Seðlabanki Evrópu tilkynnir um aðgerðir til að örva efnahagslífið

Rúmir tveir mánuðir eru síðan Seðla­banki Evrópu hætta með umfangs­mikla áætlun sína um magn­bundna íhlutun, sem fólst meðal annars í umfangs­mikilli fjár­innspýtingu í hverjum mánuði.

Mario Draghi, forseti stjórnar Seðla­banka Evrópu, tilkynnti í dag um umfangs­miklar aðgerðir bankans til að örva hagvöxt á evru­svæðinu.

Ekki eru nema rúmir tveir mánuðir síðan að bankinn hætti formlega með umfangs­mikla áætlun sína um örvun hagkerfa evrusvæðsins sem fólst í kaupum á skulda­bréfum, fyrir um 60 milljarða evra í hverjum mánuði.

Um mitt síðasta ár tilkynnti bankinn um að hann myndi hætta með áætlunina, og var það gert til að gefa fyrir­tækjum og þjóð­ríkjum svigrúm til að laga sig að breyttum veruleika, en aðgerðir seðla­bankans hafa skipt sköpum framgang efnahags­mála á evru­svæðinu, enda umfang aðgerð­anna mikið.

Horfur í efnahags­málum í Evrópu hafa versnað hratt undan­farin misseri, og byggja aðgerðir bankans nú á því, að þörf sé á því að bankinn láti til sín taka til að skapa betri jarðveg fyrir vöxt.

Þetta verður gert með lánveitingum á lágum vöxtum til fjármála­fyrirtækja, sem síðan geta lánað áfram til fyrir­tækja og fjárfesta. Vextir bankans eru í núlli. Aðgerðirnar nú byggja því að hluta á því að endur­vekja áætlun bankans sem hætt var með í byrjun árs, en bankinn metur það svo að nauðsynlegt sé að styðja við þróun mála á evru­svæðinu, að því er fram kemur í tilkynningu bankans.

Hagvaxtarspá bankans var nýlega uppfærð, og gerir nú ráð fyrir 1,1 prósent hagvexti á þessu ári í stað 1,7 prósent áður. Atvinnu­leysi í Evrópu hefur farið lækkandi undan­farin misseri og mælist nú 6,5 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár