Ísland tilraunastofa fyrir rafmyntir

Hversu magnað væri það ef allir í samfélaginu ekki aðeins vissu af ákveðinni rafmynt, heldur ættu eitthvað af henni líka? Mér fannst hugmyndin frábær,“ segir Banda­ríkja­maðurinn David Lio um hugmyndina að baki íslensku rafmyntinni Auroracoin, eða AUR. Á undan­förnum mánuðum hefur hann lagt sitt á vogar­skálarnar til að auka hróður myntarinnar. Meðal annars heldur hann úti heima­síðunni auroracoin.com og hefur kynnt aurana á ráðstefnum vestanhafs tileinkaðar rafmyntum.

David er búsettur í New York-borg, þar sem hann rekur lítið ráðgjafar­fyrirtæki að nafni CoinHeavy. Það sérhæfir sig í svokölluðum rafmyntum eða dulkóðunar­gjaldmiðlum (e. cryptocurrency). Frægust og jafnframt verð­mætust rafmynta er Bitcoin en til eru hundruð mismun­andi rafmynta. Aurora­coin er sú fyrsta sinnar tegundar þar sem útdeiling myntar­innar byggir á land­fræðilegum grunni. Aldrei áður hefur rafmynt verið dreift til íbúa á ákveðnu svæði, eins og raunin varð í mars þegar Íslendingar gátu sótt sinn skammt af aurum.

Hreifst af hugmyndinni

„Þegar ég fyrst sá tilkynninguna um Auroracoin á spjall­borði um rafmyntir fannst mér hugmyndin afar áhugaverð. Samfélag þeirra sem fylgjast með, þróa og nota rafmyntir er fyrst og fremst á netinu. Spjall­borðin eru full af afar tækni­færum einstaklingum og þar eru margir tilbúnir að aðstoða við verkefni sem tengjast rafmyntum,“ segir David þegar hann er spurður um kynni sín af Auroracoin. „En þegar maður ræðir við einstaklinga sem standa utan samfélagsins spyrja þeir oft sömu spurningarinnar: Hvernig er rafmyntunum dreift? Þá eru þeir ekki að spyrja um tæknilegu hliðina heldur hverjir það eru sem raun­verulega eiga myntirnar í dag. Spurningin á rétt á sér. Núna þegar hugbúnaðurinn er til og er opinn öllum (e. open source) er afar áhugavert að huga frekar að dreifingar­leiðunum. Ég vissi ekki mikið um Ísland. Því meira sem ég fræddist, þeim mun betur leist mér á landið sem tilraunar­vettvang rafmyntar þar sem allir fá sinn skammt ókeypis. Þannig sjáum við hvað gerist þegar heilt samfélag verður meðvitað um rafmynt.“

Hvers vegna eru rafmyntirnar orðnar svona margar? Gætu Íslendingar t.d. ekki bara notað Bitcoin í stað þess að nota eigin rafmynt, ef þeir vilja notast við slíkan gjald­miðil á annað borð?

„Bitcoin er enn í þróunar­ferli (e. beta), rétt eins og allar aðrar rafmyntir. Bitcoin hefur reynst nokkuð vel en hver eining kostar hundruð dollara. Þegar sú er raunin eru fáir tilbúnir að prófa sig áfram (e. experiment) með myntina. Ef einhver gefur mér rafmynt er ég mun líklegri til þess að prófa mig áfram og gera frekari tilraunir við að nota hana. Ef ég tapa einhverju þá skiptir það litlu máli.“

David segir að þrátt fyrir að rafmyntirnar, notenda­hópurinn og markaðurinn í kringum þær hafi þróast afar hratt að undan­förnu lifum við enn árdaga myntanna. Hann hvetur Íslendinga til að sækja sína aura og skipta hluta þeirra í aðrar rafmyntir eins og Bitcoin. „Þá fæst aðeins betri tilfinning fyrir raun­verulegu virði myntarinnar. Það er hægt að nota Bitcoin við ótalmargt á netinu,“ segir hann.

Lesið umfjöllunina í heild í Kjarnanum í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár