Trump harðlega gagnrýndur fyrir tollamúra sína

Þjóðar­leiðtogar í Evrópu telja bandarísk stjórn­völd vera að brjóta gegn alþjóð­legum lögum um viðskipti, með því að setja á tolla á stál og ál.

Þjóðar­leiðtogar víða um heim, ekki síst í Evrópu, hafa harðlega gagnrýnt Donald Trump Bandaríkja­forseta og bandarísk stjórn­völd, fyrir að setja á sértæka tolla á innflutt stál og ál. Tollurinn er 25 prósent á innflutt stál og 10 prósent á innflutt ál, en ákvörðunin um hækkunina á tollunum tekur gildi í dag, og nær til Evrópu­sambandsins, Kanada og Mexíkó.

Í yfir­lýsingu frá Jean-Claude Junker, forseta framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins, segir að ákvörðunin um að leggja á fyrr­nefnda tolla sé óásættanleg og að Evrópu­sambandið muni taka málið upp innan Alþjóða­viðskipta­stofnunarinnar enda samræmist hún ekki alþjóð­legum viðskipta­samningum. Þá er jafnvel talið að Evrópu­sambandið muni bregðast við með tollum sem beinast gegn Banda­ríkjunum.

Í umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC segir að Macron Frakk­lands­forseti hafi hringt í Bandaríkja­forseta og sagt að þetta væru mikil mistök.

Svipaðar raddir hafa heyrst víða um heima, meðal annars í Bretlandi, þar sem aðgerðir Bandaríkja­stjórnar eru sagðar vanhugsaðar og feli í sér verndar­stefnu á kostnað hagsmuna heildarinnar.

Heildar­innflutningar á stáli og áli frá Evrópu, Kanada og Mexíkó til Banda­ríkjanna í fyrra, nam 23 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 2.500 milljörðum króna. Innflutningurinn nam í heild um 48 milljörðum Bandaríkja­dala.

Aðgerðir bandarískra yfirvalda eru einnig umdeildar í Banda­ríkjunum, en margir telja aðgerðirnar til þess fallnar að hefta frelsi í viðskiptum og grafa undan samkeppnis­hæfni atvinnu­greina sem byggja meðal annars á úrvinnslu úr stáli og áli. Í versta falli geti kostnaður aukist hratt, rekstur versnað og störfum þannig fækkað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár