Lág laun og álag flæmir kennara burt úr skólum

Þörf er á aðgerðum til að sporna við brott­falli kenn­ara úr stétt­inni en vanda­málið hefur verið fyr­ir­séð í nokkurn tíma.

Kennarasambandið hefur neyðst til að stytta tímann sem félagar í sambandinu eiga rétt á greiddum sjúkradagpeningum um fjórðung.
Kenn­ara­sam­bandið hefur neyðst til að stytta tím­ann sem félagar í sam­band­inu eiga rétt á greiddum sjúkra­dag­pen­ingum um fjórð­ung. Mynd: Pexels

Að hafa góðan kenn­ara er eitt mesta lán í líf­inu, bæði vegna þess að margir dvelja lung­ann úr ævinni á skóla­bekk og skiptir miklu máli að upp­lifunin sé góð og einnig geta kenn­arar haft mót­andi áhrif á nem­endur sína. Fréttir þess efnis að kenn­arar hrek­ist úr starfi vegna lélegra launa og álags í starfi hafa birst af og til í fjöl­miðlum en ástandið virð­ist ekki batna þrátt fyrir það.

Kennarar í Fella­skóla í Reykja­vík sendu frá sér ályktun í lok nóv­em­ber en í henni segir að nú þegar kjara­samn­ingar grunn­skóla­kenn­ara eru lausir vilji kenn­arar skól­ans koma því á fram­færi að kenn­ara­skortur sé orð­inn við­var­andi vandi í skólum Reykja­víkur og hópur leið­bein­enda fari stækk­andi. „Það kemur óneit­an­lega niður á gæðum alls skóla­starfs og hefur í för með sér aukið álag á þá kenn­ara sem starfa við skól­ana,“ segir í álykt­un­inni.

Sjúkrasjóður tæmist hratt

Jafn­framt segja þau að aukin veik­indi kenn­ara sé fórn­ar­kostn­aður mik­ils álags. Það sýni meðal ann­ars staða sjúkra­sjóðs Kenn­ara­sam­bands­ins. Þar er vísað í frétt sem birt­ist í Morg­un­blað­inu fyrir stuttu þess efnis að gríð­ar­leg aukn­ing lang­tíma­veik­inda meðal kenn­ara síð­ustu tvö ár hafi valdið því að Kenn­ara­sam­bandið hefur neyðst til að stytta tím­ann sem félagar í sam­band­inu eiga rétt á greiddum sjúkra­dag­pen­ingum um fjórð­ung. Haft er eftir Kristínu Stef­áns­dóttur, for­manni stjórnar sjúkra­sjóðs sam­bands­ins, að ef ekki hefði verið gripið til þess­ara skerð­inga hefði sjóð­ur­inn tæmst á einu ári.

Bent er á í álykt­un­inni að sam­kvæmt nið­ur­stöðum bók­unar 1 í kjara­samn­ingi hafi verk­efnum verið bætt á kenn­ara, sem sagt nýju náms­mati og inn­leið­ingu á raf­rænu skrán­ing­ar­kerfi. Allt sé þetta mjög tíma­frekt og bæt­ist við þann tíma sem kenn­ari hefur til dag­legs und­ir­bún­ings kennslu. Þá sé starfs­lýs­ing kenn­ara óljós að ýmsu leyti og virð­ist enda­laust hægt að koma á þá verk­efnum sem skila sér ekki alltaf til nem­enda.

Stjórnvöld hafa ekki hugað nægilega vel að dvínandi aðsókn

Rík­is­end­ur­skoðun hefur varað við og bent á vand­ann en í skýrslu á vegum stofn­un­ar­innar sem kom út í í lok febr­úar á þessu ári segir að minnk­andi aðsókn í kenn­ara­nám við Háskóla Íslands og Háskól­ann á Akureyri sé alvar­leg vís­bend­ing um yfir­vof­andi kenn­ara­skort hér á landi. Á tíma­bil­inu 2009 til 2016 fækk­aði skráðum nýnemum í kenn­ara­nám þess­ara háskóla úr 440 í 214 og í heild fækk­aði skráðum nem­endum við kenn­ara­deildir skól­anna úr 1.925 í 1.249.

Jafn­framt kemur fram að þetta skýri að stórum hluta mikla fækkun útgef­inna leyf­is­bréfa til leik-, grunn- og fram­halds­skóla­kenn­ara á und­an­förnum árum. „Nú er svo komið að háskól­arnir ná ekki að braut­skrá nægi­lega marga kenn­ara til að við­halda eðli­legri nýliðun í kenn­ara­stétt­inni,“ segir í skýrsl­unni. Að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar hafa stjórn­völd ekki hugað nægi­lega vel að dvín­andi aðsókn í kenn­ara­nám og aðsteðj­andi hættu á kenn­ara­skorti.

Rík­is­end­ur­skoðun hvetur stjórn­völd til að grípa til aðgerða til að sporna við þess­ari þróun. Auk kenn­ara­skorts geti fækkun kenn­ara­nema haft í för með sér minni mögu­leika á sér­hæf­ingu í kenn­ara­námi og þar með eins­leit­ari menntun þeirra. Það geti aftur á móti leitt til minni gæða í skóla­starfi og haft slæm áhrif á náms­ár­angur barna og ung­linga.

Ná ekki að brautskrá nægilega marga kennara

Frá árinu 2009, þegar kenn­ara­nám var lengt úr þremur árum í fimm, hefur mikil fækkun verið á skráðum nem­endum við kenn­ara­deildir Háskóla Íslands og Háskól­ans á Akureyri. Segir í fyrr­nefndri skýrslu að nú sé svo komið að háskól­arnir ná ekki að braut­skrá nægi­lega marga kenn­ara til að við­halda eðli­legri nýliðun í stétt­inni. Kenn­ara­deildir Háskóla Íslands og Háskól­ans á Akureyri eru einnig hvattar til leita leiða til að laða nýnema í kenn­ara­nám og til þess að auka skil­virkni í kenn­ara­námi.

Talið er að um 60 pró­sent mennt­aðra leik­skóla­kenn­ara og um helm­ingur mennt­aðra grunn­skóla­kenn­ara séu við kennslu­störf í leik- og grunn­skólum lands­ins. Það bendir til að kenn­ara­skortur verði ekki ein­göngu leystur með fjölgun kenn­ara­nema heldur sé einnig mik­il­vægt að laða mennt­aða kenn­ara til starfa og hvetja þá til að halda áfram störfum innan stétt­ar­innar.

Tími til aðgerða

Kennarar í Fella­skóla eru sam­mála um að til að hægt sé að upp­fylla kröfur um skóla án aðgrein­ingar þurfi stór­aukið fjár­magn, sér­fræði­þekk­ingu og reynslu. Fram­kvæmdin eins og hún er núna sé enn einn álags­þátt­ur­inn í starfi grunn­skóla­kenn­ara. Þau segj­ast binda miklar vonir við kom­andi kjara­samn­ing og að krafan sé ein­föld. Í fyrsta lagi vilja þau sam­bæri­leg laun á við aðra sér­fræð­inga með sama mennt­un­ar­stig, í öðru lagi minna álag í starfi og í þriðja lagi bætt starfs­um­hverfi.

„Nú er tími aðgerða. Kenn­ara­skort­ur­inn er raun­veru­leiki sem bitnar á skóla­starfi fram­tíð­ar­innar og við spyrjum: Er það sú fram­tíð sem við viljum búa kom­andi kyn­slóðum? Við trúum því að sveit­ar­fé­lögin vilji sjá fram­sækna skóla sem veita öllum nem­endum jöfn tæki­færi,“ segja kenn­arar í Fella­skóla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár