Leggja til stofnun launasjóðs afreksíþróttafólks

Samfylkingin leggur til að lagt verði fram frumvarp til laga um launasjóð fyrir afreks­íþróttafólk. Tilgangur sjóðsins verði að auka fjárhagslegt öryggi íþrótta­mannanna.

Helga Vala Helgadóttir er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Helga Vala Helga­dóttir er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt fram þings­ályktunar­tillögu um að mennta- og menningar­mála­ráðherra í samráði við fjármála- og efnahags­ráðherra leggi fram frumvarp til laga um launasjóð fyrir afreks­íþróttafólk. Tilgangur sjóðsins verði að auka fjárhagslegt öryggi afreks­íþrótta­fólks og auka möguleika þess á að helga sig íþrótta­iðkun sinni.

Tilgangur launa­sjóðsins yrði að skapa afreks­íþrótta­fólki í landinu fjárhags­legan grundvöll til iðkunar á íþrótt sinni. Í greinar­gerð með tillög­unni segir að horfa mætti til launa­sjóðs stór­meistara í skák og launa­sjóða lista­manna, þar sem starfs­laun eru greidd umsækjendum að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

„Með því að greiða afreks­íþrótta­fólki starfs­laun aukast réttindi og öryggi þess,“ segir í greinar­gerðinni. Mikilvægt sé að við undir­búning og við útfærslu starfs­launasjóðs afreks­íþrótta­fólks verði unnið náið með Íþrótta- og Ólympíu­sambandi Íslands og sveitar­félögunum.

„Árangur íþrótta­fólks okkar hefur vakið athygli um heim allan. Við eigum afreks­fólk í fjölmörgum íþrótta­greinum sem hefur aukið hróður Íslands á Ólympíu­leikum, heims­meistara­mótum og Evrópu­mótum. Flutnings­menn tillög­unnar telja að tímabært sé að stjórn­völd styðji betur við íslenskt íþrótta­fólk, fyrir­myndir æsku landsins.“

Afreks­íþróttafólk á Íslandi gaf frá sér yfir­lýsingu varðandi kjör sín í desember 2019. Þar segir: „Eftir íþrótta­ferilinn stendur margt íslenskt afreks­íþróttafólk uppi með skuldir á bakinu og réttinda­laust. Afreks­íþróttafólk hefur ekki lífeyris­réttindi, stéttar­félagsaðild, atvinnu­leysis­bætur, aðgengi að sjúkra- og starfs­menntasjóði, né réttindi til fæðingar­orlofs svo eitthvað sé nefnt.“ Í skýrslu vinnuhóps frá 2017 um endur­skoðun á reglum afreks­sjóðs ÍSÍ er t.d. fjallað um mikilvægi þess að afreks­íþróttafólk geti einbeitt sér að æfingum og keppni samhliða því að njóta lágmarks­tekna vegna fram­færslu og nauðsynlegra útgjalda: „Bjóða þarf upp á beina styrki til íþrótta­manna í formi mánaðarlegra „framfærslu­styrkja“ þar sem íþrótta­maðurinn hefur fullan ráðstöfunar­rétt á tekjunum.“

Standa aðeins undir beinum kostnaði

Þingmenn Samfylkingarinnar segja að af þessum orðum megi „glöggt sjá að þeir styrkir sem afreks­íþrótta­fólki hefur staðið til boða hafa iðulega verið notaðir í beinan kostnað íþrótta­fólksins vegna þátttöku á alþjóð­legum mótum erlendis en ekki fram­færslu á æfinga­tíma“.

Afreks­íþróttafólk á þess kost að sækja um styrki frá afreks­sjóði ÍSÍ en megin­hlutverk afreks­sjóðsins við uppbyggingu afreks­íþrótta á Íslandi er að styðja sérsambönd fjárhags­lega og með því íslenskt afreks­íþróttafólk við að ná árangri í alþjóðlegri keppni. Þingmenn Samfylkingarinnar benda á að þessir styrkir til afreks­íþrótta­fólks eru eini opinberi stuðningurinn sem það hefur kost á að nýta sér til þess að fjármagna keppnis- og æfinga­ferðir en fjárhæðir eru af þeim toga að lítið standi eftir þegar beinn kostnaður hefur verið greiddur.

„Slíkir styrkir eru ekki skilgreindir sem laun og því setur formið, sem og fjárhæðir styrkja, afreks­íþróttafólk í erfiða stöðu og leiðir oftar en ekki til þess að það þarf að sinna launuðum störfum meðfram æfingum til að fjármagna sig á meðan keppinautar þeirra erlendis geta helgað sig íþrótt sinni,“ segir í greinar­gerðinni. „Þar með stendur íslenskt afreks­íþróttafólk ekki jafnfætis þeim sem eru helstu keppinautar þeirra á heimsvísu. Afreks­íþróttafólk hefur margoft bent á að það sé erfitt að keppa á heims­mælikvarða án launa og réttinda. Með tillög­unni er ætlunin að bregðast við þessari stöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár