Sá sem svarar hjá Adam Hótel: „Þetta er smá pirrandi fyrir starfsmenn“

Hót­el­stjóri Adam hótel er síma­laus í útlöndum, sam­kvæmt þeim sem svarar í síma hjá hót­el­inu, sem seg­ist þó ekki vera starfs­maður. Hótelið beinir því til ferða­manna að drekka ekki krana­vatn og selur sjálft vatn í sér­merktum flöskum.

Hótel Adam
Hótel Adam Hótelið er stað­sett ofan við Kram­búð­ina við Skóla­vörðu­stíg. Mynd:

AdaM Hótel á Skóla­vörðu­stíg beinir því til hót­el­gesta að drekka ekki krana­vatn. Þess í stað er boðið upp á að kaupa vatn á flöskum, merkt hót­el­inu, á 400 krónur.

Neyslu­vatn í Reykja­vík er almennt drykkj­ar­hæft. Samkvæmt yfir­lýs­ingu frá Veitum ohf, sem er í eigu Orku­veitu Reykja­víkur, voru öll sýni sem tekin voru úr drykkja­vatni árið 2015 „pott­þétt“. „Þess vegna er engin ástæða til að vara við krana­vatn­inu nema eitt­hvað sé bilað inn­an­húss. Hvað ætli sé bilað?“ er spurt í færslu á Facebook-síðu Veita.

„Hann er í útlöndum“

Þegar hringt er í hót­elið svarar maður, sem hvorki er hót­el­stjór­inn né starfs­maður. 

„Nei, þetta er ekki hót­el­stjór­inn,“ segir hann.

Spurður hvort starfs­fólk ráð­leggi hót­el­gestum að drekka ekki krana­vatnið segir mað­ur­inn: „Heyrðu, ég er no comment með þetta, reyndu að tala við hót­el­stjór­ann, hann getur svarað.“ 

Ekki er hins vegar hægt að ná í við­kom­andi í síma. „Hann er ekki með síma­númer, af því hann er í útlöndum,“ segir mað­ur­inn.

Maðurinn sem svarar í síma­númer hót­els­ins er ekki starfs­maður hót­els­ins. 

Varað við kranavatni
Varað við krana­vatni Hér varar hót­elið við neyslu krana­vatns.

Vatn
Vatn Hér er vatnið sem AdaM hótel selur.
Verðskrá
Verðskrá Vatnið er selt á 400 krónur hver flaska.

Vinur hótelstjórans svarar

En þið ráð­leggið hót­el­gestum að drekka ekki vatnið?

„Nei, ég kann ekki að svara þessu. Ég segi það. Hann getur svarað því.“

Og ert þú starfs­maður á hót­el­inu?

„Nei. Nei. Ég bara svara í sím­ann fyrir starfs­mann, af því hún talar bara ensku, og það eru margir frétta­menn sem eru að hringja. Þetta er alveg non stop. Þetta er smá pirr­andi fyrir starfs­menn, því eng­inn getur svarað þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár