Hvorki Páll né Svandís segjast vita hver verði heilbrigðisráðherra í nýrri stjórn

Fráfar­andi forstjóri Land­spítala segir að ekki eigi að túlka orð hans um að Svandís Svavars­dóttir sé að fara að „láta af embætti“ heilbrigðis­ráðherra sem svo að hann viti til þess að hún verði ekki heilbrigðis­ráðherra í næstu ríkis­stjórn.

Páll Matthíasson fráfarandi forstjóri Landspítala og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Páll Matth­í­as­son frá­far­andi for­stjóri Land­spít­ala og Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Samsett

Páll Matthíasson, fráfar­andi forstjóri Land­spítala, segist í samtali við Kjarnann ekki vita það frekar en aðrir hvort Svandís Svavars­dóttir verði áfram heilbrigðis­ráðherra. Svandís segir sjálf að það hafi ekki verið ákveðið.

Í viðtali á mbl.is fyrr í dag var haft orðrétt eftir Páli, í tengslum við starfslok hans á spítalanum, að nú væru að verða breytingar þar sem „farsæll ráðherra sem hefur verið velviljaður spítalanum er að láta af embætti“.

Þrátt fyrir þetta orðalag segist Páll þó ekkert vita um hvort Svandís muni segja skilið við heilbrigðis­ráðuneytið.

Þurfi að láta af embætti til að geta tekið við nýju

Hann segir sinn skilning á orða­laginu um að „láta af embætti“ þó vera þann að til þess að geta tekið við embætti í nýrri ríkis­stjórn með nýjum stjórnar­sáttmála þurfi ráðherra fyrst að láta af því embætti sem hann var með í þeirri fyrri. En hann sé þó ekki stjórnsýslu­lögfræðingur.

Það hafi einfald­lega verið þetta sem hann átti við, en ekki það að hann vissi til þess að Svandís yrði ekki áfram heilbrigðis­ráðherra í þeirri nýju ríkis­stjórn núverandi stjórnar­flokka, Vinstri grænna, Sjálfstæðis­flokks og Framsóknar­flokks, sem útlit er fyrir að verði mynduð á næstu vikum.

Fyrir kosningar létu formenn beggja samstarfs­flokka VG að því liggja að þeir vildu koma að heilbrigðis­málunum.

Svandís sjálf segir við Kjarnann, sem áður segir, að ekkert sé búið að ákveða um ráðherra­skipan í nýrri ríkis­stjórn. Heilbrigðis­ráðherra segir að hvorki hún sjálf né Páll viti hver verður heilbrigðis­ráðherra – hvort það verði hún eða einhver annar.

Í samtalinu við mbl.is hlyti því að hafa verið rangt eftir forstjóra Land­spítala haft, en Páll sjálfur reyndar stað­festir að hafa notað þetta orðalag.

Túlkun blaða­manns Kjarnans á orðum Páls í samtalinu sem birtist á mbl.is virðist því byggð á misskilningi einum, samkvæmt bæði Páli og Svandísi.

Tímabært að afhenda öðrum keflið

Um starfslok sín segir Páll annars að þau séu tímabær, en hann hefur verið átta ár í forstjóra­starfinu á Land­spítalanum.

„Þetta er heilmikið starf og viðeigandi að það sé skipt reglulega. Þetta eru góð tímamót til að afhenda öðrum keflið,“ segir Páll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár