Amazon komið með verðmiða upp á 109 þúsund milljarða

Tækni- og smásölu­risinn Amazon varð fyrr í dag annað fyrir­tækið sem nær verðmiða upp á þúsund milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 109 þúsund milljörðum króna.

Amazon varð rétt í þessu annað skráða fyrir­tækið í sögunni til þess að ná verðmiða upp á eitt þúsund milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 109 þúsund milljörðum króna. Hitt fyrir­tækið sem hefur náð þessum verðmiða er Apple, en það náði verð­miðanum fyrr á þessu ári.

Jeff Bezos, forstjóri og stofnandi Amazon, á ennþá 17 prósent hlut í fyrir­tækinu og er um þessar mundir langsamlega ríkasti maður heims, en eignir hans eru metnar á tæplega 180 milljarða Bandaríkja­dala og munar þar langsamlega mest um hluti hans í Amazon.

Bezos stofnaði Amazon upphaf­lega sem bóksölu á internetinu, árið 1994, en frá 1997 hefur fyrir­tækið verið skráð á markað. Ekkert fyrirtæki í sögunni hefur vaxið jafn hratt og Amazon, hvort sem horft er til tekna eða markaðs­virðis.

Það er til marks um hversu hár verðminn er á Amazon, að fyrir þá upphæð sem hann nemur, um 109 þúsund milljarða, þá mætti kaupa allar fasteignir á Íslandi tæplega 14 sinnum, sé mið tekið af fasteigna­mati.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár