Töframaður lofar stórkostlegu þyngdartapi

Jón Víðis Jakobsson töfra­maður segir „sýndar­maga­bandsaðgerð“ ekki kukl.

Töframaður og dávaldur
Töfra­maður og dávaldur Jón Víðis seg­ist hafa dáleitt þrjá­tíu manns sem til­raun fyrir með­ferð­inni.

Jón Víðis Jakobsson, töfra­maður að eigin sögn, lofar stórkost­legum árangri í þyngdar­tapi með svokallaðri „sýndar­maga­bandsaðgerð“ sem kostar 50 til 60 þúsund krónur.

Í samtali við Stundina þvertekur hann fyrir að um sé að ræða kukl. „Það fer ekkert fram annað en dáleiðsla svo fólk heldur ekki að það sé að fara í neina aðgerð. Þetta er dáleiðsla og það sem þetta gerir er að hjálpa þér að borða minna,“ segir Jón Víðis. Hann neitar því að maginn minnki við dáleiðsluna. Svanur Sigurbjörnsson lyflæknir segir í samtali við Stundina ekki vita til þess að nein rannsókn hafi sýnt fram á virkni dáleiðslu.

Kostuð umfjöllun í Fréttablaðinu

„Maga­bands­dáleiðsla er sýndar­aðgerð. Fólk er dáleitt til þess að hætta að borða þegar það er búið að fá nóg. Venjuleg maga­bandsaðgerð er skurð­aðgerð sem er gerð til þess að fólk borði minna. Í sýndar­maga­bandsaðgerð er dáleiðslan notuð til að ná sama árangri …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sala á ósönnuðum meðferðum

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár