Ráðherra krafinn frekari svara um Moshensky

Þingmaður Pírata hefur krafið utan­ríkis­ráðherra um svör við því hvers vegna ráðuneyti hennar flokkar öll samskipti sín við ESB vegna íslenska kjör­ræðis­mannsins í Hvíta-Rússlandi sem óformleg. Ráðuneytið neitar að birta gögn og frekari upplýsingar um hátt í þrjátíu símtöl, fyrir­spurnir og fundi, sem íslensk stjörnvöld áttu í kjölfar þess að ræðis­maðurinn tilkynnti að hann yrði mögulega bann­listaður vegna tengsla við einræðis­herrann í Hvíta-Rússlandi.

Ráðherrann og ræðismaðurinn
Ráð­herr­ann og ræð­is­mað­ur­inn Utan­rík­is­ráð­herra hefur full­yrt að ekk­ert hafi verið óeðli­legt við sam­skipti ráðu­neytis hennar við full­trúa ESB, í tengslum við áhyggjur kjör­ræð­is­manns­ins í Hvíta-Rúss­landi af því að verða beittur við­skipta­þving­unum vegna tengsla hans við stjórn­völd í Minsk.

„Hvers vegna eru samskipti við ESB um mögulegar þvingunar­aðgerðir ESB gagnvart kjör­ræðismanni Íslands óformleg? Væri ekki eðlilegt að slík samskipti væru formleg og skráð til hins ýtrasta ef ESB væri að ósekju að ganga þannig að kjör­ræðismanni Íslands? Hverjar eru reglur um hvort erindi skuli vera formleg eða óformleg? Hver tekur slíka ákvörðun? Hvaða reglur gilda um skráningu óformlegra erinda,“ spyr Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, í skriflegri fyrir­spurn til utan­ríkis­ráðherra, sem lögð var fram í byrjun vikunnar.

Utan­ríkis­ráðuneytið staðfesti á dögunum í svari til Stundarinnar að hafa í desember 2020, hátt í þrjátíu skipti hringt, sent fyrir­spurnir og átt fundi með fulltrúum aðildar­ríkja ESB, í kjölfar þess að kjör­ræðismaður Íslands í Hvíta-Rússlandi viðraði áhyggjur sínar af því að lenda mögulega á lista einstaklinga sem sættu viðskipta­banni, vegna tengsla við einræðis­herrann Aleksander Lukashenko. 

Ráðuneytið neitar hins vegar að afhenda nokkur gögn um þessi samskipti, á þeirri forsendu að þau hafi öll verið trúnaðar­samtöl. Stundin hefur óskað eftir frekari sundur­liðun á þessum samskiptum en beiðninni hefur enn ekki verið svarað.

Utan­ríkis­ráðherra hefur ítrekað vísað í upplýsingar úr þessum gögnum, þegar hún hefur hafnað því að ísenska ríkið hafi með þessum samskiptum reynt að beita sér gegn því að kjör­ræðis­maðurinn eða fyrirtæki hans yrðu fyrir viðskipta­þvingunum ESB. Einungis hafi verið um að ræða fyrir­spurnir, þvert á það sem fjöldi viðmælenda Stundarinnar hafa lýst.

Í því samhengi er fullyrt að milljarða árlegir viðskipta­hagsmunir íslenskra útgerða, hafi ráðið för. Kjör­ræðis­maðurinn Aleksander Moshensky hefur enda verið umsvifa­mikill fisk­kaupandi ekki síst eftir að Rússar lögðu viðskipta­bann á íslenskan fisk. Með Moshensky sem millilið hefur íslenskum útgerðum tekist að koma íslenskum fiski á markað í Rússlandi. Og notið til þess pólitískra tengsla Moshensky við einræðis­herrann Aleksander Lukashenko, samkvæmt fréttum í Hvíta-Rússlandi.

Fyrir­spurnin til utan­ríkis­ráðherra inni­heldur spurningu um þessi viðskipta­tengsl og hvort íslenskum stjórn­völdum hafi verið kunnugt um að íslenskum fiski hafi verið endur­pakkað í Hvíta-Rússlandi og uppruni vörunnar sagður þar, áður en hann var fluttur til Rússlands.

Í fyrir­spurn Björns Leví er jafnframt spurt um hvenær og hversu oft ráðuneytið hafi átt í samskiptum við kjör­ræðis­manninn frá því hann var skipaður í embættið árið 2007, og hversu oft þau samskipti hafi snúist um boðuð áform ESB um að beita Moshensky viðskipta­þvingunum. 

Yfir­lýsing utan­ríkis­ráðherra í svari til Stundarinnar í byrjun mars, á þá leið að ráðherra teldi orðum aukið að kalla Moshensky náinn bandamann Lukashenko, vakti nokkra athygli. Ekki síst meðal talsmanna land­flótta Hvít-Rússa og stjórnar­andstæðinga í landinu, sem bentu á marg­háttuð augljós tengsl þeirra. Síðar kom í ljós að eina heimild ráðuneytisins fyrir þessari full­yrðingu var Moshensky sjálfur, í bréfi til ESB þar sem hann varðist fyrir­huguðum viðskipta­þvingunum. Ráðherra hefur í opinberri umræðu vísað til þessa bréfs og sagt það opinbert gagn, en engu að síður hefur Stundin ekki fengið aðgang að því, hvorki í ráðuneytinu né frá Moshensky sjálfum.

Samkvæmt heimildum Stundarinnar er efni bréfsins þó ekki skýrt um samband Lukashensko og Moshensky. Þar er hvergi vikið orði að fjölmörgum atriðum sem benda ótvírætt til þess að Moshensky hafi notið velvildar forsetans, í skiptum fyrir stuðning við hann. Nokkuð sem ítrekað hefur verið fjallað um í fjöl­miðlum innan og utan Hvíta-Rússlands.

Björn Leví spyr í því ljósi sérstak­lega um hvort íslenskum stjórn­völdum hafi aldrei borist ábendingar eða athuga­semdir við stöðu Moshensky sem kjör­ræðismanns:

„Hafa íslenskum stjórn­völdum einhvern tíma borist ábendingar eða athuga­semdir um meinta spillingu eða pólitísk tengsl Mosjenskís við Aleksander Lúkasjenkó eða hvítrússnesk stjórn­völd? Ef svo er, hvenær og hversu oft,“ segir í fyrirspurnininni sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir utan­ríkis­ráðherra mun svara skriflega á næstu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    P S.á miðlum Torgs eru koment í þessa veru þurkuð út til að létta lund siðlausra bisnismanna.
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Hver eru þessi 3 fyritæki sem við þurfum að skammast okkur fyrir?
    0
    • JGG
      Jóhanna Gréta Guðmundsdóttir skrifaði
      Eru reyndar 4....Ísfélagið, Vinslustöðin, Samherji og FISK
      1
    • PG
      Palli Garðarsson skrifaði
      Mætti ekki spyrja hæstvirtann ráðherra hvað meint sé með að hún ætli að efla aðgerðir til að stöðva yfirgang rússa? Ætlar hún að beita sér gegn þeim íslensku fyrirtækjum sem eru í viðskiptum við þá?
      https://www.ukrinform.net/rubric-ato/3468225-ukrainian-icelandic-diplomats-discuss-joint-action-to-stop-russian-aggression.html
      0
    • ÁHG
      Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
      Og með sölunni og mótöku blóðugra peninga stiðja þessi fyrutæki MORÐ NAUÐGANIR OG BARNAMORÐ, og enn er hægt að auka skömm okkar á því að vera frá Skrípaskerinu.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ólígarkinn okkar

FréttirÓlígarkinn okkar

Pólverjar æfir vegna ólígarkans okkar

Áhrifa­miklir pólskir stjórn­málamenn brugðust í vikunni harkalega við fréttum af því að ólígarki frá Belarús, sem ítrekað hefur verið reynt að beita viðskipta­þvingunum, vegna tengsla hans við einræðis­stjórnina í Minsk, hefði komið sér fyrir í Varsjá. Um er að ræða íslenska kjör­ræðis­manninn í Belarús, sem fer allra sinna ferða í skjóli verndar sem sendi­fulltrúi Belarús. Óásættanlegt er að hann sé fulltrúi Íslands, segir sérfræðingur.

9 mín. lestur

AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Úkraínskt orku­fyrirtæki flutt af nafni ólígarka í skúffu­félag í Smáí­búða­hverfinu

Íslenskur banka­maður, Karl Konráðsson, er sagður hafa keypt helmings­hlut í úkraínsku orku­fyrirtæki nýverið af Aleksander Moshensky, kjör­ræðismanni Íslands og ólígarka í Belarús. Áður hafði Karl eignast breskt félag Moshenskys fyrir slikk. Þá og nú átti Moshensky á hættu að sæta viðskipta­þvingunum, vegna tengsla sinna við stjórn­völd í Belarús.
RannsóknÓlígarkinn okkar

Tugir milljarða í skatta­skjól í gegnum Smáí­búða­hverfið

Kjör­ræðismaður Íslands í Belarús hefur á undan­förnum árum flutt tugi milljarða króna til dular­fulls aflands­fé­lags á Seychelles-eyjum með aðstoð félags sem stýrt er úr heimahúsi Reykjavík. Um er að ræða ávinning af fisk­viðskiptum og sérkenni­legum lánveitingum til fyrir­tækja kjör­ræðis­mannsins í Austur-Evrópu, sem allt bendir til að séu gerð til að koma hagnaði undan sköttum.

9 mín. lestur

FréttirÓlígarkinn okkar

Gagnrýndi stjórn­völd fyrir hræsni í málefnum Belarús

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir þingkona Pírata sakaði íslensk stjórn­völd og utan­ríkis­ráðherra um hræsni, í umræðum um baráttu lýðræðis­sinna í Belarús á Evrópu­ráðsþinginu í gær. Íslensk stjórn­völd gætu ekki látið sér nægja að sitja fyrir á myndum og segjast styðja stjórn­andstöðu landsins, á sama tíma og þeir hefðu náinn samverka­mann einræðis­stjórnarinnar í embætti kjör­ræðismanns.
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Ólígarkinn okkar fasta­gestur í einka­þotum einræðis­herrans

Alexander Moshensky, kjör­ræðismaður Íslands í Hvíta-Rússlandi, hefur flogið hátt í þrjátíu sinnum með einka­þotum einræðis­stjórnar Lukashenko á síðastliðnum áratug, samkvæmt gögnum sem lekið var nýlega. Eingöngu fjöl­skylda og nánustu bandamenn Aleksanders Lukashenko nota þoturnar. Bæði þoturnar og flestir farþega hennar hafa verið sett í ferðabann um Evrópu og Norður-Ameríku.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár