Samningar SGS og SA í höfn: Kauptaxtar hækka um að lágmarki 35 þúsund

Kaup­taxtar hækka frá 1. nóvember í ár um að lágmarki 35.000 krónur á mánuði. Hagvaxtar­auka sem átti að koma til greiðslu 1. maí verður flýtt. Samningar hafa náðst milli Starfs­greina­sambandsins og Samtaka atvinnu­lífsins.

Frá undirritun samninganna í dag.
Frá und­ir­ritun samn­ing­anna í dag.

Samninga­nefnd Starfs­greina­sambands Íslands (SGS) hefur undir­ritað nýjan kjara­samning við Samtök atvinnu­lífsins vegna starfa á hinum almenna vinnu­markaði. Sautján af nítján aðildar­félögum SGS undir­rituðu samninginn í húsa­kynnum ríkis­sátta­semjara í dag. Um er að ræða svokallaðan skammtíma­samning en gildis­tími samningsins er frá 1. nóvember til 31. janúar 2024. „Þess má geta að þetta er í fyrsta sinn sem kjara­samningur á almennum vinnu­markaði gildir frá sama tíma og sá eldri rennur út og í því eru fólgin mikil verðmæti fyrir launafólk,“ segir í tilkynningu á vef SGS.

Samkvæmt samningnum, sem enn a eftir að kynna fyrir félags­mönnum, hækka kaup­taxtar frá 1. nóvember í ár um að lágmarki 35.000 krónur. Að auki felur samningurinn í sér lagfæringu á launa­töflunni, sem gerir það að verkum að hækkun getur orðið allt að 52.000 kr. á mánuði.

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra sagði við RÚV að henni heyrist af samtölum sínum við forystu­menn SGS og SA, að samningarnir séu mjög metnaðar­fullir þótt þeir séu til skamms tíma.

Merkilegt sé að samningur taki við af samningi sem sé ekki algengt á íslenskum vinnu­markaði. „Við verðum svo bara að sjá hvernig gengur og verðum að vona að nú þegar ísinn hefur verið brotinn að það finnist farsæl lausn í öðrum kjara­viðræðum.“

Það skipti miklu máli að vera kominn með þennan samning í dag. „Ég vona að sjálfsögðu að aðrir finni lausnir þó að þær séu til skamms tíma, eðlilega, vegna óviss­unnar í efnahags­málum.“

VR, Land­samband íslenskra verslunar­manna (LÍV) og samflot iðn- og tækni­greina að þau hefðu tekið höndum saman í kjara­viðræðum sínum við SA. Innan þess samflots eru um 59 þúsund félags­fólk.

Bónusar í fiskvinnslu hækka um 8 prósent

Samkvæmt samningi SGS og SA hækka laun þeirra sem ekki taka laun eftir kaup­töxtum, þ.e. eru á mánaðar­launum, um 33.000 kr. frá 1. nóvember. Desember- og orlofs­uppbætur taka jafnframt hækkunum. Desember­uppbót á árinu 2023 verður 103.000 kr. og orlofs­uppbót verður 56.000 kr. á orlofs­árinu sem hefst 1. maí 2023. Kjara­tengdir liðir samningsins hækka um 5% frá 1. nóvember og þá hækka bónusar og akkorð í fisk­vinnslu um 8 prósent sem mun skila fiskvinnslu­fólki á bilinu 6.000-34.000 kr. hækkun á mánuði.

Hagvaxtarauka flýtt

Einnig náðist samkomulag um flýtingu hagvaxtar­auka sem þýðir að hagvaxtar­aukinn sem átti að koma til greiðslu 1. maí 2023 verður flýtt og verður hann að fullu efndur með hækkun 1. nóvember. Það mun skila ávinningi sem nemur 78.000 kr. eða tæpum 6.000 kr. á mánuði og er hann meðtalinn í áður­nefndum taxta- og mánaða­launa­hækkunum. Jafnframt var gert samkomulag um að með þessari hækkun og flýtingu komi ekki til frekara endurmats á hagvaxtar­auka skv. kjara­samningnum frá 2019.

Kjara­samningurinn er fram­lenging á Lífs­kjara­samningnum sem gilti frá 2019-2022. Samnings­aðilar eru sammála um að samningurinn styðji við kaupmátt launa auk þess að veita heimilum og fyrir­tækjum fyrirsjáanleika á miklum óvissu­tímum. Samningurinn geti þannig byggt undir stöðug­leika og skapað forsendur fyrir langtíma­samningi.

Nú tekur við kynning og atkvæða­greiðsla um samninginn meðal félags­manna. Tilkynnt verður um afgreiðslu samningsins mánudaginn 19. á að liggja fyrir ekki síðar en mánudaginn 19. desember næst­komandi.

Eftirfarandi félög eiga aðild að samningnum:

AFL Starfs­greina­félag, Aldan stéttar­félag, Báran stéttar­félag, Drífandi stéttar­félag, Eining-Iðja, Framsýn stéttar­félag, Stéttar­félagið Samstaða, Verkalýðs- og sjómanna­félag Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómanna­félag Kefla­víkur og nágrennis, Verkalýðs- og sjómanna­félag Sand­gerðis, Verkalýðs­félag Akraness, Verkalýðs­félag Snæfellinga, Verkalýðs­félag Suður­lands, Verkalýðs­félag Vestfirðinga, Verkalýðs­félag Þórs­hafnar, Verkalýðs­félagið Hlíf og Stéttar­félag Vestur­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár