Orri Hauksson nýr í stjórn Isavia

Ingimundur Sigur­pálsson er hættur sem stjórnar­formaður Isavia en hann hætti einnig nýverið sem forstjóri Íslands­pósts.

Ingimundur Sigur­pálsson er hættur sem stjórnar­formaður ISAVIA, en Orri Hauksson, forstjóri Símans, kom nýr inn í stjórn félagsins í hans stað.

Aðrir í stjórn eru Matthías Imsland, Eva Baldurs­dóttir, Nanna Gunnlaugs­dóttir og Valdimar Halldórsson.

Ársfundur Isavia fór fram í dag, og tilkynnti Ingimundur þar um áform sín um að hætta, en hann hætti einnig sem forstjóri Íslands­pósts á dögunum, eftir fjórtán ára starf fyrir fyrir­tækið.

Forstjóri Isavia er Björn Óli Hauksson en íslenska ríkið á Isavia, sem á og rekur flug­vellina í landinu. Eigið fé félagsins um mitt ár í fyrra nam 32,5 milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár