Sögðu Sjálfstæðisflokkinn bara vilja ræða leka, ekki bankasöluna eða skýrsluna um hana

Heitar umræður voru á þingi í dag um leka á skýrslu Ríkis­endur­skoðunar til fjölmiðla tæpum sólar­hring áður en hún átti að birtast. Stjórnar­andstaðan benti á að þingmenn Sjálfstæðis­flokks virtust ekki hafa miklar áhyggjur af leka á drögum á skýrslunni.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Alþingi/Skjáskot

„Sjálfstæðis­flokkurinn vill ekki ræða banka­söluna. Sjálfstæðis­flokkurinn vill ekki ræða skýrslu um banka­söluna. Sjálfstæðis­flokkurinn vill ræða ótímabæra birtingu á skýrslu um banka­söluna. Það er innan­húsmet í meðvirkni hér að falla.“ Þetta sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs­dóttir, þingmaður Viðreisnar, í umræðum á Alþingi í dag þar sem þingmenn og vara­þingmenn Sjálfstæðis­flokks og þingmenn stjórnar­andstöðu­flokka tókust á um alvarleika þess að skýrslu Ríkis­endur­skoðunar um Íslands­banka­söluna hafi verið lekið til fjölmiðla tæpum sólar­hring áður en til stóð að birta hana.

Morgun­blaðið hefur fjallað mikið um lekann á skýrslunni undan­farna daga og í prent­útgáfu blaðsins hefur verið fjallað svipað mikið um hann og efnis­atriði skýrslunnar það sem af er viku, auk þess sem tveir leiðarar hafa verið lagðir undir málið og einn Staksteinapistlill.

Í umræðunum á þingin lýstu Sjálfstæðis­flokksins yfir miklum áhyggjum af því að trúnaðar­gagn hefði lekið og forseti Alþingis, Birgir Ármannsson úr Sjálfstæðis­flokki, lýsti því yfir í lok umræðu að lekinn á skýrslunni yrði tekinn fyrir í forsætis­nefnd auk þess sem væntingar væru til þess að hann yrði ræddur á vettvangi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar.

Stjórnar­andstöðu­þingmenn kölluðu málflutning Sjálfstæðis­manna leikrit og spurðu þá um áhyggjur þeirra af leka á drögum að skýrslunni, sem einungis þrír þingmenn höfðu fengið að sjá. Þeir þrír þingmenn sitja í ráðherra­nefnd um efnahagsmál og eru Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, og Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og viðskipta­ráðherra, en Vísir fjallaði fyrr í vikunni um upplýsingar úr drögunum. Þá var spurt hvað þingmenn Sjálfstæðis­flokksins ætluðust til að forseti Alþingis myndi gera í þessu máli og hvort hann ætti að fara yfirheyra fjölmiðla um hver heimildar­maður þeirra væri.

Sagði lekann rof á drengskaparheiti þingmanna

Umræðan hófst á því að tveir vara­þingmenn Sjálfstæðis­flokks, þeir Björgvin Jóhannesson og Friðjón R. Friðjónsson, stigu í pontu undir liðnum störf þingsins og lýstu yfir miklum áhyggjum af því að skýrsla Ríkis­endur­skoðunar hafi lekið til nokkurra fjölmiðla á sunnudag, tæpum sólar­hring áður en til stóð að birta hana.

Björgvin sagði í ræðu sinni að skýrslan hafi verið afhent sem trúnaðar­gagn. „Einhvern veginn rataði skýrslan samt beint í fjölmiðla og er orðin fyrsta frétt tæpum sólar­hring áður en til stóð að opinbera hana. En það hefur varla verið minnst á þennan leka og trúnaðar­brests hér í þingsal. Finnst hæstvirtum þing­mönnum þetta í alvörunni eitthvað léttvægt mál, að trúnaðar­gögnum nefndar­manna Alþingis sé lekið beint í fjölmiðla? Mér finnst það alls ekki og myndi ekki vilja liggja undir grun sem nefndar­maður og hafa gerst sekur um slíkt athæfi.“

Hann sagði að honum fyndist leki á trúnaðar­gögnum í fjölmiðla vera einfald­lega rof á drengskapar­heiti þingmanna og ekki leiðin til að efla traust Alþingis. „Lekinn gengis­fellir störf þingsins og sendir þau skilaboð út á við að okkur þing­mönnum sé ekki treystandi fyrir trúnaðar­gögnum. Og ef hæstvirtum. þing­mönnum er alvara um að auka virðingu og traust Alþingis þá er nauðsynlegt að komast til botns í þessu máli.“

Friðjón sagðist forviða yfir lekanum og sagði að Alþingi myndi gjalda fyrir trúnaðar­brestinn. Fólk sem ætti erindi við nefndir þingsins geti ekki treyst þinginu. „Fyrir 30 árum sirkabát líkti þingmaður og ráðherra starfs­háttum á Alþingi við gagn­fræðaskóla og hlaut bágt fyrir. Ég held að flestir þeir sem ég var með í Réttó á sínum tíma hafi haldið trúnað lengur og betur en þessi þingmaður stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar sem var skjótari en skugginn að skjóta skýrslunni upp í Efstaleiti. Ég held að það blasi við, virðulegi forseti, að Alþingi setur niður við þennan trúnaðar­brest og forseti hlýtur að bregðast við málinu.“

„Á forseti að fara í einhvern lögguleik?“

Þingmenn stjórnar­andstöðunnar tóku þennan málflutning óstinnt upp í næsta lið þing­fundar, um fundar­stjórn forseta. Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hóf þau andsvör með því að spyrja hver það væri sem græddi á lekanum. „Hver er það sem græðir á því að umræða og frétta­flutningur hverfist um þennan leka frekar en þær brota­lamir sem fjallað er um í skýrslunni sjálfri og ábyrgð ráðherra á þeim? Ekki eru það þeir þingmenn sem vilja að hér fari fram skýr og fókuseruð umræða um skýrsluna sjálfa. Ég verð að segja að ég er hundfúll að þessi skýrsla hafi lekið til fjölmiðla áður en stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd kom saman til að fjalla um hana. Ég er líka hissa á því að drög að skýrslunni hafi lekið. Drög sem engir þingnefnd og enginn þingmaður, nema þeir þrír sem eiga sæti í ráðherra­nefnd um efnahagsmál, höfðu aðgang að. Ég ætla hins vegar ekki í einhvern dylgju­leik hérna um hvern kunni að hafa framið eitthvað trúnaðar­brot.“ Hann biðlaði svo til þingmanna Sjálfstæðis­flokksins sem tekið höfðu til máls um að fara ekki framúr sér í ásökunum þegar ekki lægju fyrir neinar vísbendingar um að trúnaðar­brotið hafi átt sér stað hjá nefndar­mönnum stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar.

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, sagði að það yrði ágætt ef þingmenn Sjálfstæðis­flokksins hefðu áhyggjur af því hvernig upplýsingar um sölu­ferlið á Íslands­banka hafi lekið út daganna áður en það fór fram með þeim afleiðingum að viðskipti með bréf í bankanum þurrkuðust upp, en Fjármála­eftirlitið er með það til rann­sóknar sem stendur. „Ég hef meiri áhyggjur af þeim leka.“

Hann spurði þá Björgvin og Friðjón svo hverju þeir væru eiginlega að kalla eftir. „Á forseti að fara í einhvern lögguleik? Á forseti að yfirheyra þingmenn? Á hann að hafa í gegnum póst­hólfin hjá þing­mönnum? Á að fara að yfirheyra fjölmiðla? Á að fara að taka frétta­stofu RÚV á teppið og spyrja hver er heimildar­maðurinn?“

Sóru af sér dylgjur

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, sagði að það hafi verið svo augljóst að eitthvað í líkingu við þessa leka­umræðu myndi gerast. „Tilgangurinn með því að leka skýrslunni er nákvæmlega enginn vegna þess að það kostar bara svona væl. Ef við eigum að fara að tala um einhverjar dylgjur þá er bara um einar dylgjur að ræða hérna sem er vert að segja, að það hafi verið þingmenn Sjálfstæðis­flokksins sem láku skýrslunni.“ Þeir hagnist mest á því að vera með orðræðu um leka. „Ég ætla hins vegar ekki að nota slíkar dylgjur. Ég ætla bara að vekja athygli á þeim. Þetta er ekki alvarlegt mál.“

Berglind Ósk Guðmunds­dóttir, þingmaður Sjálfstæðis­flokks sem situr í stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd, fór í pontu og sagðist vera orðlaus. Hún skildi ekki hvernig Birni Leví dytti í hug að saka „nefndar­menn stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar Sjálfstæðis­flokksins um að hafa lekið skýrslunni [...] þetta er gjör­samlega fárán­legur málflutningur. Ég ætla bara að koma hér upp og bera af mér sakir.“ Björn Leví kallaði í kjölfarið úr þingsal að hann hefði alls ekki gert það og aðrir þingmenn tóku undir það. Hildur Sverris­dóttir, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins sem situr líka í nefndinni, tók í sama streng og sór líka af sér sakir.

„Um þetta fjallar Morgunblaðið ekki“

„Það er ótrúlegt að fylgjast með þessu leikriti,“ sagði Jóhann Páll þegar hann steig öðru sinni í pontu. „Sjálfstæðis­menn koma hér í salinn [...] og gera að því skóna að þingmenn úr stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd hafi lekið trúnaðar­gagni. Þegar hálf­partinn er dylgjað á móti að kannski hafi einhver þingmaður Sjálfstæðis­flokksins lekið trúnaðar­gagni þá er það allt í einu alveg voðalegur glæpur og fólk svoleiðis yfir sig hneykslað á því.“

Hann hvatti svo forseta Alþingis, formann stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar og nefndina í heild til að eiga fund með ríkis­endur­skoðanda og reyna að fá frá honum upplýsingar um að það sé þingmaður í stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd sem hafi lekið skýrslunni. „Var það þá kannski líka þingmaður í stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd sem lak skýrslu­drögum sem enginn þingmaður nema þrír þingmenn í ráðherra­nefnd um efnahagsmál höfðu aðgang að?“

Þorbjörg Sigríður sló botninn í þessa umræðu og byrjaði á því að segja að auðvitað væri það óheppilegt að skýrslan hafi lekið. „Það er hins vegar með nokkrum ólíkindum að þeir þingmenn Sjálfstæðis­flokksins sem hingað koma upp og tala um leka, tali ekki um hinn eiginlega leka, sem eru auðvitað þau drög sem aldrei áttu að koma fyrir sjónir almennings. Um þetta fjalla þingmenn Sjálfstæðis­flokksins ekki. Um þetta fjallar Morgun­blaðið ekki. Og það væri áhugavert að heyra sjónarmið Ríkis­endur­skoðanda til þess hvað ölli því að drög sem aldrei áttu að koma fyrir sjónir almennings rötuðu í fjölmiðla. Sjálfstæðis­flokkurinn vill ekki ræða banka­söluna. Sjálfstæðis­flokkurinn vill ekki ræða skýrslu um banka­söluna. Sjálfstæðis­flokkurinn vill ræða ótímabæra birtingu á skýrslu um banka­söluna. Það er innan­húsmet í meðvirkni hér að falla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár