Örsmár forréttindahópur mengar mest

Ný rannsókn sýnir að um 1 prósent mannkyns, sem flýgur mjög oft, ber ábyrgð á um helmingi allrar losunar gróðurhúsa­lofttegunda frá flugi.

Vísindamennirnir stinga upp á því að kröfur í loftslagsmálum verði innbyggðar í björgunarpakka til flugfélaga.
Vís­inda­menn­irnir stinga upp á því að kröfur í lofts­lags­málum verði inn­byggðar í björg­un­ar­pakka til flug­fé­laga. Mynd: EPA

Um 1 prósent mannkyns báru árið 2018 ábyrgð á helmingi allrar losunar gróðurhúsa­lofttegunda frá flugi. Þetta eru þeir sem fljúga mjög oft – mun oftar á ári hverju en flestir gera á allri sinni ævi.

Þeir eru kallaðir ofur-losarar (e. super emitters), flug­farþegarnir sem fljúga svo oft að aðeins eitt prósent þeirra valda losun helmings allra gróðurhúsa­lofttegunda frá flugi. Þannig var það árið 2018 en við vitum að þannig verður það ekki þegar árið 2020 verður gert upp. En í nýrri rannsókn sem sænskir vísinda­menn leiddu er stuðst við gögn um mengun og farþega­fjölda í flugi frá árinu 2018 og niður­staðan gefur vísbendingu um hvað kann að gerast eftir faraldur COVID-19, ef lífsstíll fólks breytist ekki umtals­vert.

Aðeins 11 prósent jarðarbúa flugu með flugvél árið 2018. Og aðeins 4 prósent þeirra flugu til útlanda. Þegar litið er á hvert land fyrir sig má sjá að það eru Bandarískir flug­farþegar sem skilja eftir sig stærsta kolefnis­sporið. Reyndar er losun þeirra vegna flugferða meiri en losun flug­farþega tíu næstu ríkjanna þar á eftir.

Vísinda­mennirnir segja að rann­sóknin leiði í ljós að fámennur forréttinda­hópur, sem fljúgi ótt og títt, hafi mikil áhrif á loftslag jarðar – áhrif sem allir jarðar­búar finna fyrir.

Í ár hefur kórónu­veiran sett strik í reikning margra og yfir 50 prósent samdráttur hefur orðið í farþega­flugi. Þessa stöðu telja vísinda­mennirnir vera kjörið tækifæri til að endur­skoða ýmislegt sem snýr að flugi og mæla þeir m.a. með því að ríkis­stjórnir heimsins setji skilyrði er lúta að loftslags­málum í þeim ríkis­stuðningi sem að flug­félögum er réttur. Þannig megi rétta kúrsinn í flug­geiranum; gera hann samkeppnis­hæfari og sjálf­bærari.

Á milli áranna 2013-2018 jókst losun gróðurhúsa­lofttegunda frá flugi um 32 prósent. Þó að gríðar­legur samdráttur sé nú í flugi hafa flugfélög sett sér markmið um að komast í samt horf og fyrir faraldurinn jafnvel þegar árið 2024.

„Ef við viljum leysa loftslags­vandann þurfum við að endur­hanna flug­samgöngur,“ segir Stefan Gössling, prófessor við Linnéu-háskóla í Svíþjóð og aðal­höfundur rann­sóknarinnar. „Og þá þurfum við að byrja á toppnum – þar sem fáir ofur-losarar hafa gríðarleg áhrif.“ Hann segir í viðtali við Guardian að ríkir íbúar jarðar hafi haft allt of mikið frelsi til að hanna jörðina eins og þeim sýnist. „Við ættum að sjá þá krísu sem við erum núna í sem tækifæri til að draga saman í flug­ferðum.“

Niður­stöður rann­sóknarinnar voru birtar nýverið í vísinda­tímaritinu Global Environmental Change.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár