Segir harðindin hafa gefið íslensku þjóðinni „hraust gen“,„sterkbyggða líkama“ og „hnífbeitt hugarfar“

Pistla­höf­undur á Rómi, vefriti ungra íslenskra hægri­manna, telur að sér­stakir eig­in­leikar íslensku þjóð­ar­innar, meðal ann­ars áhættu­sækni í við­skiptum, séu „sterkt dæmi um það hvernig Þró­un­ar­kenn­ing Darwins virkar“.

Ragn­heiður Björk Hall­dórs­dóttir, pistla­höf­undur á vefrit­inu Rómi.is, telur að „hraust gen“ og „sterk­byggðir lík­amar“ Íslend­inga séu gott dæmi um það hvernig þró­un­ar­kenn­ing Charles Darwins virkar. Það sama eigi við um „hníf­beitt hug­ar­far“ þjóð­ar­innar. Hún seg­ist hafa áttað sig á því eftir að hún flutti til Þýska­lands. 

Ragnheiður Björk Halldórsdóttir
Ragn­heiður Björk Hall­dórs­dóttir

Þetta kemur fram í pistli Ragn­heiðar, Hinn stór­huga litli Íslend­ingur, sem birt­ist á Rómi fyrir helgi. Ragn­heiður er mennt­aður iðn­að­ar­verk­fræð­ingur, hefur setið í stjórn Stúd­enta­ráðs fyrir hönd Vöku og var á fram­boðs­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir þing­kosn­ing­arnar 2013. Hún starfar nú í Þýska­landi og heldur utan um svo­kall­aðan Business Presentation Event fyrir Formula Student Germany á Hockenheimring.

„Ég hef oft haft orð á því að Íslend­ingar séu mjög sterkt dæmi um það hvernig Þró­un­ar­kenn­ing Darwins virkar. Fyrir um 10 öldum síðan komu fyrstu menn að landi á Íslandi. Kynslóð eftir kyn­slóð lifði af mikil harð­indi, slæm veð­ur­skil­yrði og veik­indi,“ skrifar Ragn­heiður og bætir við: „Á síð­ustu þús­und árum má því áætla að lík­am­lega sterk og hraust gen hafi haft yfir­hönd­ina og þraukað einna helst ef mark er tekið á Þró­un­ar­kenn­ing­unni. Það varð mér þó ljóst, eftir að hafa flutt erlendis, að Íslend­ingar hafi ekki ein­ungis þróað með sér sterk­byggða lík­ama heldur einnig hníf­beitt hug­ar­far. Hugarfar, sem gerir það að verkum að við teljum okkur fátt vera ómögu­legt. Sama hversu fjar­stæðu­kennda eða mik­il­feng­lega hug­mynd við kunnum að fá er ekk­ert sem fær okkur stöðvað. Fyrst þau geta þetta, af hverju ekki við?“

Karaktereinkenni skýri fjölda eignarhaldsfélaga

Ragn­heiður nefnir sem dæmi að á Íslandi séu stofnuð mun fleiri fyr­ir­tæki miðað við höfða­tölu heldur en í Þýska­landi og dregur þá ályktun að Íslend­ingar séu í eðli sínu áhættu­sækn­ari en Þjóð­verjar. 

„Hér í Þýska­landi hef ég undr­ast mikið hug­ar­far Þjóð­verja – sem er öðru­vísi en ég hef kynnst,“ skrifar hún. „Í landi eins og Þýska­landi, sem fram­leiðir margar af mestu gæða­vörum sem fyr­ir­finn­ast, og rekur ein­hver stærstu og árang­urs­rík­ustu fyr­ir­tæki heims­ins, ríkir nefni­lega menn­ing fyrir var­kárni. Áður en ráð­ist er af stað í fram­kvæmdir skulu öll sjón­ar­mið vera tekin til hlið­sjónar og sterkt örygg­is­net og örygg­is­á­ætl­anir vera fyrir hendi. Þeir eru ein­fald­lega síður áhættu­sæknir.“

Telur Ragn­heiður að þegar upp er staðið hafi „karakt­er­ein­kenni beggja þjóða“ bæði kosti og galla. Grein­inni lýkur hún á orð­unum: „Ég er ein af þessum stór­huga litlu Íslend­ingum sem mun aldrei gef­ast upp og aldrei hætta að trúa á sjálfa sig!“

Viðskiptaævintýrin skýrist af náttúruvali

Orð­ræð­unni sem birt­ist í grein Ragn­heiðar svipar mjög til kenn­ingar um sér­kenni Íslend­inga sem Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti Íslands, setti fram á útrás­ar­ár­unum.

Árið 2005 hélt hann ræðu í London þar sem hann rakti við­skipta­æv­in­týri Íslend­inga til sér­stakra eðl­is­eig­in­leika þjóð­ar­innar. Sams konar mál­flutn­ingur birt­ist í fyr­ir­lestri for­set­ans hjá Sagn­fræð­inga­fé­lagi Íslands í jan­úar 2006 þar sem hann nefndi áhættu­sækni sem einn af meg­in­þáttum „íslenska and­ans“. Í kjöl­farið gagn­rýndu sagn­fræð­ingar for­set­ann fyrir þjóð­ern­is­hroka.

Í bók­inni Sjálf­stæð þjóð: Trylltur skríll og land­ráða­lýður greinir Eiríkur Bergmann Ein­ars­son, stjórn­mála­fræði­pró­fessor, orð­ræðu íslenskrar þjóð­ern­is­hyggju og bendir á að í aðdrag­anda hruns­ins hafi skýr­inga á íslenska efna­hagsundr­inu verið „leitað í eðl­is­bundnum ein­kennum og var því jafn­vel haldið fram að sökum nátt­úru­vals yrðu Íslend­ingar í for­ystu í alþjóð­legum fyr­ir­tækja­rekstri“. 

Vettvangur fyrir ungt frjálslynt fólk

Vefritið Rómur var stofnað þann 14. febr­úar 2016 sem vett­vangur fyrir „ungt frjáls­lynt fólk“ til þess að láta að sér kveða í sam­fé­lags­um­ræð­unni. Fram kemur í lýs­ingu á vefrit­inu að stefna þess sé að „hafa fag­mennsku að leið­ar­ljósi og leggja frjáls­lynd gildi til umræð­unnar í vel rök­studdum greinum“. Tekið er fram að pistla­höf­undar hafi frjálst efn­is­val og skoð­anir þeirra kunni að stang­ast á. Á Facebook-síðu Róms má sjá að pistla­höf­undar og rit­stjórn­ar­menn hafa „lækað“ deil­ingu á grein Ragn­heiðar Bjarkar.

„Mótvægi við þeim jað­ar­skoð­unum sem flesta dálka hafa fengið í dag­blöðum lands­ins og flætt yfir bakka athuga­semda­kerf­anna“

Samkvæmt eins konar man­i­festói vefs­ins, Ómi Rómur, er hann „hugs­aður sem mót­vægi við þeim jað­ar­skoð­unum sem flesta dálka hafa fengið í dag­blöðum lands­ins og flætt yfir bakka athuga­semda­kerf­anna“. Pistla­höf­undar eru kall­aðir „Róm­verjar“ og fram kemur að sá vett­vangur sé „sjald­séður þar sem því má treysta að stað­reyndir búi að baki skoð­ana­skrifum. Róm­verjar snúa vörn í sókn og gæta þess í hví­vetna að skoð­anir séu mót­aðar með gagn­rýnni hugsun og að fag­mennska verði höfð að leið­ar­ljósi“. 

Rit­stjórn Róms skipa Erla María Tölgyes, Håkon Broder Lund, Ísak Einar Rún­ars­son, Janus Arn Guð­munds­son, Jón Birgir Eiríks­son, Sigurður Tómasson og Tryggvi Másson. Auk rit­stjórnar skipa stjórn félags­ins þeir Þengill Björns­son og Albert Guð­munds­son. Albert er for­maður Heimdallar, ung­liða­hreyf­ingar Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík og Ísak Rún­ars­son, Janus Arn Guð­munds­son og Þengill Björns­son sitja í mið­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár