Boðar launað starfsnám og sérstaka styrki til kennaranema

Lilja Alfreðs­dóttir, menntamála­ráðherra, segir að horft sé fram á kennara­skort hér á landi. Hún segir það grafal­varlegt mál og stefnir á að leggja fram frumvarp næsta haust um breytt náms­fyrir­komulag kennara­nema.

Lilja Alfreðs­dóttir menntamála­ráðherra vill breyta náms­fyrir­komulaginu í kennara­námi þannig að starfsnám kennara á fimmta ári verði launað. Ásamt því vill hún að Lána­sjóður íslenskra námsmanna veiti kennara­nemum sérstaka styrki. Lilja segir að kennara­skortur blasi við ef ekkert verður gert og hugmyndin sé því að það verði fjárhags­legur hvati úr Lána­sjóðnum í afmarkaðan tíma til þess að auka aðsóknina í námið. Frá þessu er greint í Frétta­blaðinuí dag.

Horfa fram á kennaraskort

Lilja segir að rótækra aðgerða sé þörf til auka aðsókn í kennaranám og til að bæta starfsumhevrfi kennara. Hún stefnir á að laga­frumvarp um efnið verði klárt næsta haust en hugmyndin er að veita kennara­nemum styrki úr LÍN með það að markmiði að til verði fjárhags­legur hvati í afmarkaðan tíma til að auka aðsókn í kennara­námið. Hún segir að aðsókn í kennaranám hafi farið minnkandi og þótt það megi sjá vísbendingar um smávægilega aukningu í námið í vorönn í fyrra þá segir Lilja ljóst að fjöldi kennara sé ekki nægur til þess að mæta nýliðun á öllum skóla­stigum. „Auk þess er brottfall úr náminu mikið og náms­framvinda kennara­nema hæg. Við erum að horfa fram á kennara­skort og það er grafal­varlegt mál,“ segir Lilja.

Í umfjöllun Frétta­blaðsins segir frá því að sam­kvæmt árs­skýrslu und­anþágu­nefnd­ar grunn­skóla skóla­árið 2017 til 2018 voru 434 um­sókn­ir um und­anþágu til þess að kenna í grunn­skól­um án til­skil­inna leyfa tekn­ar til af­greiðslu nefnd­ar­inn­ar. Þá er meðal­aldur starfandi kennara hár og útlit fyrir að margir reynslu­miklir kennarar muni brátt hverfa frá kennslu vegna aldurs.

Þarf ekki fela í sér mismunun gagnvart nemendum í öðrum greinum.

Aðspurð segir Lilja aðgerðina ekki endilega þurfa að fela í sér mismunun gagnvart nemendum í öðrum greinum. Hún segir að í Noregi sé svipað fyrir­komulag um kennara­námið og mælst vel fyrir. Ásamt því hafur Lilja skipað aðgerðahóp sem vinnur að því að bæta starfs­umhverfi kennara almennt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár