Hulunni mögulega svipt af skapara bitcoin

Ástralski kaup­sýslu­maðurinn og tölvunar­fræðingurinn Craig Wright hefur nú komið fram í fjöl­miðlum og sagst vera stofnandi og skapari netgjald­mið­ilsins bitcoin. Hann vill ekki peninga, frægð eða aðdáun fólks. Hann segist vilja vera látinn í friði.

Craig Wright, ástralskur tölvunar­fræðingur og kaup­sýslumaður, hefur uppljóstrað að hann hafi búið til nefgjaldmiðilinn bitcoin í nafni Satoshi Nakamoto. Þetta kemur fram á vef BBC en þar viðurkennir hann að hafa siglt undir fölsku flaggi og að hafa búið til dulnefni undir því yfirskini að fela sitt raun­verulega nafn. Mörgum spurningum er þó ósvarað í sambandi við opinberun Wright og ekki eru allir sann­færðir um hann sé sá sem hann segist vera.

Bitcoin var fundið upp árið 2008 og kynnt ári seinna. Myntin var hugsuð sem nýr gjald­miðill og ný greiðslu­leið. Með bitcoin var miðstýringu banka með gjald­miðilinn eytt. Myntin var byggð til að frjálst flæði fjármagns gæti átt sér stað með landamæra­lausum gjald­miðli en þannig kom gjald­miðillinn í veg fyrir að gjaldeyris­höft gætu aftrað sér.

Vildi í raun ekki opinbera sig

Wright segir að sumir muni trúa honum og sumir ekki. Honum sé í rauninni alveg sama. Hann tekur það fram að hann sé aðal­stofnandi gjald­miðilsins en að aðrir hafi þó hjálpað honum. Hann segist alltaf hafa viljað halda þessum upplýsingum leyndum og að hann vilji í raun hafa það þannig áfram. Til þess að sanna að hann væri skapari bitcoin lagði hann fram tæknilegar sannanir og með því að nota peninga sem aðeins skapari miðilsins gæti átt. En þrátt fyrir það er mörgum spurningum ósvarað.

En af hverju kemur Wright fram með þessar upplýsingar núna? Hann segir að hann hafi ekki haft neitt um það að ráða. Að ákveðnir aðilar hafi ákveðið það fyrir hann. Hann óskar þess að fjöl­skylda hans, vinir og samstarfs­félagar verði látnir í friði.

Vill ekki peninga, frægð eða aðdáun

Hann tekur það fram að þetta sé í fyrsta og síðasta skiptið sem hann kemur fram fyrir framan mynda­tökuvél. Að eftir þetta viðtal BBC muni hann ekki aftur koma fram í fjöl­miðlum.

Wright segir að hann vilji halda áfram að vinna og stefni á að gera það. Hann vilji ekki peninga, frægð eða aðdáun fólks, hann vilji bara vera látinn í friði. Hann segist ekki vilja viðurkenningu eða verðlaun fyrir störf sín.

Auroracoin snýr aftur

Íslenska útgáfan af bitcoin kallast auroracoin og kom í gagnið vorið 2014. Nú liggur fyrir að kauphöll með auroracoin muni opna á morgun, þriðjudaginn 3. maí, þar sem hægt verður að kaupa og selja netgjaldmiðilinn. Þetta kom fram í frétt Viðskipta­blaðsins fyrir helgi.

Kjarninn fjallaði um rafmyntir í viðtali við Bandaríkja­manninn David Lio sem sérhæfir sig í slíkum myntum. Hann sagði að honum hefði fundist hugmyndin um auroracoin áhugaverð frá upphafi. Núna þegar hugbúnaðurinn væri til staðar og opinn öllum væri afar áhugavert að huga frekar að dreifingar­leiðum rafmynta. Hann bætti við að honum hefði litist vel á Ísland sem tilrauna­vettvang rafmyntar þar sem allir fengu sinn ókeypis skammt. Þannig væri hægt að sjá hvað gerist þegar heilt samfélag verður meðvitað um rafmynt.

Í greininni kom einnig fram að fræg­asta og jafn­framt verð­mæt­asta raf­myntin væri bitcoin en til eru margar mis­mun­andi raf­myntir. Aur­ora­coin væri sú fyrsta sinnar teg­undar þar sem útdeil­ing mynt­ar­innar byggir á land­fræði­legum grunni. Aldrei áður hefði raf­mynt verið dreift til íbúa á ákveðnu svæði eins og raunin varð í mars 2014 þegar Íslend­ingar gátu sótt sinn skammt af aur­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár