Björn ætlar að hætta sem ráðgjafi Willums ef hann getur ekki sinnt því með forstjórastarfinu

Björn Zoëga, forstjóri Karolinska-sjúkra­hússins og nýr ráðgjafi heilbrigðis­ráðherra á Íslandi, þarf að fá leyfi frá yfir­völdum í Stokk­hólmi til að sinna starfinu á Íslandi. Hann segir að hann og heilbrigðis­ráðherra séu sammála um að hann hætti sem ráðgjafi ef hann geti ekki sinn starfinu samhliða forstjóra­starfinu.

Hættir ef hann getur ekki sinnt báðum störfumum
Hættir ef hann getur ekki sinnt báðum störfumum Björn Zoëga, for­stjóri Karol­inska-sjúkra­húss­ins í Svíþjóð, segir að hann muni sinna ráð­gjafa­starfi sínu á Íslandi sam­hliða starfi sínu sem ráð­gjafi heil­brigð­is­ráð­herra, Willums Þórs Þórs­sonar.

Björn Zoëga, forstjóri Karolinska-sjúkra­hússins í Svíþjóð og ráðgjafi nýs heilbrigðis­ráðherra, segist ætla að hætta sem ráðgjafi ef hann getur ekki sinnt starfinu samhliða því að vera forstjóri sænska sjúkra­hússins. Hann segir að hann sinni ráðgjafa­starfinu í frítíma sínum frá starfi sínu sem forstjóri. Þetta kemur fram í viðtali við Björn í sænska blaðinu Dagens Nyheter. Ráðgjafa­störf Björns á Íslandi samhliða forstjóra­starfinu hafa því vakið athygli þar í landi og er yfir­skrift fréttarinnar að forstjórinn fái aukastarf sem ráðgjafi á Íslandi. 

Í fréttinni í sænska blaðinu er haft eftir Birni, sem áður hefur starfað sem forstjóri Land­spítalans á Íslandi: „Það mun koma í ljós á næstu mánuðum hvort það gengur að sinna báðum störfunum samtímis. Ef það gengur ekki þá mun ég hætta að vera ráðgjafi, það erum við heilbrigðis­ráðherrann sammála um.“

Tekur við lyklunumNýr heil­brigð­is­ráð­herra, Willum Þór Þórsson, sést hér taka við lyklunum í ráðu­neyt­inu af Svandísi Svav­ars­dóttur.

Líkti Birni við Leo Messi

Ráðning Björns sem ráðgjafa heilbrigðis­ráðherra, Willums Þórs Þórssonar, var tilkynnt um miðjan desember á vef stjórnar­ráðsins.

Samkvæmt tilkynningunni á Björn að aðstoða við breytingar sem til stendur að gera á starfsemi Land­spítalans. Um ráðninguna sagði Willum Þór heilbrigðis­ráðherra:  „Ljóst er að Land­spítalinn er hryggjar­stykkið í okkar heilbrigðis­kerfi. Spítalinn verður að geta sinnt sínu mikilvæga hlutverki nú og í fram­tíðinni. Þá er gott samspil spítalans við aðra þætti heilbrigðis­kerfisins lykil­atriði. Umtals­verðar breytingar á rekstri og yfir­stjórn Land­spítalans munu eiga sér stað á næstunni og því er gríðar­lega mikilvægt að sérfróðir aðilar með þekkingu á rekstri slíkrar stofnunar séu til að veita ráð við slíka vinnu.“ 

„Ég mun gera þetta í frí­tíma mínum og svo mun ég fara þangað ein­hverjar helgar“
Björn Zoëga

Eitt af því sem vakti nokkra athygli í frétta­flutningi af ráðningu Björns voru þau orð Willums Þórs að það að fá Björn til starfa á Íslandi væri eins og ef knattspyrnu­maðurinn Leo Messi kæmi í íslensku fótbolta­deildina. „Ætli þetta sé ekki eins og að fá Messi í Val og íslensku deildina,“ sagði heilbrigðis­ráðherrann sem sjálfur er gamall og lands­þekktur fótbolta­þjálfari sem meðal annars starfaði í Þrótti og KR. 

Bíður eftir leyfi frá yfirvöldum

Í frétt sænska blaðsins Dagens Nyheter er haft Birni að hann muni sinna starfinu á Íslandi um helgar og og í frítíma sínum. „Ég mun gera þetta í frítíma mínum og svo mun ég fara þangað einhverjar helgar. Ég hef ekki í hyggju að hætta á Karolinska,“ segir hann og undir­strikar að hann sé ekki þátt­takandi í því ferli að ráða nýjan forstjóra yfir Land­spítalann. 

Í sænska blaðinu kemur einnig fram að Björn hafi í fyrra verið með mánaðarlán upp á 241 þúsund sænskar krónur, tæplega 3.5 milljónir íslenskra króna, fyrir störf sín á spítalanum. Þá segir einnig að yfirvöld í Stokk­hólmshéraði, sem rekur Karolinska-spítalann, muni þurfa að taka afstöðu til þess hvort hann fái að sinna þessu auka­starfi eða ekki. Fram kemur að þessi ákvörðun muni liggja fyrir á næstu dögum.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár