Farage segir af sér og býður sig aftur fram

Nigel Farage, leiðtogi breska Umbóta­flokksins, hefur sagt af sér. Nýlega komst upp um margra milljóna gjafir sem hann hafði þegið frá auðmönnum. Fargage ætlar að bjóða sig fram á ný og stillir auka­kosningunum sem afsögnin leiðir af sér sem átök milli almennings og valda­kerfisins.

Breski stjórn­mála­maðurinn Nigel Farage, leiðtogi hins hægri­sinnaða Umbóta­flokks, tilkynnti óvænt í dag að hann myndi segja af sér þing­mennsku. Hann ætlar að bjóða sig fram í auka­kosningum um sætið, sem fram fara vegna afsagnar hans.

Tilkynningin kom í kjölfar margra vikna rann­sóknar á fjármálum hans. Farage, sem er þekktur fyrir hlutverk sitt í að sannfæra Breta um að yfirgefa Evrópu­sambandið, hefur verið undir smásjá vegna meintra óuppgefinna gjafa.

„Ég hef ákveðið að íbúar Clacton eigi að dæma um gjörðir mínar,“ sagði hann og vísaði þar til kjör­dæmisins í suðaustur­hluta Englands sem hann hefur verið fulltrúi fyrir í tvö ár. „Þetta verða auka­kosningar þar sem almenningur tekst á við valda­kerfið,“ bætti hann við í sjónvarps­yfirlýsingu.

Segist ekki hafa gert neitt rangt

Farage hefur neitað að hafa gert nokkuð rangt, en tilraunir hans til að verja fjármál sín í viðtölum hafa aðeins hellt olíu á eldinn, …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár