kemur að netverslun.

Þrátt fyrir að Alibaba hefði komið mörgum grein­endum á óvart, með góðum árangri og vexti á síðustu þremur mánuðum ársins, þá fór mesta púðrið í tilkynningu fyrir­tækisins í það að útskýra hvers vegna næstu mánuðir gætu orðið erfiðir fyrir Alibaba og kínverska hagkerfið í heild.

Stórkost­lega hefur dregið úr umsvifum í Kína, vegna kóróna­veirunnar, en hún hefur haft þau áhrif, að fólk verslar mun minna, heldur sig heima, og reynir að haga sér þannig, að það smitist ekki eða stuðli að frekari útbreiðslu veirunnar.

Kínversk stjórn­völd hafa á mörgum svæðum gefið út strangar leið­beiningar um hvernig fólki eigi að haga sér, einkum á svæðum í kringum Wuhan, þar sem uppruni veirunnar er.

Til þess að hefta útbreiðslu veirunnar hefur meðal annars verið gripið til útgöngu­banns á tugmilljóna borgar­svæðum, með tilheyrandi lamandi áhrifum á verslun og þjónustu.

Samkvæmt umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC hafa nú 1.523 látist vegna veirunnar, en yfir 66 þúsund smitast. Fyrsta dauðsfallið í Evrópu, vegna veirunnar, hefur verið staðfest, en það var áttræður Kínverji, sem var að koma frá Hubei sem ferða­maður, sem lést. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár