Eiturgas í gleymdu stríði

Fyrir einni öld stofn­uðu Spán­verjar útlend­inga­her­sveit til að kveða niður upp­reisn hinna stoltu Rif-búa í Marokkó gegn yfir­ráðum þeirra. Spán­verjar gripu til hinna hræði­leg­ustu glæpa til að kné­setja skæru­liða­for­ingj­ana Abdel­krim.

Spænskir hermenn hreykja sér eftir að hafa aflífað nokkra íbúa í Rif.
Spænskir her­menn hreykja sér eftir að hafa aflífað nokkra íbúa í Rif.

Hann var ekki nema 1,60, jafn­vel þegar hann sperrti sig eins og hann gat. Það þótti ekki mikið fyrir mann sem ætl­aði sér frama í her­liði. Og hann var allur svona heldur rind­ils­legur. Það var því svo­lítið vand­ræða­legt þegar hann stóð nú and­spænis hinum nýju liðs­mönnum sínum, sem allir voru miklu stærri og stæði­legri en hann. Því byrsti hann sig eftir bestu getu þegar hann skip­aði þeim að raða sér upp og heilsa að her­mannasið.

Rödd Francisco Franco var reyndar ekki sér­lega djúp svo hann hafði strax áhyggjur af því að skip­anir hans hljóm­uðu í eyrum þessa hóps eins og gelt í kjölturakka, en hann beit á jaxl­inn og sá sér til léttis að allir hlýddu honum und­ir­eins.

Franco hafði líka sann­ar­lega unnið fyrir því að honum væri hlýtt. Hann hafði áreið­an­lega lent í fleiri bar­dögum og verið særður dýpri sárum en þeir …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár