Ungt Miðflokksfólk í alþjóðastarfi tengdu MAGA-hreyfingunni

Ungt Miðflokks­fólk hefur sótt viðburði erlendis tengda neti hægri­sinnaðra hugveitna. Fram­bjóðandi til borgar­stjórnar fór fyrir hönd Miðflokksins á ráðstefnu með Trump-áhrifa­vald­inum James O’Keefe og hollenskum aktífista sem varð þekktur fyrir hómófóbísk fúkyrði og að syngja nasista­söngva.

Hlédís Maren og James O'Keefe
Hlédís Maren og James O'Keefe Fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins var í við­tali hjá Trump-tengdum aktí­vista.

Ungt Miðflokks­fólk hefur undan­farið setið fundi erlendis þar sem áhrifa­valdar úr MAGA-hreyfingunni og aktíf­istar úr evrópskum hægri-öfga­hreyfingum deila með þeim sviðinu.

Fram­bjóðandi í 4. sæti á lista Miðflokksins til borgar­stjórnar, Hlédís Maren Guðmunds­dóttir, hefur sem fulltrúi Miðflokksins sótt viðburði á vegum hugveitnanna New Direction og Nordic Sidebar á Norður­löndunum. Nordic Sidebar er hugveita sem Katie Hagström, stjórnar­maður Nordic Republicans og milli­liður við Trump-tengdu samtökin Turning Point, stýrir.

Á slíkum fundi í Helsinki í febrúar var Hlédís Maren í viðtali hjá James O’Keefe, alræmdum aktífista frá Banda­ríkjunum sem hefur dreift fölskum upplýsingum um að forseta­kosningunum 2020 hafi verið stolið frá Donald Trump.

Heimildin hefur áður greint frá því að alþjóða­fulltrúi Miðflokksins sem einnig er í framboði í Reykjavík, Breki Atlason, sé Íslands­fulltrúi Students for Liberty, félags sem styrkt er í gegnum net alþjóðlegra samtaka sem fá fjármagn sitt að hluta frá bandarískum auðmönnum eins og Charles …

Kjósa
47
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    MAGA is a pest and pandemic!
    5
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Ha?er Altað komast aftur í gamla farið eins og áður fyrr?mer sýnist það á óllu svo hann Sigmundur greyið er þa laumunasisti eftir alt saman enda var kallinn aldrei ánægður með það að hafa mig í fjölskyldunni sinni þegar hann sá mig fyrstþótthannleti ekki á neinu bera
    3
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Sækjast sér um líkir.
    10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

MAGA-tengingar Miðflokksins

GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sagði umfjöllun Heim­ild­ar­innar um tengsl flokksins við MAGA-hreyfinguna „full­kominn þvætting“ en staðfesti fund sinn með Repúblikönum í Gautaborg. Aðrir flokks­menn hafa nú sagt frá tengslum við ECR-flokkinn og Heritage Foundation en eftir standa spurningar um hver borgaði.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár