Sorpa semur við fyrrverandi framkvæmdastjóra eftir að hafa rekið hann

Fyrr­verandi framkvæmda­stjóri Sorpu, Björn H. Halldórsson, hefur náð sátt við fyrr­verandi vinnu­veitanda sinn. Björn kærði Sorpu fyrir ólögmæta uppsögn eftir að stjórn fyrir­tækisins vék honum frá störfum og krafðist 164 milljóna króna í skaða­bætur.

Fyrr­verandi framkvæmda­stjóri Sorpu, Björn H. Halldórsson, hefur náð sátt við fyrr­verandi vinnu­veitanda sinn. Björn hafði kært Sorpu fyrir ólögmæta uppsögn eftir að stjórn fyrir­tækisins vék honum frá störfum. Ástæða uppsagnarinnar var sögð niður­staða skýrslu Innri endur­skoðanda Reykja­víkurborgar, en þar kom meðal annars fram að Björn hefði haldið mikil­vægum gögnum frá stjórn félagsins vegna byggingar á nýrri gas- og jarðgerðarstöð Sorpu. Fór sú framkvæmd langt fram úr uppruna­legum áætlunum og voru vinnu­brögð Björns harðlega gagnrýnd í skýrslunni.

Í dag er engin moltu­framleiðsla í stöðinni eftir að það kom í ljós að hún var of menguð fyrir dreifingu, þar sem rúmlega 1,5 milljarða króna flokkunar­vélar virka ekki sem skyldi. Þá hefur Stundin greint frá því að stöðin uppfylli ekki kröfur starfs­leyfis vegna þess hversu mengaður úrgangurinn er sem kemur inn í hana. Einnig fannst mygla einnig í stöðinni í sumar, en stöðin var opnuð fyrir eingöngu einu ári.

Björn kærði Sorpu vegna uppsagnarinnar og krafðist hann rúmlega 167 milljóna króna í skaða­bætur. Málið átti að vera tekið upp í Héraðs­dómi Reykja­víkur í þessari viku, en sátt náðist eingöngu tveim dögum áður en málið átti að vera tekið fyrir. 

Segir að sáttin sé viðurkenning á broti

Í yfir­lýsingu segir Björn að með þessari sátt sé Sorpa að viðurkenna að hafa brotið á sér. „Tveimur dögum áður en aðal­meðferð málsins var fyrir­huguð fyrir héraðs­dómi bauð fyrir­tækið fram sátt í málinu. Í því felst að sjálfsögðu viðurkenning á því að stjórn Sorpu braut á mér og hafði rangt við og hef ég að vel íhuguðu máli ákveðið að ganga að sáttinni enda er mál að linni. Ég hef snúið mér að öðrum verkefnum og horfi fram á við,“ segir Björn.

Þá kemur einnig fram í yfir­lýsingunni að lögsókn hans hafi verið eini mögu­leikinn til að fá viðurkenningu á að brotið hafi verið á sér.

„Lítið sem ekkert tillit var tekið til andmæla minna og réttur minn til aðgangs að þeim gögnum sem skýrslan átti að byggja á var skertur. Við bættist að allar ákvarðanir stjórnar voru teknar undir vakandi augum fjölmiðla, þar á meðal ákvörðun stjórnar um að afþakka starfs­krafta mína og senda mig í launa­laust leyfi, veiting áminningar sem ég gat aldrei brugðist við og að lokum formleg uppsögn. Þessi starfslok urðu með þeim hætti að ég sá mig knúinn til að höfða dómsmál gegn fyrir­tækinu í þeim tilgangi að fá viðurkennt að ég var beittur rangindum og hafður fyrir rangri sök,“ segir Björn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Endurvinnsla á Íslandi

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár