Friðarsamkomulag í sjónmáli?

Vonir hafa vaknað um það á mörkuðum, að tolla­stríð Banda­ríkjanna og Kína sé möguleika að komast á endastöð, með samkomu­lagi í sjónmáli. Óvissa er þó enn um það.

Tolla­stríð Banda­ríkjanna og Kína - staðið hefur stóran hluta af forsetatíð Donalds Trumps Bandaríkja­forseta - hefur haft alvarlegar afleiðingar um allan heim, að mati Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins (AGS).

Í nýlegu mati sjóðsins, segir að hagvaxtar­horfur hafi versnað að stóru leyti vegna neikvæðra áhrifa af tolla­stríði Banda­ríkjanna og Kína. Það hefur aukið óvissu, dregið úr fjár­festingu og eftir­spurn, og skapað vandamál í atvinnu­lífi víða, stað­bundið.

Í stuttu máli hefur tolla­stríðið milli þessara risa í austri og vestri, snúist um að tollar hafa verið settir - oft nær fyrirvara­laust - á fjölmarga vöru­flokka. Það hefur leitt til verð­hækkana og eða hreinlega hamlað því að viðskipti hafi átt sér stað. Markmiðið hefur verið - í það minnsta í orði og stefnu Banda­ríkjanna - að auka umsvif heima fyrir eða verja störf þar.

Að mati AGS hefur niður­staðan, á heildina litið, til þessa verið sú, að alþjóðleg viðskipti hafa fengið á sig mikið högg, og enginn hefur hagnast sérstak­lega á tolla­stríðinu.

Greint var frá því í dag, að meiri gangur væri nú í viðræðum Kína og Banda­ríkjanna, og sagði í umfjöllun Wall Street Journal, að drög að samkomu­lagi væri nú á borðinu, sem miðaði að því að tollar tækju ekki gildi 15. desember, á fjölmargar vöru­tegundir. Wang Shouwen, aðstoðar­viðskipta­ráðherra Kína, sem hefur leitt viðræður fyrir hönd Kína varðandi þetta samkomulag, samkvæmt umfjöllun Bloomberg, segir að Kína muni auka innflutning á vörum frá Banda­ríkjunum og öðrum löndum, vegna þessa samkomu­lags. +

Banda­ríkin hafa sagt í tilkynningu, að samkomu­lagið muni liðka fyrir innflutningi frá Kína til Bandaríankjna, en ennþá er einungis um eitt skref að ræða, í því að ljúka hinu mikla tolla­stríði, sem verðlagt hefur verið á meira en 500 milljarða Bandaríkja­dala. Erfitt er þó að fullyrða um slíkt, vegna mikilla óbeinna áhrifa á hagkerfi heimsins.

Ísland á mikið undir

Í greiningum Seðla­banka Íslands, meðal annars í Peninga­málum, hefur komið fram að tolla­stríðið og neikvæðar afleiðingar þess á alþjóða­mörkuðum, hafi haft neikvæð áhrif á Íslandi. Það birtist meðal annars í minni eftir­spurn eftir útflutnings­vörum frá Íslandi, og margfeldis­áhrifum alþjóða­vætt viðskiptalíf. Ísland á allt undir greiðu aðgengi að mörkuðum, en tolla­stríðið hefur haft verulega hamlandi áhrif.

Í umfjöllun Bloomberg segir að svo geti farið, að samkomulag milli Kína og Banda­ríkjanna, um viðskipta­forsendur í inn- og útflutningi milli landanna, geti náðst á næstu misserum. Erfitt er þó að spá fyrir um tíma­setningar, þar sem óvæntir atburðir - meðal annars yfir­lýsingar Trump á Twitter - hafa til þessa sett nokkurt strikinn í reikninginn, þegar kemur að þróun mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár