Blóðbað í Afganistan

Í það minnsta hundrað hermenn létu lífið í skotárás Talibana á afganska herinn.

Hundrað hermenn frá Afganistan eru látnir eftir árás Talibana á herstöð í landinu. Árásin var nær alveg fyrirvara­laus en hún átti sér stað inn í lokaðri herstöð skammt frá borginni Mazar-e-Sharif.

Samkvæmt frétt breska ríkis­útvarpsins BBC náðu þrír liðsmenn Talibana að komast inn á svæði herstöðvarinnar, klæddir eins og hermenn, og hófu skothríð skömmu eftir bænatíma hermanna.

Þetta er mann­skæðasta árás sem afganski herinn hefur orðið fyrir í baráttu við Talibana og var vettvangi árásarinn líkt við blóðbað.

„Þegar ég gekk út úr mosk­unni hófu þrír menn í her­manna­fatnaði að skjóta og einnig var skotið úr her­öku­tæki. Það er ljóst að þeir hafa notið aðstoðar ein­hverra í her­stöðinni, því ann­ars hefðu þeir aldrei kom­ist inn,“ seg­ir Mohammad Hussain, sem er af­gansk­ur hermaður sem særðist í árás­inni, í samtali við BBC.

Í það minnsta tíu liðsmenn Talibana féllu, eftir tveggja klukku­stunda skot­bardaga, og var einn liðsmaður þeirra handsamaður, og er nú í haldi yfirvalda. Á meðal þess sem er verið að rannsaka er hvernig árásar­mennirnir komu sér inn á svæðið og hvort þeir hafi átt sér vitorðs­menn innan hers Afganistan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár