Aðför að grundvallarréttindum launafólks ógnar friði og stöðugleika

Í 72 prósent landa heims hefur verkafólk engan eða takmarkaðan aðgang að réttar­kerfinu sé á því brotið.

Mótmæli
Mótmæli Mynd: EPA

Skipulögð aðför að grundvallar­réttindum launa­fólks, svo sem verkfalls­réttinum og réttinum til að mótmæla, ógnar víða friði og stöðug­leika. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóða­sambands verkalýðs­félaga (ITUC) en frá þessu er greint á vef ASÍ.

Í frétt ASÍ um málið segir að ofbeldi og frelsis­sviptingar á verka­fólki sem reynir að standa á sínu hafi ágerst á Indlandi, í Tyrklandi og Víetnam.

Samkvæmt skýrslunni eru Alsír, Bangladesh, Brasilía, Filips­eyjar, Gvatemala, Kasakstan, Kólumbía, Saudi-Arabía, Tyrkland og Zimbabve þau verstu þegar kemur að ofbeldi og brotum á réttindum verka­fólks. Í 72 prósent landa heims hefur verkafólk engan eða takmarkaðan aðgang að réttar­kerfinu sé á því brotið.

Í skýrslunni kemur fram að Ísland sé í flokki 1 ásamt Ástralíu, Danmörku, Finnlandi, Þýska­landi, Írlandi, Ítalíu, Hollandi, Noregi, Slóvakíu, Svíþjóð og Úrúgvæ. Það þýðir að í þessum löndum er brotið á réttindum verka­fólks „stöku sinnum“. Í flokki 5 er ástandið verst – þar sem réttindi eru ekki tryggð – en þar eru 34 lönd og þeirra á meðal eru þau lönd sem áður voru upptalin.

Stjórnvöld víða um heim þagga markvisst niður í óánægjuröddum

Sharan Burrow, framkvæmda­stjóri ITUC, segir að frá Hong Kong til Máritaníu og Fillipseyjum til Tyrklands reyni stjórn­völd markvisst að þagga niður í óánægju­röddum meðal verka­fólks með því að takmarka málfrelsi og hindra fundarhöld.

„Hnignun samfélags­sáttmálans milli launa­fólks, ríkis­stjórna og atvinnu­rekenda hefur orðið til þess að fjöldi landa sem meina verka­fólki að vera í verkalýðs­félögum fór úr 92 árið 2018 í 107 árið 2019. Og fjölgun slíkra landa var mest í Evrópu þar sem helmingur ríkjanna útilokar hópa verka­fólks frá aðild að stéttar­félögum. Ákveðin stór­fyrirtæki neita starfs­fólki sínu um réttindi sem áður þóttu góð og gild,“ segir Burrow.

Hann bætir því við að enginn verka­maður eigi að vera skilinn eftir vegna þess að atvinnu­rekandinn ákveði einhliða að taka upp viðskipta­módel þar sem sjálfsögð réttindi á vinnu­markaði þvælist fyrir græðginni. Fyrirtæki sem hafa hingað til hunsað rétt starfs­manna sinna standi núna frammi fyrir mótmælum víða um heim. Þetta séu fyrirtæki eins og Uber, Amazon og Ryanair.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár