„Hef meiri áhyggjur af hundrað daga hömlum á tjáningarfrelsi en einhverri virðisaukaskattsprósentu“

Fjöldi þingmanna telur Ríkis­útvarpið vera rót vandans í íslensku fjölmiðla­umhverfi. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Vinstri grænna, beindi sjónum að lögbanninu á umfjöllun um fjármál valdhafa og tregðu hins opinbera til að svara fjöl­miðlum.

Sérstök umræða um stöðu einka­rekinna fjölmiðla sem fram fór á Alþingi í hádeginu hverfðist að verulegu leyti um Ríkis­útvarpið og stöðu þess á auglýsinga­markaði.

„Það er bara staðreynd að miðað við það fyrir­komulag sem við höfum haft, þá er búið að skekkja stöðuna með þeim hætti að það verður ekki við unað. Fíllinn í stofunni heitir Ríkis­útvarpið,“ sagði Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins sem átti frumkvæði að umræðunni. 

Nefnd sem skipuð var af Illuga Gunnars­syni, þáverandi menntamála­ráðherra, árið 2016 lauk störfum og afhenti skýrslu um rekstrar­umhverfi einka­rekinna fjölmiðla í dag. Þar er meðal annars hvatt til þess að Ríkis­útvarpið fari af auglýsinga­markaði og að áfengis- og tóbaks­auglýsingar verði heimilaðar. Viðskiptaráð hefur sent út frétta­tilkynningu þar sem tillögunum er fagnað og var málflutningur margra þingmanna í takt við áherslur nefndarinnar.  

Helga Vala Helga­dóttir, þingkona Samfylkingarinnar, furðaði sig á málflutningi máls­hefjanda um Ríkis­útvarpið og taldi vegið að stofnun sem hefði gegnt ómissandi hlutverki fyrir íslenskt samfélag í gegnum tíðina. 

Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, var hins vegar að miklu leyti sammála Óla Birni um að staða RÚV væri rót vandans á íslenskum fjölmiðla­markaði.

„Ástæðan fyrir skakkri samkeppnis­stöðu á íslenskum fjölmiðla­markaði er inngrip ríkisins í þennan markað, gríðar­lega mikill stuðningur við einn tiltekinn fjölmiðil, Ríkis­útvarpið,“ sagði Þorsteinn og velti því upp hvort aðkoma ríkisins að því að skaffa hágæða íslenskt dagskrár­efni ætti ef til vill frekar að vera í gegnum samkeppnis­sjóði heldur en rekstur fjöl­miðils. 

Una Hildar­dóttir, vara­þingkona Vinstri grænna, sagði mikilvægt að standa við bakið á rannsóknar­blaða­mennsku. „Því beini ég því til hæstvirts mennta- og menningar­mála­ráðherra að skoða mögu­leikann á sérstökum sjóði fyrir rannsóknar­blaða­mennsku sem hægt væri að starf­rækja á svipaðan hátt og launasjóð lista­manna,“ sagði hún. 

Sagði hið opinbera þurfa að horfa í eigin barm

Andés Ingi Jónsson, þingmaður sama flokks, benti á að það væri fleira en fjárhagslegar áhyggjur sem gerðu fjöl­miðlum lífið leitt á Íslandi.

„Þar getur hið opinbera litið nokkuð í eigin barm þegar kemur að því að svara upplýsinga­beiðnum. Þá er ég ekki bara að tala um ráðuneytin sem oft draga lappirnar fram úr öllu hófi með að svara sjálfsögðum einföldum beiðnum fjölmiðla, heldur líka okkur hér á Alþingi sem virðumst eiga mjög erfitt með að svara greinar­gott þeim fyrir­spurnum sem að okkur er beint varðandi rekstur þingsins,“ sagði Andrés. 

„Svo verð ég að nefna það sem enginn hefur nefnt og kemur mér nokkuð á óvart, sem er lögbannið á Stundina. Við erum í þeirri stöðu að fulltrúi framkvæmda­valdsins, fyrir hundrað dögum, setti lögbann á umfjöllun um hagsmuna­tengsl æðstu valdhafa. Ég, frú forseti, hef meiri áhyggjur af hundrað daga hömlum á tjáningar­frelsi en einhverri virðis­aukaskatts­prósentu.“ 

Fyrirvari: Fjöl­miðillinn Stundin er aðili að lögbanns­málinu, sem hér er fjallað um, og hefur verið stefnt af Glitni Holding fyrir Héraðs­dómi Reykja­víkur þar sem staðfestingarmál er enn yfir­standandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Viðskipti Bjarna

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár