Lífið í kassa

Rótlaus mínimalismi er ríkjandi byggingar­stefna.

Byggingar­list okkar tíma snýst að miklu leyti um að byggja fleiri og fleiri kassa, sem staflað er upp í mínimalískum stíl, stundum með lita­flákum hér og þar, en oftar hvítir, gráir eða svartir. 

Frægasti kassinn er grænn, settur upp við kassalaga fjölbýlishús við Álfabakka. Liturinn er endurgerð af grænum laufum, stilkum og stráum nátt­úrunnar, en engar rætur eru á afritinu.

Pixlar

Kassar sjást sjaldan í nátt­úrunni. En þeir eru skilvirkir og hagkvæmir. Þeir hámarka nýtingu svæðis og eru einfaldir í samsetningu. Í stýrðu umhverfi tekur aðgerða­stjórnun, stærðar­hagkvæmni og skilvirkni yfir. IKEA sigraði heiminn með því að gera nánast alla fram­leiðsluna sína þannig úr garði að henni mætti stafla og setja í flata kassa.

Hámarks­skilvirkni er að hafa staflana sem hæsta. Þess vegna eru jafnvel yfir sex hæða blokkir reistar utan um þröngar götur, með skugga­varpi sem ýkist upp við norðlæga legu okkar. Ein ástæðan er að við viljum lækka fasteigna­verð. En húsnæðis­kostnaður hækkar enn um 7% síðasta árið, þótt nýju eignirnar seljist illa.

Þegar kössunum fjölgar í einfaldri og einsleitri útgáfu getur umhverfið okkar verið pixlað. Raun­veruleikinn verður í lítilli upplausn, með fáum smáatriðum. Á meðan eykst upplausnin á kassalaga skjáum.

Rann­sóknir sýna að fólki líður best í umhverfi sem er ekki of einfalt, stórt og einsleitt, en hefur samt ákveðinn ramma og umlykingu. Það er til þekking um hvernig þetta er best fyrir okkur. Einfaldast og öruggast er hins að byggja hvítu, svörtu og gráu kassana. Sem minnir á suðið sem blikkaði óreiðu­kennt í sjón­varpinu þegar engin stöð náðist. Stundum eru litir notaðir til að aðgreina sams konar samliggjandi blokkir, þannig að minnir á gömlu stilli­myndina í sjón­varpinu, þegar stöðin náðist en ekkert var á dagskrá.

Yfirtaka mínimalisma                                      

Undir­liggjandi er kvarði milli strúktúrs og óreiðu. Stýringar og náttúru. Það kostar meira að byggja hús á mannlegum skala, í marg­slungnara formi en kassa og með smáatriðum sem auðga upplifun, með örlítið minni stöflun.

Leikritið Innkaupa­pokinn, sem hefur verið sýnt á litla sviðinu í Borgar­leikhúsinu síðustu vikur, fjallar í aðra röndina um átök og andstæður strúktúrs og óreið­unnar, og þess sem við verðum og þess sem við viljum.

Inn­kaupa­pok­innFriðgeir Ein­ars­son í hlut­verki inn­kaupa­pokans, sem er tákn raun­veru­leik­ans í töfra­leik­rit­inu eftir Elísa­betu Jök­uls­dóttur og leik­hóp­inn Krið­pleir.

Verkið byggir á skáldsögu Elísabetar Jökuls­dóttur, Mundu töfrana, sem erfitt hafði reynst að forma í sviðs­listaverk. Þar segir frá barni sem festist í Töfra­garðinum, og svo frá þrúgandi þunga innkaupa­pokans, sem gerir stöðugar kröfur. Hann er fulltrúi raun­veruleikans, en barnið lifir í töfrunum.

Sjálf bjó Elísabet í litlu einbýlis­húsi við Fram­nesveg í Vesturbæ Reykja­víkur, þegar ákveðið var að stofna þéttingar­reit við hlið þess, sem nú heitir Granda­torg og er skuggsæll, steyptur inngarður umkringdur bogahúsi og stórum, kols­vörtum kössum.

Einn kostur mínimalismans í skipulagi og lífsstíl er að hann auðveldar okkur að rífa okkur upp og koma fyrir annars staðar. Rætur hafa ekki gildi þegar eina markmiðið er skilvirk uppbygging, eða strúktúr.

Hámörkun stærðar­hagkvæmni, hlutfallslegra yfirburða í fram­leiðslu og skilvirkni, færir okkur fjær rótum okkar sem lífvera. Við viljum varla vera samgróin gras­rótinni, búa aftur undir torfi, en íbúðir og götur í reglu­bundnum skugga eru ekki íveru­staðir fyrir lífverur eins og okkur.

Firring og nostalgía

Þegar fólk tengir ekki við daglegt umhverfi sitt getur það verið hluti af því sem félags­fræðin kallar firringu. Hún á sér margar hliðar. Í Banda­ríkjunum leiddi önnur firring, samhliða vímuefna­neyslu og lækkandi lífaldri, til stökk­breytingar MAGA-hreyfingarinnar og trumpisma, sem spratt upp úr annars konar rótleysi og nostalgíu.

Margir Íslendingar fylltust rómantískum söknuði yfir sjónvarps­þátta­röðinni Verbúðinni 2021, sem fjölluðu um hið óreiðu­kennda og ófull­komna líf níunda áratugarins á lands­byggðinni.

Nú þegar er komin upp arkitekta­uppreisn á Norður­löndunum, sem hefur teygt sig til Íslands, gegn rótleysi og andleysi nútíma­arkitektúrs og skipulags.

Eftir því sem hæðunum fjölgar og skuggarnir lengjast fer okkur að lengja eftir fyrri tíð og tengslum.

Þétting byggðar, sem er um leið forsenda blómlegs götulífs og almennings­samgangna, er ekki það eina sem getur rofið tengsl okkar við umhverfið, heldur líka andlegt berangur skilvirks mínimalisma: Eins­leitnin, einfald­leikinn, og skortur á náttúru­legum svæðum fyrir almenning. Þar sem er alger regla og engin óreiða lifa engir töfrar. 

Mundu töfranaRit­höf­und­ur­inn Elísabet Jök­uls­dóttir átti hús við Fram­nes­veg. Nýbyggðir svartir kassar eru nú í umhverf­inu.
Granda­torgHús rit­höf­und­ar­ins Elísa­betar Jök­uls­dóttur er fremst með rauðu þaki. Hún flutti þaðan 2020 til Hvera­gerðis.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár