Þátttaka í bólusetningum á Íslandi eykst

Þátttaka er nú hvergi undir 90% fyrir 12 mánaða, 18 mánaða eða 4 ára bólu­setningar. Hún nær aftur á móti ekki 95% fyrir mislinga­bólu­setningu 18 mánaða barna.

Þátttaka í ung- og smábarna­bólu­setningum á árinu 2018 var mun betri en skráð þátttaka í sömu bólu­setningum árin á undan. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sóttvarna­læknis um þátttöku í almennum bólu­setningum á Íslandi á árinu 2018.

Þá segir í skýrslunni að þátttaka árganga sem fjallað var um árið áður hafi nú lagast töluvert. „Þátttaka er nú hvergi undir 90 prósentum fyrir 12 mánaða, 18 mánaða eða 4 ára bólu­setningar, en því miður nær hún ekki 95 prósentum fyrir mislinga­bólu­setningu 18 mánaða barna.“

Í frétt Embættis land­læknis um málið segir að mislinga­faraldur hérlendis síðastliðinn vetur hafi verið þörf áminning um nauðsyn þess að halda góðri þátttöku í bólu­setningum hérlendis. Þátttaka yngstu árganganna í mislinga­bólu­setningum sé víða undir 95 prósentum og hætt sé við að faraldur geti komið upp ef smit berst inn á leikskóla þar sem nokkur hópur óbólusettra barna kemur saman. Lítil hætta sé þó á stórum mislinga­faraldri í samfélaginu almennt, þar sem þátttaka eldri árganga séu um og yfir 95 prósent.

Þátttakan í samfélaginu þarf að vera fullnægjandi

Í skýrslunni kemur fram að bólu­setning sé ein áhrifa­ríkasta og kostnaðar­hagkvæmasta aðgerð gegn alvarlegum smit­sjúkdómi sem völ er á dag. Íslendingar hafi löngum verið fljótir að taka í notkun ný bóluefni þökk sé framsýni stjórn­valda og góðum viðtökum almennings en til að almenn bólu­setning nái fullum árangri þurfi þátttakan í samfélaginu að vera fullnægjandi.

Fyrsta árlega opinbera uppgjör um þátttöku í bólu­setningum hér á landi var birt á árinu 2013 en fyrir þann tíma hafði þátttakan verið áætluð út frá sölutölum bólu­efnanna.

Andstaða foreldra ekki um að kenna

Í bólu­setninga­skýrslum undan­farinna ára hefur komið fram ófullnægjandi þátttaka í bólu­setningum við 12 mánaða, 18 mánaða og fjögurra ára aldur. Bent hefur verið á nokkrar hugsanlegar skýringar eins og vanskráningu bólu­setninga, ófullnægjandi innköllunar­kerfi heilsu­gæslunnar í bólu­setningar og ónákvæmri búsetu­skráningu barna. Í skýrslunni segir að ekki sé talið að andstöðu foreldra við bólu­setningar sé um að kenna og sé það stutt af niður­stöðum ýmissa rannsókna og skoðana­kannana.

„Á undan­förnum tveimur árum hefur verið innt mikil vinna af hendi við að bæta þátttöku hér í almennum bólu­setningum. Árlegri fræðslu fyrir heilbrigðsstarfsmenn var hleypt af stokkunum fyrir tveimur árum, fræðsla fyrir almenning hefur verið aukin, innköllunar­kerfi heilsu­gæslunnar hefur verið bætt og áhersla verið lögð á bætta skráningu í bólu­setninga­grunn.

Öll þessi vinna hefur leitt til þess að nú er þátttaka í almennum bólu­setningum hér á landi ásættanleg á öllum aldurs­skeiðum eins og fram kemur í þessari skýrslu en ásættanleg þátttaka er forsenda þess að hér brjótist ekki út faraldrar alvarlegra smit­sjúkdóma. Hins vegar vekur athygli í þessari skýrslu talsverður munur á þátttöku milli lands­svæða sem krefst nánari skoðunar,“ segir í skýrslunni.

Áminning að vera stöðugt á varðbergi

Sóttvarnar­læknir rifjar upp að á síðastliðnum vetri hafi komið hér á landi upp lítill faraldur af mislingum en vegna samhentra viðbragða og góðrar bólu­setningar­þátttöku í samfélaginu þá hafi náðst að stemma stigu við frekari útbreiðslu. „Þessi reynsla á að vera okkur áminning um að stöðugt þarf að vera á varðbergi varðandi viðbrögð og fyrir­byggjandi aðgerðir gegn alvarlegum smit­sjúkdómum. Góð þátttaka í bólu­setningum gegnir lykil­hlutverki í slíkum fyrir­byggjandi aðgerðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár