Herþota hers Ísraels skotin niður

Tveir flugmenn komust úr vélinni og komu með fall­hlífum til jarðar.

F-16 herþota hers Ísraels var skotin niður í Sýrlandi í nótt, en samkvæmt tilkynningu frá hernum, sem breska ríkis­útvarpið BBC vitnar til, var þotan að bregðast við dróna árás á landsvæði Ísraels, og flaug inn á yfirráða­svæði Sýrlands.

Neyðar­flautur á jörðu niðri fóru í gang, en Ísraelsher segir herþotuna hafa eyðilagt dróna, og að Íran hafi staðið að baki árásunum.

Tveir flugmenn, sem í þotunni voru, komust úr vélinni og svifu til jarðar í fall­hlífum, ómeiddir. Talið er fullvíst að Sýrlandsher hafi skotið þotuna niður.

Samkvæmt umfjöllun BBC voru hörð átök á landa­mærum Ísraels, Jórdaníu og Sýrlands, þegar þotan var skotin niður.

Búast má við frekari yfir­lýsingum vegna atviksins, en átök á svæðinu þar sem þotan var skotin niður hafa að undan­förnu farið harðnandi, samkvæmt umfjöllun BBC.

Íbúar í Sýrlandi eru 18,4 milljónir, en talið er að meira en helmingur þeirra sé nú á flótta, ýmist innan lands eða utan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár