Segir nauðsynlegt að fjölga innflytjendum í Þýskalandi

Efnahags- og umhverfis­ráðherra Þýska­lands segir að bregðast þurfi við ört hækkandi meðal­aldri þjóðarinnar með fleiri innflytj­endum ef þýska hagkerfið á að viðhalda eigin framleiðslu­getu.

Robert Habeck, efnahagsráðherra og varakanslari Þýskalands.
Robert Habeck, efna­hags­ráð­herra og varakansl­ari Þýska­lands. Mynd: EPA

Þjóð­verjar munu þurfa fleiri innflytjendur til að koma í veg fyrir skort á framboð vinnuafls í Þýska­landi. Þetta sagði efnahags- og umhverfis­ráðherra landsins, Robert Habeck, á blaðamanna­fundi í gær.

Samkvæmt frétt Reuters um málið sagði Habeck, sem er einnig formaður þýska Græningja­flokksins og vara­kanslari, að landið stæði frammi fyrir krísu vegna breyttrar aldurs­samsetningar þjóðarinnar.

Því til stuðnings benti ráðherrann á að þessa stundina væru 300 þúsund laus störf í landinu og að búist sé við að þau verði rúm milljón í fram­tíðinni. „Ef við lokum ekki þessu gati munum við enda með stórt framleiðni­vandamál,“ bætti hann við.

Habeck nefndi nokkrar leiðir til að fjölga starfs­fólki á fjölmiðla­fundinum, meðal annars með bættri starfs­þjálfun og fleiri starfs­möguleika fyrir fjölskyldu­fólk. Þar að auki segir hann að auka þurfi verulega innflutning á vinnuafli til landsins í öllum starfs­greinum. „Við þurfum að skipuleggja þetta,“ sagði hann.

Uppsafnaður skortur á vinnuafli

Samkvæmt mati þýsku samtak­anna IW mun vinnu­markaðurinn þar í landi minnka um 300 þúsund manns í ár, sökum mikils fjölda fólks sem er komið á eftirlauna­aldur. Búist er við áfram­haldandi minnkun vinnu­markaðarins á næstu árum og að uppsafnaður skortur á starfs­fólki muni nema fimm milljónum árið 2030.

Frétta­stofa Reuters segir ójafnvægið á milli stærða aldurs­hópa í landinu vera tilkomið vegna lítillar frjósemi og ójafns fjölda innflytjenda á milli ára síðustu áratugina. Þetta ójafnvægi er einnig vandamál fyrir þýska lífeyris­kerfið, þar sem færri starfs­menn fjármagna nú elli­lífeyri fyrir stærri þjóð­félagshóp en áður, auk þess sem elli­lífeyris­þegar búa nú við auknar lífslíkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár