Zelensky Úkraínuforseti:„Takk fyrir Ísland. Dýrð sé Úkraínu“

Volodomyr Zelensky Úkraínu­forseti þakkaði Íslandi fyrir stuðninginn í ávarpi sínu til Alþingis. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir utan­ríkis­ráðherra hélt aftur af tárunum. Hún sagðist ekki myndu halda hlífiskyldi yfir neinum þeim sem ætti skilið að lenda á lista yfir fólk sem sæta ætti refsi­að­gerðum þegar hún var spurð um stöðu Aleksanders Moshenskys, kjör­ræðismanns Íslands í Hvíta-Rússlandi.

Þakkaði íslendingum Volodmyr Zelensky Úkraínuforseti þakkaði Íslendingum fyrir stuðninginn við úkraínsku þjóðina og sagðist vonast til að hægt yrði að nýta reynslu Íslendinga í orkumálum í uppbyggingarstarfi. Fyrst þyrfti þó að vinna stríðið.

Volodomyr Zelensky forseti Úkraínu þakkaði íslenskum stjórn­völdum og íslensku þjóðinni fyrir stuðning sinn við Úkraínu­menn í ávarpi sínu til Alþingis Íslendinga nú um miðjan dag. Þingmenn voru snortnir yfir ávarpi Zelenskys, sem þeir lýstu sem áhrifa­miklu og sögulegum viðburði. Samstaða er um að styðja áfram með kröftugum hætti við úkraínsku þjóðina.

Zelensky ávarpaði þingið og bauð góðan dag á íslensku. Hann minntist tengsla þjóðanna tveggja sem næðu aftur í aldir. Hann þakkaði íslenskum stjórn­völdum fyrir stuðning þeirra við refsiaðgerðir gagnvart Rússlandi en hvatti til að enn yrði bætt við og engin viðskipti yrðu stunduð við einræðis­ríkið Rússland. Zelensky sagði að vinna þyrfti stríðið gegn Rússum en að því loknu gæti endur­uppbygging Úkraínu hafist. Þar gæti reynsla Íslendinga að uppbyggingu í orkumálum komið að góðum notum. „Ég er þess fullviss að munum fljótlega geta tekist það verkefni á hendur en fyrst verðum við að verja frelsi okkar, sameiginlegt frelsi. Og við munum gera það. Takk fyrir Ísland. Dýrð sé Úkraínu.“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir utan­ríkis­ráðherra sagði í samtali við Stundina að hún hefði þurft að halda aftur af tárunum þegar hún hlýddi á ávarp Zelenskys. Þórdís Kolbrún sagði enn fremur að enginn punktur yrði settur við aðstoð við Úkraínu meðan stríðið geysaði, bætt yrði áfram í.

SamhugurÁvarp Zelenskys Úkra­ínu­for­seta snerti við gestum í þingsalnum.

Útilokar ekki að vísa sendiherra Rússlands úr landi

Spurð hvort til greina komi að vísa sendi­herra Rússlands úr landi sagði Þórdís að hún útilokaði ekkert í þeim efnum. „Ég hef líka sagt að við fylgjum okkar vina- og bandalags­þjóðum í slíkum ákvörðunum. Litháen hefur með ákveðnum hætti gripið til ákveðinna ráðstafana en önnur lönd hafa ekki vísað sendi­herranum sjálfum úr landi,“ sagði Þórdís. „Diplómatísk samskipti eru ekki bara mikilvæg á friðar­tímum, þau eru líka mikilvæg á stríðs­tímum. Samskipti okkar við rússneska sendi­ráðið eru í algjöru lágmarki. Hann hefur verið kallaður inn í ráðuneytið þar sem við höfum getað komið okkar skila­boðum á framfæri.“

„Þegar kemur að Kína þá vand­ast málið aðeins.“
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir
utan­rík­is­ráð­herra

Spurð hvort til greina komi að gera breytingar á samskiptum við ríki sem hafi lýst stuðningi við Rússa eða neitað að fordæma innrásina, eins og Hvíta-Rússland eða Kína, svaraði Þórdís Kolbrún því til að þegar væru til staðar ákveðnar viðskipta­þvinganir eða refsiaðgerðir gagnvart Hvíta-Rússlandi. „Þegar kemur að Kína þá vandast málið aðeins. Þau hafa ekki lýst yfir stuðningi og talað um að landamæri skipti máli en hafa heldur ekki fordæmt [innrásina]. Þannig að við sjáum hvað setur en við erum í raun ennþá í fullum samskiptum og viðskiptum við Kína.“

Stjórn­völd í Hvíta-Rússlandi hafa stutt stríðs­rekstur Rússa í Úkraínu með ráðum og dáð. Kjör­ræðismaður Íslands í Hvíta-Rússlandi, Aleksander Moshensky, hefur ítrekað verið nefndur til sögunnar sem líklegur til að lenda á lista Evrópu­sambandsins yfir þá sem sæta skuli refsiaðgerðum vegna náins sambands síns við forseta Hvíta-Rússlands, Aleksander Lukashenko. Í umfjöllun Stundarinnar um mál Moshenskys bar fjöldi viðmælenda að ástæða þess að hann hefði hingað til sloppið undan því væri að íslensk stjórn­völd hefðu beitt sérr fyrir hans hönd. Um miðjan apríl greindi Stundin þannig frá því að fulltrúar íslenska utan­ríkis­ráðuneytisins hefðu hringt hátt í þrjátíu símtöl í fulltrúa Evrópu­sambandsins vegna málsins.

Spurð hvort hún gæti frætt blaðamann um hvar mál Moshenskys væri statt, þegar kæmi að hugsanlegri veru hans á lista Evrópu­sambandsins um fólk sem beita ætti refsiaðgerðum, sagðist Þórdís Kolbrún ekki geta það. „Ég hef ekki heyrt af því en ég hef sagt að hvorki ég né utan­ríkis­þjónustan munum halda hlífiskyldi yfir nokkrum sem á heima á slíkum lista.“

Stundin / Davíð Þór

Augljóst að einhver hagsmunagæsla hefur átt sér stað

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði ávarp Zelenskys hafa hitt sig beint fyrir og með öðruvísi hætti en önnur hans ávörp sem hann hefði fram að þessu séð. Spurður hvort hann teldi nóg að gert í aðgerðum Íslands til stuðnings við Úkraínu sagði Logi að erfitt væri að svara því. „Aðal­atriðið er að við gerum allt sem við getum,“ sagði Logi og vísað þar bæði til íslenskra stjórn­valda en eins til íslensks almennings.

Þegar Logi var spurður um afstöðu hans varðandi stöðu Aleksanders Moshenskys sagði hann að ekki hefðu fengist nægilega góð svör vegna málsins. „Það er augljóst mál að ef tugur samtala hefur átt sér stað um stöðu hans þýðir það að þar er á ferðinni einhvers konar hagsmuna­gæsla, sem er auðvitað til vansa fyrir íslensk stjórn­völd og utan­ríkis­þjónustuna. Ég á mjög erfitt með að sjá að þessi maður geti sinnt ræðismanns­hlutverki fyrir Ísland.“

Engin breyting orðið á afstöðu Vinstri grænna gagnvart NATO

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra lýsti því, spurð hvar Ísland gæti bætt í er varðaði stuðning sinn við Úkraínu, að Ísland hefði tekið mjög eindregna afstöðu með þeim efnahags­þvingunum sem lagðar hefðu verið á Rússa á alþjóða­vettvangi og því yrði haldið áfram. „Við höfum sömuleiðis verið að bæta í varðandi okkar framlög vegna mannúðar­mála og núna síðast í gær, líka bara til almennrar efnahags­uppbyggingar í landinu.“

Stundin / Davíð Þór
„Við höfum ekki gert neinar breyt­ingar á stefnu okkar“
Katrín Jak­obs­dóttir
Formaður Vinstri grænna, um stefnu gagn­vart Nató

Katrín sagði síðastliðinn miðvikudag, eftir fund norrænna fosætisráðherra, að íslensk stjórn­völd myndu gera hvað þau gætu til að greiða fyrir hraðri aðild Finna og Svía að NATÓ, kæmi til þess að löndin tvö sæktu þar um. Flokkur Katrínar, Vinstri græn, er andvígur aðild Íslands að NATÓ og aðild að hernaðar­bandalögum. Spurð hvort að afstaða hennar, eða flokksins, væri í einhverju breytt eftir atburði síðustu mánaða kvað Katrín svo ekki vera. „Íslensk stjórn­völd hafa hins vegar ákveðið að ef niður­staða þjóðþinga Finna og Svía verður sú að þau óski eftir að gerast aðilar, þá mun ég styðja þau í því og við munum greiða fyrir því í gegnum þingið. Það er meðal annars vegna eindreginna óska forystu­manna þessara þjóða. [...] Við höfum ekki gert neinar breytingar á stefnu okkar og það hefur ekki verið nein krafa um að breyta henni. Við erum auðvitað í þeirri stöðu að á sínum tíma ákváðum við að fara í þessa ríkis­stjórn og standa með samþykktri þjóðar­öryggis­stefnu Alþingis. Kannski var það umdeildara þá en nú, að taka þá ákvörðum,“ sagði Katrín.

Stundin / Davíð Þór

Samhugur þarf líka að ná til uppbyggingarstarfsins

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ávarpaði Zelensky stuttlega áður en Úkraínu­forseti flutti tölu sína. Guðni lýsti því að ávarp Zelenzky hefði verið áhrifa­mikið og sterkt.

„Mér þótti vænt um að hann þakkaði fyrir þann stuðning sem íslensk stjórn­völd hefðu sýnt í verki. Mér þótti líka magnað að á þessari örlaga­stundu í lífi úkraínsku þjóðarinnar, þegar erlendur innrásarher fer offorsi, skuli hann samt sem áður horfa vonar­augum til framtíðar. Hann nefndi þá að mikið verk yrði að vinna og gott yrði að geta leitað til okkar. Ég vona að samhugur okkar, sem við höfum sýnt núna, nái líka til þess tímabils í sögu Úkraínu, þegar uppbyggingar­starfið hefst eftir þessa hörmulegu innrás. Þá getum við líka lagt okkar að mörkum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Ragnarsson skrifaði
    Óráðshjal stíðsæsingamans. Ömurlegt að verða vitni að svona viðurstyggð árið 2022. Hvað eru þessir ræflar okkar að hugsa með því að draga svona ófögnuð inn í Alþingi og á ríkissjónvarp okkar Íslendinga?
    -3
    • GE
      Guðmundur Einarsson skrifaði
      Þú ert ekki mikið fyrir að lesa þér til skilnings, er það? Fyrir það fyrsta, réðust Rússar inn í Úkraínu, ef að þú skyldir ekki hafa fylgst með fréttum. Það eru fleiri fréttamiðlar en Útvarp Saga, Fréttin og Fox News. Svona fasistar eins og þú ættu að halda sig til hlés. Eða flytja annað, eins og ykkur er tamt um að segja öðrum.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ólígarkinn okkar

FréttirÓlígarkinn okkar

Pólverjar æfir vegna ólígarkans okkar

Áhrifa­miklir pólskir stjórn­málamenn brugðust í vikunni harkalega við fréttum af því að ólígarki frá Belarús, sem ítrekað hefur verið reynt að beita viðskipta­þvingunum, vegna tengsla hans við einræðis­stjórnina í Minsk, hefði komið sér fyrir í Varsjá. Um er að ræða íslenska kjör­ræðis­manninn í Belarús, sem fer allra sinna ferða í skjóli verndar sem sendi­fulltrúi Belarús. Óásættanlegt er að hann sé fulltrúi Íslands, segir sérfræðingur.

9 mín. lestur

AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Úkraínskt orku­fyrirtæki flutt af nafni ólígarka í skúffu­félag í Smáí­búða­hverfinu

Íslenskur banka­maður, Karl Konráðsson, er sagður hafa keypt helmings­hlut í úkraínsku orku­fyrirtæki nýverið af Aleksander Moshensky, kjör­ræðismanni Íslands og ólígarka í Belarús. Áður hafði Karl eignast breskt félag Moshenskys fyrir slikk. Þá og nú átti Moshensky á hættu að sæta viðskipta­þvingunum, vegna tengsla sinna við stjórn­völd í Belarús.
RannsóknÓlígarkinn okkar

Tugir milljarða í skatta­skjól í gegnum Smáí­búða­hverfið

Kjör­ræðismaður Íslands í Belarús hefur á undan­förnum árum flutt tugi milljarða króna til dular­fulls aflands­fé­lags á Seychelles-eyjum með aðstoð félags sem stýrt er úr heimahúsi Reykjavík. Um er að ræða ávinning af fisk­viðskiptum og sérkenni­legum lánveitingum til fyrir­tækja kjör­ræðis­mannsins í Austur-Evrópu, sem allt bendir til að séu gerð til að koma hagnaði undan sköttum.

9 mín. lestur

FréttirÓlígarkinn okkar

Gagnrýndi stjórn­völd fyrir hræsni í málefnum Belarús

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir þingkona Pírata sakaði íslensk stjórn­völd og utan­ríkis­ráðherra um hræsni, í umræðum um baráttu lýðræðis­sinna í Belarús á Evrópu­ráðsþinginu í gær. Íslensk stjórn­völd gætu ekki látið sér nægja að sitja fyrir á myndum og segjast styðja stjórn­andstöðu landsins, á sama tíma og þeir hefðu náinn samverka­mann einræðis­stjórnarinnar í embætti kjör­ræðismanns.
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Ólígarkinn okkar fasta­gestur í einka­þotum einræðis­herrans

Alexander Moshensky, kjör­ræðismaður Íslands í Hvíta-Rússlandi, hefur flogið hátt í þrjátíu sinnum með einka­þotum einræðis­stjórnar Lukashenko á síðastliðnum áratug, samkvæmt gögnum sem lekið var nýlega. Eingöngu fjöl­skylda og nánustu bandamenn Aleksanders Lukashenko nota þoturnar. Bæði þoturnar og flestir farþega hennar hafa verið sett í ferðabann um Evrópu og Norður-Ameríku.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár