Viðskiptafléttur í Vatnsmýrinni

Félagið sem hyggst reisa stærsta hótel Íslands í Vatns­mýrinni var áður í eigu Tortóla­félags. Í dag er Jóhann Halldórsson eigandi þess en félagið átti áður höfuð­stöðvar Íslenskrar erfða­greiningar. Vís­indag­arðar Há­skóla Íslands keyptu eignina á nærri 7 millj­arða.

Eigandi S8
Eigandi S8 Jóhann Hall­dórs­son er núver­andi eig­andi félags­ins.

Í kvöld­fréttum RÚV í gær var greint frá því að eignarhalds­félagið S8 ehf. hygðist reisa átján þúsund fermetra hótel í Vatns­mýrinni á næstu árum. Ef hótelið verður að veruleika verður það eitt það stærsta á Íslandi. Félagið, sem lögmaðurinn Jóhann Halldórsson er forsvari fyrir, var áður í eigu Tórtóla­félags, Tenco Holding Services SA. Þetta kemur fram í ársreikningum félagsins fyrir árið 2008. Eiganda­skipti hafa þó orðið á einhverjum tíma­punkti frá því en samkvæmt nýjasta ársreikningi sem er fyrir árið 2013 er félagið í eigu Angus ehf, sem er skráð í eigu Jóhanns Halldórs­sonar.

S8 ehf, sem var í eigu Tortóla­félags og hyggst reisa hótel í Vatns­mýrinni, skilaði engum ársreikningum yfir þetta fimm ára tímabil sem telja má sérkennilegt.

Talsvert var fjallað um félagið fyrir nokkrum árum í tengslum við eignar­hald þess á höfuð­stöðvum erfðatæknis­fyrir­tækisins Íslenskrar erfða­greiningar við Sturlu­götu 8 í Vatns­mýrinni. Greint var frá því árið 2013 félagið hefði selt eignina til Vísinda­garða Háskóla Íslands. Morgun­blaðið greindi frá síðar á sama ári að kaupverð hafi verið 6,75 millj­arðar króna. Þar áður greindi DV frá því að leiguverð Íslenskar erfða­greiningu á húsnæðinu hefði verið í hærra lagi, eða um 570 milljónir á ári. 

Félagið S8 var stofnað árið 2005 og virðist fyrst og fremst verið ætlað að halda utan um eignar­hald á Sturlu­götu 8. Húsið hafði áður verið í eigu eignarhalds­félagsins Festingar sem var í eigu Ólafs Ólafs­sonar, nú fanga á Kvía­bryggju, og fjár­festinga­félagsins Sunds í eigu Jóns Kristjáns­sonar og Páls Þórs Magnússonar. Jóhann núverandi eigandi S8 ehf. var framkvæmda­stjóri Festingar. Þegar félagið var stofnað var Jóhann eini eigandi þess en vending varð á því árið 2007 þegar eignar­haldið á hlutafé færðist yfir til fyrr­nefnds Tortóla­félags.

Samkvæmt frétt RÚV um hótelið í Vatns­mýrinni hefur verkefnið ekki verið fjár­magnað. „En síðan verður það væntanlega einhver af íslensku viðskipta­bönkunum sem mun styðja við verkefnið,“ sagði Jóhann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár