Trump: Kínverjar gætu „auðveldlega“ leyst vandann í Norður-Kóreu

Forseti Banda­ríkjanna heldur áfram að ögra Kínverjum með færslum á Twitter-svæði sínu.

Donald J. Trump, forseti Banda­ríkjanna, segir Kínverja „ekkert“ hafa gert til að leysa úr vandanum í Norður-Kóreu. Þeir geti „auðveldlega“ leyst úr vandanum, en eyði tímanum í að tala um ekkert.

Þetta segir Trump á Twitter-svæði sínu, í röð af tístum sem hann birti í gær og í dag.

Spennan á Kóreu­skaga er nú orðin áþreifanleg, en í yfir­lýsingu frá Norður-Kóreu, vegna eldflauga­skots í síðustu viku, segir að landið búi nú yfir lang­drægum flaugum sem geri því mögulegt að skjóta á Banda­ríkin hvenær sem er.

Skotum Norður-Kóreu inn í japanska efnahags­lögsögu hefur verið harðlega mótmælt, og hafa yfirvöld í Japan krafist þess að allt verði gert til að hindra frekari skot, og að hernaði verði beitt ef þess þarf.

Banda­ríkin hafa stóreflt hernaðar­umsvif sín á Kóreu­skaga og hefur Trump sagt að herinn sé tilbúinn til þess að „taka ábyrgð“ á hættunni sem tilraunir Norður-Kóreu með lang­drægar flaugar hafa skapað. Her Suður-Kóreu, dyggilega studdur Banda­ríkjunum, hefur einnig eflt æfingar við landamæri Norður-Kóreu á undan­förnum vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár