Guðrún Hafsteinsdóttir segist taka við dómsmálaráðuneytinu í mars

Þegar ríkis­stjórnin var skipuð var tilkynnt um að Jón Gunnarsson yrði dómsmála­ráðherra í mesta lagi í 18 mánuði. Eftir­maður hans segir að hún taki við af honum fljótlega.

Guðrún Hafsteins­dóttir, oddviti Sjálfstæðis­manna í Suður­kjördæmi, segist taka við sem dómsmála­ráðherra í mars næst­komandi. Þetta kom fram í viðtali við hana í Dagmálum á mbl.is. Þar segir hún að útlendingamál kunni að verða erfiðust þeirra mála sem bíða úrlausnar Alþingis eftir áramót.

Frumvarp Jóns Gunnars­sonar, núverandi dómsmála­ráðherra, um útlendingamál, fékk ekki afgreiðslu á þingi fyrir jól og samið var um það í þingloka­samningum að fresta annarri umræðu um þangað til fljótlega eftir að þing tekur aftur til starfa eftir rúmlega eins mánaðar jólafrí þann 23. janúar.

Eini ráðherrann sem er ekki oddviti

Það vakti töluverða athygli þegar tilkynnt var að Jón Gunnarsson yrði dómsmála­ráðherra í öðru ráðuneyti Katrínar Jakobs­dóttur eftir að saman náðist um að halda stjórnar­samstarfi Vinstri grænna, Sjálfstæðis­flokks og Framsóknar­flokks áfram eftir síðustu kosningar. Fyrir það fyrsta er Jón ekki oddviti síns kjördæmis heldur sat hann í öðru sæti á lista Sjálfstæðis­flokks í Kraganum, kjördæmi flokks­formannsins Bjarna Benedikts­sonar. Hann er eini ráðherrann í ríkis­stjórn sem er ekki oddviti. Með því að velja Jón var gekk Bjarni framhjá tveimur oddvitum í lands­byggðar­kjördæmum, Guðrúnu í Suður­kjördæmi og Njáli Trausta Friðberts­syni í Norðaustur­kjördæmi.

Þá liggur fyrir að ekki var mikil ánægja með valið á Jóni hjá sumum samstarfs­mönnum Sjálfstæðis­flokks í ríkis­stjórn, sérstak­lega innan raða Vinstri grænna. Jón þykir með harðari stefnu en þeim líkar í mörgum umdeildum málum, til dæmis í málefnum flótta­fólks og varðandi vopnaburð og rannsóknar­heimildir lögreglu, og ljóst frá byrjun að afstaða hans í slíkum málum myndi valda Vinstri grænum vandræðum hjá kjósendum sínum.

Jón átti þó ekki að sitja sem ráðherra út kjör­tímabilið, heldur einungis í 18 mánuði. Svo átti Guðrún að taka við. Hún var ekki sátt með þá ákvörðun. Það voru Sjálfstæðis­menn í hennar kjördæmi ekki heldur og kröfðu formanninn skýringa.

Bjarni varði valið á Jóni með þeim rökum að Jón kæmi úr stærsta kjör­dæmi lands­ins þar sem fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins væri mest. Hann hafi verið þing­maður frá árinu 2007 og áður gegnt ráð­herra­emb­ætti um skamma hríð á árinu 2017. Þá var hann ritari flokksins þegar ríkis­stjórnin var mynduð og hefði, að mati Bjarna, sterkt umboð innan Sjálfstæðis­flokks­ins.

Hefur mælst afar óvinsæll ráðherra

Í könnun sem gerð var í janúar 2022, skömmu eftir að ríkis­stjórnin tók við, kom fram að um þriðjungur lands­manna gerði minnstar væntingar til Jóns í starfi af öllum ráðherrunum. Hann var sá ráðherra sem lang­flestir gerðu litlar vænt­ingar til.

Kjarninn greindi frá því í gær að samkvæmt nýlegri könnun Maskínu telja 16,3 prósent lands­manna að Jón hafi staðið sig illa sem ráðherra. Einungis einn ráðherra var óvinsælli, Bjarni Benediktsson, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en 26,8 prósent lands­manna telja að hann hafi staðið sig illa. Þeir eru einu ráðherrarnir sem fá þann dóm að hafa staðið sig verst hjá hlut­falli lands­manna sem nær tveggja stafa tölu.

Í nóvember var gerð könnun þar sem spurt var um traust til ráðherra. Þar kom fram að sá sem nyti minnst trausts væri Bjarni, en alls sögðust 61 pró­sent svar­enda bera lítið traust til hans. Jón Gunn­ars­son kom fast á hæla Bjarna, en alls sögðust 59 pró­sent svar­enda van­treysta hon­um. Jón var líka í næst neðsta sæti yfir þá ráðherra sem svarendur nefndu um þá sem þeir treystu best, en tæplega 21 prósent nefndu hann. Einungis Lilja D. Alfreðs­dóttir, menningar- og viðskipta­ráðherra og vara­formaður Framsóknar­flokksins, var nefnd sjaldnar er hann.

Í fyrra­haust sagði Jón að það væri ekki ákveðið að hann myndi stíga til hliðar eftir 18 mánuði og að hann vildi vera ráðherra lengur. Eftir að hafa svarað því órætt í kjölfarið hvort fyrri áform um ráðherra­skipti hefðu breyst tók Bjarni af allan vafa í byrjun nóvember um að Guðrún yrði ráðherra snemma árs 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár