Páll lætur af störfum sem forstjóri Landspítala

Heil­brigð­is­ráð­herra hefur orðið við ósk Páls Matth­í­as­sonar for­stjóra Land­spít­ala um að hann láti af starfi sínu. Páll lætur af emb­ætti frá og með 11. októ­ber næst­kom­andi.

Páll Matthíasson forstjóri Landspítala lætur af störfum í næstu viku.
Páll Matth­í­as­son for­stjóri Land­spít­ala lætur af störfum í næstu viku. Mynd: Lögreglan

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur orðið við ósk Páls Matth­í­as­sonar for­stjóra Land­spít­ala um að hann láti af starfi sínu. Páll lætur af emb­ætti frá og með 11. októ­ber næst­kom­andi, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu.

Guðlaug Rakel Guð­jóns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri með­ferð­ar­sviðs Land­spít­ala, mun að beiðni ráð­herra taka við stöðu for­stjóra tíma­bundið til ára­móta, þar til skipað hefur verið í emb­ættið að nýju. Páll mun verða nýjum for­stjóra innan handar næstu mán­uði, sam­kvæmt því sem segir í til­kynn­ingu ráu­neyt­is­ins.

Páll hefur gegnt starfi for­stjóra Land­spít­ala í átta ár en þar á undan var hann í rúm fjögur ár fram­kvæmda­stjóri geðsviðs spít­al­ans.

Heil­brigð­is­ráð­herra þakkar Páli sam­starfið: „Land­spít­ali er risa­vax­inn vinnu­staður þar sem feng­ist er við öll flókn­ustu verk­efnin sem á reynir í heil­brigð­is­þjón­ustu við lands­menn. Það er gríð­ar­mikið verk­efni að stjórna þessum spít­ala við venju­legar aðstæður, hvað þá við ein­hverjar erf­ið­ustu aðstæður sem hugs­ast getur eins og í heims­far­aldri,“ er haft eftir Svandís Svav­ars­dóttur í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

[adspot]

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Páli að þakk­læti sé honum efst í huga á þessum tíma­mótum, gagn­vart starfs­fólki spít­al­ans og fjöl­mörgum sam­starfs­stofn­unum:

„Spít­al­inn hefur aldrei verið öfl­ugri en nú með skýra heil­brigð­is­stefnu og reynsl­una af bar­átt­unni við heims­far­aldur í fartesk­inu. Framundan eru áskor­anir á næstu árum, sam­fara gríð­ar­legri upp­bygg­ingu sem þarf að hald­ast í hendur við trygga mönnun. Á þessum tíma­punkti tel ég því við­eig­andi að nýr for­stjóri taki við stjórn spít­al­ans,“ er haft eftir Páli.

Guðlaug Rakel tekur við keflinu

Sem áður segir tekur Guðlaug Rakel Guð­jóns­dóttir við sem for­stjóri Land­spít­ala tíma­bundið til ára­móta. Hún hefur verið fram­kvæmda­stjóri með­ferð­ar­sviðs síðan haustið 2019.

Guðlaug Rakel er fædd árið 1961. Hún braut­skráð­ist sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur árið 1986 og starf­aði sem slíkur í 10 ár. Í kjöl­farið sinnti hún ýmsum stjórn­un­ar­störfum, meðal ann­ars í lyfja­geir­anum, en einnig sem hjúkr­un­ar­for­stjóri á St. Jós­efs­spít­ala og sviðs­stjóri hjúkr­unar á Land­spít­ala.

Guðlaug Rakel hefur lokið MBA-gráðu og bætt við sig þekk­ingu í lýð­heilsu­vís­indum. Hún tók við starfi fram­kvæmda­stjóra bráða­sviðs við stofnun þess árið 2009 og gegndi síðan starfi fram­kvæmda­stjóra flæð­is­viðs frá 2014 til 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár