Spyr forsætisráðherra hvort Bjarni hafi verið vanhæfur og hvort Lilja hafi brotið siðareglur

Þingmaður Viðreisnar vill að forsætis­ráðherra svari með hvaða rökum hún hafi hafnað viðvörunar­orðum Lilju Alfreðs­dóttur um söluna á hlut í Íslands­banka og með hvaða rökum hún hafi fallist á þá aðferð sem Bjarni Benediktsson lagði til um hana.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs­dóttir, þingmaður Viðreisnar, hefur beint skriflegri fyrir­spurn til Katrínar Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra þar sem hún spyr hana meðal annars um hvort tilefni hafi verið fyrir Bjarna Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, að víkja sæti við meðferð á sölu á hlut ríkisins Íslands­banka vegna sjónar­miða um vanhæfi.

Þorbjörg fjallar um fyrir­spurnina í færslu á Twitter og birtir þar með skjáskot af umfjöllun Vísis um viðtal við Bjarna í Sprengis­andi á Bylgjunni í gærmorgun sem ber fyrir­sögnina: „Bjarni um pabba sinn: „Var honum bannað að kaupa?““. Er þar vísað í að félagið Hafsilfur, í eigu Benedikts Sveins­sonar föður Bjarna, var á meðal þeirra 207 fagfjárfesta sem fengu að kaupa hluti ríkisins í Íslands­banka sem seldir voru í lokuðu útboði 22. mars síðastliðinn.

Fyrir­spurn Þorbjargar er alls í fjórum liðum. Í henni spyr hún forsætis­ráðherra einnig um gagnrýni Lilju Alfreðs­dóttur, ferðamála- viðskipta- og menningar­mála­ráðherra, sem hefur sagt opinber­lega að hún hafi verið mótfallin þeirri aðferð sem beitt var við sölu á bréfunum í Íslands­banka, til valins hóps fjárfesta, og að fátt hefði komið henni á óvart um það hver útkoman varð. Lilja hefur auk þess sagt að hún hafi komið þessum sjónar­miðum fram í aðdrag­anda útboðsins, en forsætis­ráðherra á móti bent á að Lilja hafi ekki bókað neitt um andstöðu hennar á fundum ráðherra­nefndar um efnahagsmál sem þær sitja báðar í. Þorbjörg spyr Katrínu með hvaða rökum hún hafi hafnað sjónar­miðum og viðvörunar­orðum Lilju og með hvaða rökum hún hafi fallist á þá aðferð sem Bjarni lagði til um fyrir­komulag sölunnar.

Þá spyr Þorbjörg forsætis­ráðherra hvort hún telji að Lilja hafi gerst brotleg við siða­reglur ráðherra með því að upplýsa ekki um sjónarmið sín fyrr en eftir að útboðið var afstaðið, en siða­reglur ráðherra mæla fyrir um að ráðherra leyni ekki upplýsingum sem varða almannahag nema lög bjóði eða almannahags­munir krefjist þess.

Að endingu spyr hún hvers vegna látið hafi verið hjá líða að fara að þeim skilyrðum laga um sölu­meðferð á eignar­hluta ríkisins í fjármála­fyrirtækjum um samkeppni sem raktar eru í megin­reglum laganna. Þar segir meðal annars að gæta skuli þess að skilyrði þau sem tilboðs­gjöfum eru sett séu sanngjörn og að þeir njóti jafnræðis.

Samkvæmt þingskapa­lögum hefur forsætis­ráðherra 15 virka daga til að svara skrif­legum fyrir­spurnum.

Öllum markmiðum náð

Fjármála- og efnahags­ráðuneytið birti lista yfir þá 207 aðila sem fengu að kaupa 22,5 prósent hlut íslenska ríkisins í Íslands­banka í lokuðu útboði með tilboðs­aðferð, þar sem hlutirnir voru seldir 2,25 milljörðum króna undir markaðs­virði þrátt fyrir að umfram­eftirspurn hafi verið næstum tvöföld.

Við birtingu listans kom í ljós að félag föður Bjarna hafði keypt hlut fyrir tæplega 55 milljónir króna. Bjarni sagði í kjölfarið við Morgun­blaðið að hann hafi ekki haft vitneskju um þátttöku föður síns. Hann sagði við Frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis að hann hefði beðið sitt nánasta fólk um að taka ekki þátt og að það hefði komið sér á óvart að sjá föður sinn á meðal kaupenda.

Í viðtali við Sprengi­sand á Bylgjunni í gærmorgun var Bjarni svo aftur spurður út í kaup föður síns og svaraði með eigin spurningu: „Var honum bannað að kaupa?“ Í því viðtali sagði hann ennfremur að öllum markmiðum með sölunni hafi verið náð en gagnrýndi stjórnar­andstöðuna og fjölmiðla harðlega fyrir þeirra umfjöllun um banka­söluna.

Sagði Lilju ekki hafa bókað neitt

Lilja sagði í Morg­un­­blað­inu í 11. apríl að hún hefði ekki verið hlynnt þeirri aðferða­fræði sem var beitt við sölu á 22,5 pró­­sent hlut í Íslands­­­banka 22. mars síð­­ast­lið­inn. Hún hafi viljað almennt útboð, en ekki að bréf­in yrðu seld til val­ins hóps fjár­­­­­festa. Lilja, sem er einn þriggja ráð­herra rík­­is­­stjórnar sem situr í ráð­herra­­nefnd um efna­hags­­mál og end­­ur­­skipu­lagn­ingu fjár­­­mála­­kerf­is­ins, sagðist hafa komið þeim sjón­­­ar­miðum sínum skýrt á fram­­færi í aðdrag­anda útboðs­ins. „Ég hef alltaf talið skyn­­­sam­­­legt að taka lít­il og hæg­fara skref. Hafa vaðið fyr­ir neðan sig. Ekki ein­blína á verð, held­ur gæði fram­­tíð­­ar­­eig­enda. Önnur leið var hins veg­ar val­in og því miður er fátt sem kem­ur á óvart í þessu máli og hver út­kom­an varð.“

Auk Lilju sitja Bjarni og Katrín í ráð­herra­­nefndinni. Sú nefnd á meðal ann­­ars að vera stefn­u­­mót­andi við upp­­­bygg­ingu fjár­­­mála­­kerf­is­ins auk þess sem henni er ætlað að vera „vett­vangur sam­ráðs og sam­ræm­ingar við end­­ur­­skoðun fjár­­­mála­­kerf­is­ins í sam­ræmi við þá áherslu í sátt­­mála rík­­is­­stjórnar að breið sátt náist um end­­ur­­skipu­lagn­ingu fjár­­­mála­­kerf­is­ins á Ísland­i“.

Katrín brást við gagnrýni Lilju með því að segja að hún hafi ekki óskað að færa neitt til bókar um sölu­ferli á hlut Íslands­banka þegar málið var rætt í rík­is­stjórn og ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár