Tæplega þriðjungur landsmanna gerir minnstar væntingar til Jóns Gunnarssonar

Ný könnun sýnir að flestir lands­menn gera mestar vænt­ingar til eina ráð­herr­ans í rík­is­stjórn sem sett­ist í fyrsta sinn í slíka eftir síð­ustu kosn­ingar.

Jón Gunnarsson.
Jón Gunn­ars­son. Mynd: Bára Huld Beck

Alls segj­ast 29,8 pró­sent lands­manna gera minnstar vænt­ingar til Jóns Gunn­ars­sonar inn­an­rík­is­ráð­herra af þeim ráð­herrum sem skipa nýja rík­is­stjórn. Hann er sá ráð­herra sem lang­flestir gera litlar vænt­ingar til en næst flestir nefndu Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, eða 16,8 pró­sent. Alls sögð­ust 13,6 pró­sent aðspurðra að þeir gerðu minnstar vænt­ingar til Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, félags­mála- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, og 10,2 pró­sent nefndu Svandísi Svav­ars­dóttur, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra.

Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu sem fram­kvæmd var í síð­asta mán­uði, eftir að annað ráðu­neyti Katrínar Jak­obs­dóttur tók við völdum.

Þegar spurt var til hvaða ráð­herra mestar vænt­ingar voru gerðar kom í ljós að áber­andi flestir, eða 35,8 pró­sent, nefndu Willum Þór Þórsson, nýjan ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins sem fer með heil­brigð­is­mál í rík­is­stjórn­inni. Á eftir honum kom flokks­fé­lagi hans, Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra, með 19,8 pró­sent og 13,2 pró­sent nefndu for­sæt­is­ráð­herr­ann Katrínu Jak­obs­dóttur. Vænt­ingar til hinna flokks­leið­toga stjórn­ar­flokk­anna voru mun minni. Alls 5,1 pró­sent nefndi Bjarna Bene­dikts­son og 4,1 pró­sent Sigurð Inga Jóhann­es­son inn­við­a­ráð­herra.

[adspot]Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu. Svar­endur voru alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Könnunin fór fram dag­ana 15. til 28. des­em­ber 2021 og voru svar­endur 956 tals­ins.

Vinstri græn hafa dalað

Í nýj­ustu könnun Gallup á fylgi flokka, sem gerð var 1. til 30. des­em­ber, kom fram að 51,6 pró­sent aðspurðra myndu kjósa rík­is­stjórn­ar­flokk­anna. Stjórnin fer því verr af stað en hún gerði á fyrsta kjör­tíma­bili sínu og hefur tapað nokkrum pró­sentu­stigum frá því í kosn­ing­unum síð­ast­liðið haust. Mest munar um að fylgi Vinstri grænna hefur dreg­ist tölu­vert sam­an, eða um tvö pró­sentu­stig. Það mælist nú 10,6 pró­sent og hefur ein­ungis einu sinni mælst minna síðan í jan­úar 2020. Það var skömmu fyrir síð­ustu kosn­ingar þegar 10,2 pró­sent kjós­enda sögð­ust styðja flokk­inn.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn dalar líka frá kosn­ing­un­um, alls um 1,1 pró­sent, og nýtur nú stuðn­ings 23,3 pró­sent kjós­enda. Vert er að taka fram að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur til­hneig­ingu til að mæl­ast með minna fylgi í könn­unum en hann fær í kosn­ing­um. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir einn stjórn­ar­flokk­anna við sig frá kosn­ing­unum og um síð­ustu ára­mót sögð­ust 17,7 pró­sent að þeir myndu kjósa flokk­inn ef gengið yrði til kosn­inga nú.

Piratar á flugi en Miðflokkur að hverfa

Sá stjórn­ar­and­stöðu­flokkur sem hefur bætt mestu fylgi við sig á fyrstu mán­uðum yfir­stand­andi kjör­tíma­bils eru Píratar. Nú segj­ast 12,5 pró­sent lands­manna að þeir myndu kjósa flokk­inn, sem er 3,9 pró­sent meira en hann fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber í fyrra. Píratar hafa sögu­lega oft mælst með meira fylgi í könn­unum en þeir fá í kosn­ingum. Flokk­ur­inn er nú að mæl­ast sem þriðji stærsti flokkur lands­ins, stærri en Vinstri græn sem voru það eftir síð­ustu kosn­ingar.

Sam­fylk­ingin bætir lít­il­lega við sig frá kosn­ingum og mælist nú með 10,5 pró­sent fylgi, sem er nán­ast sama fylgi og Vinstri græn mæl­ast með.

Viðreisn er á svip­uðum slóðum og í haust með 8,7 pró­sent fylgi og sömu sögu er að segja með Flokk fólks­ins, sem mælist með 8,6 pró­sent fylgi, og Sós­í­alista­flokk Íslands, sem mælist með 4,5 pró­sent fylgi.

Mið­flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, sem telur nú tvo þing­menn, heldur áfram að dala og mælist nú með ein­ungis 3,4 pró­sent fylgi, sem er 2,1 pró­sentu­stigum minna en hann fékk í síð­ustu kosn­ingum. Fylgi Mið­flokks­ins hefur aldrei mælst minna í mæl­ingum Gallup frá því að það var fyrst mælt í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2017.

Nið­ur­stöður um fylgi flokk­anna á lands­vísu eru úr net­könnun sem Gallup gerði dag­ana 1. til 30. des­em­ber 2021. Heild­ar­úr­taks­stærð var 7.890 og þátt­töku­hlut­fall var 51,2 pró­sent. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,4 pró­sent. Ein­stak­lingar í úrtaki voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár