Risaskjaldbökur eru „sannarlega mestu sæfarar jarðar“

Þær snúa alltaf aftur til sömu strandar og þær sjálfar klöktust út á. Svo sækja þær ávallt í sömu ætis­stöðvarnar. Grænar risa­skjaldbökur rata alltaf heim þó að þær villist oft mörg hundruð kílómetra af leið.

Græn risaskjaldbaka getur synt þúsundir kílómetra í leit að varpstöðvunum.
Græn risa­skjald­baka getur synt þús­undir kíló­metra í leit að varp­stöðv­unum.

Þegar sæskjaldbökur klekjast úr eggjum sínum og koma upp úr sandi strand­anna skríða þær í ofboði til sjávar og hverfa svo sjónum ofan í hið stóra haf. Mörgum árum seinna koma svo kvendýrin aftur til nákvæmlega sömu strandar og þau klöktust út á. Þá hafa þau sum hver farið mörg þúsund kílómetra leið. Og þegar þau snúa til baka gera þau það í einum tilgangi: Að verpa eggjum sínum.

Svo hefst þessi hringrás á ný. Og svo kynslóð fram af kynslóð.

Lengi hefur verið talið að risa­skjald­bökurnar sem synda um í heims­höfunum noti segulsvið jarðar til að rata en margt hefur þó verið á huldu um hegðun þeirra. Í niður­stöðum nýrrar rann­sóknar, sem birtar voru nýverið í vísinda­tímaritinu Current Biology, og gerð var m.a. með því að setja GPS-tæki á risa­skjaldbökur, kemur fram að þó að þær hafi að lokum fundið ströndina sína hafi þær ekki synt þangað stystu leið. Þær notist því við nokkurs konar gróft landakort á ferða­laginu.

„Ég held að við höfum haft þá ímynd í höfðinu að skjald­bökur ferðuðust um eins og lest á teinum,“ segir Alex Rattray, meðhöfundur rann­sóknarinnar og vísinda­maður við Deakin-háskóla í Ástralíu. „En við komumst að því að þær gera mistök, þær hitta ekki á áfanga­staðinn, þær fara fram hjá honum og að þær leita hans mikið.“

Skjald­bökurnar snúa ekki aðeins aftur til fæðingar­staðar síns heldur fara þær líka aftur og aftur til sömu svæða í ætisleit. Aðrar rann­sóknir hafa jafnvel sýnt fram á að svo heit­bundnar eru þær ætis­stöðvum sínum að þær synda jafnvel framhjá svæðum þar sem mun meira æti er að finna.

Vísinda­mennirnir sem þátt tóku í rann­sókninni festu GPS-tæki á 35 sæskjaldbökur er þær voru á varp­stöðvum sínum. Um leið og þær höfðu orpið fóru þær í sjóinn og leituðu uppi ætis­stöðvarnar. En þangað fóru þær fæstar beina leið. Margar þeirra fóru oft mörg hundruð kílómetra af leið áður en að því kom.

„Okkur kom einnig á óvart hversu langa leið sumar þeirra fara,“ var haft eftir Graeme Hays, aðal­höfundi rann­sóknarinnar sem er prófessor við Deakin-háskóla, í tilkynningu um rann­sóknina. „Sex af skjald­bökunum fóru meira en 4.000 kílómetra leið með austur­strönd Afríku, frá Mósambík til Sómalíu. Þannig að þessar skjald­bökur fara meira en 8.000 kílómetra fram og til baka frá varp­stöðvum sínum á Chagos-eyjum.“

Rann­sóknin leiddi einnig í ljós að þó að dýrin virtust oft villast af leið um tíma hefðu þau hæfileika til að taka rétta stefnu á ný. Engin þeirra villtist algjör­lega. „Þær fundu að lokum leiðina heim,“ er haft eftir Rattray í tilkynningu. „Þetta eru ótrúlegar skepnur. Og þær eru sannarlega mestu sæfarar jarðar.“

Grænar risa­skjaldbökur, eins og þær sem fylgst var með í rann­sókninni, eru í útrýmingar­hættu. Net og eyði­legging búsvæða er þeirra helsta ógn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár